Bændablaðið - 25.05.2023, Síða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
einingin. Þetta er kallað uppvinnsla
og er annað sem við viljum sjá
börn í skóla fræðast um. Með
tilvist Bambahúsa og ef við sjáum
viðvarandi aukningu á eftirspurn
verðum við að finna leiðir til að fá
bambana til okkar.
Núna er nóg framboð af bömbum
en við viljum aðeins þá tanka sem
eru vel varðveittir og af ákveðinni
gerð,“ segir Jón Hafþór og bætir við
að töluvert hafi þurft að hafa fyrir
því að finna réttu bambana áður en
þeir færu til spillis eða væri fargað.
„Við viljum koma upp bamba-
miðlun þar sem allir bambar sem
koma til landsins verða flokkaðir
og notaðir eftir þeim gæðum sem
í þeim eru. Það er að innfluttir
bambar verði skráðir eftir hvað þeir
innihalda og af hvaða gerð þeir eru
og að þeir verði eftir tæmingu nýttir
eftir gæðum þeirra og ástandi.“
Bambahús eru ekki við eina
fjölina felld í framleiðslu sinni
heldur hafa framleitt fleira úr
hráefninu. „Við höfum smíðað
kalda og heita potta og útisturtu.
Hönnun heita pottsins er sérstök
og miðast við að nýta heita vatnið
betur en hefðbundnir heitir pottar
gera,“ segir Jón Hafþór. Ýmislegt
annað sé einnig á teikniborðinu sem
miðist út frá að nýta annars konar
byggingarefni sem einnig sé erfitt
að endurvinna eða farga á góðan hátt
fyrir umhverfið. „Við höfum sótt
um styrki til að klára þessa hönnun
og vonandi fáum við að frumsýna
nýja tegund af afþreyingarhúsnæði
innan skamms. Þetta er spennandi
verkefni og við erum að leita að
rétta samstarfsaðilanum sem gæti
verið með okkur í þessu.“
Vilja vera leiðandi afl
Bambahús eru sífellt að sækja í
sig veðrið og uppi á borðinu eru
alls konar hugmyndir og verkefni.
„Um daginn fórum við með
þrefalt Bambahús á Hvalsnes á
Reykjanesskaga en þar var fólk
sem missti gamla gróðurhúsið sitt
út á haf í vetrarstormi. Bambahúsin
hafa staðið af sér veður á sumum
verstu veðurstöðum á landinu svo
við hlökkum til að sjá blómin
blómstra í þessu húsi næstu 20
árin.“
Framtíðarsýn Jóns Hafþórs
er skýr og stefnir hátt: „Við
hjá Bambahúsum ætlum okkur
að verða leiðandi afl í mótun
framtíðarstefnu í uppvinnslu-
og endurvinnslumálum á
Íslandi,“ segir hann. „Bambahús
eru nýsköpun og hluti af
hringrásarhagkerfinu sem getur,
líkt og áður var getið, merkt sig
við heil 9 af 17 heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna í lofts-
lagsmálum. Bambahús vilja vera
afl til fræðslu og sjálfbærni. Því
setjum við okkur stór markmið
til uppvinnslu efnis sem kemur
til eyjunnar sem við búum á. Við
gerum okkur grein fyrir að það þýðir
illa að ætla að flytja allt rusl, sem
hér fellur til, erlendis til brennslu,
urðunar eða endurnýtingar. Við hjá
Bambahúsum teljum okkur vera að
stíga mikilvæg skref í þá átt,“ segir
Jón Hafþór að lokum.
Unnið að endurvinnslu bamba. Hráefnið er nýtt til að byggja gróðurhús og
ýmislegt fleira.
Lukkuleg leikskólabörn horfa á bílinn Bambaljóð flytja til þeirra Bambagróðurhús.