Bændablaðið - 25.05.2023, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Í DEIGLUNNI
Þörungarækt:
Mun metanlosun frá mjólkurkúm
brátt heyra sögunni til?
Baráttan gegn losun gróður-
húsalofttegunda hefur vart farið
fram hjá mörgu mannsbarninu
undanfarin ár og misseri.
Róið er að því öllum árum
hérlendis sem erlendis að finna leiðir
til að draga úr losun svo mögulegt
verði að sporna við þeirri þróun sem
raungerst hefur í umhverfismálum
um heim allan. Kallað er eftir
lausnum jafnt frá stjórnvöldum
sem og alþjóðasamfélaginu, enda
málefnið þarft, brýnt og hreinlega
nauðsynlegt ef takast skal að
skilja umhverfið okkar eftir í
mannsæmandi horfi fyrir þá sem
erfa munu land.
Hvað landbúnað varðar er það
svo að iðragerjun á stærstan þátt
í losun gróðurhúsalofttegunda frá
greininni í heild. Þar eð verulega
torvelt gæti reynst að koma í veg
fyrir rop og prump frá búfénaði
er ljóst að leita verður annarra
lausna ef markmið stjórnvalda í
losunarmálum eiga að nást.
Eitt af þeim atriðum sem lagt
var til í verkefninu Loftlagsvænni
landbúnaður, sem hleypt var af
stokkunum af stjórnvöldum árið
2020, var bætt fóðrun búfjár til
að draga úr iðragerjun. Hingað til
hefur að meginstefnu verið talið
að fátt væri til ráða til að draga úr
losun metan vegna iðragerjunar
í jórturdýrum, en tilraunir erlendis
með bætta fóðrun hafa gefið
góðar vonir.
Sjávarþörungar sem
íblöndunarefni
Verkefnið CircleFeed hlaut á dög-
unum styrk Norræna nýsköpunar-
ráðsins, þar sem markmiðið
er að draga úr kolefnisspori
nautgriparæktar í landbúnaði að
lágmarki um 30%. Til stendur að
rækta sjávarþörunga í Auðlindagarði
HS Orku, í því augnamiði að nýta
þá sem íblöndunarefni í fóður fyrir
mjólkurkýr.
Slíkt hefur verið gert erlendis
með sérdeilis framúrskarandi
árangri, en niðurstöður rannsókna
hafa sýnt allt að 90% samdrátt í
losun metans frá mjólkurkúm sem
hafa fengið þörungabætt fóður.
Takist slíkt hið sama hér á Fróni
mætti þannig lækka kolefnisspor
hjarðdýraræktar í íslenskum land-
búnaði. Takist vel til er ljóst að
grettistaki verður lyft hvað varðar
markmið stjórnvalda um samdrátt
í losun gróðurhúsalofttegunda í
landbúnaði.
Hvatt til margföldunar
í þörungarækt
Fyrirtækið Lava Seaweed ehf. fer fyrir
verkefninu, sem er samstarfsverkefni
nokkurra aðila vítt og breitt af
Norðurlöndunum. Hugmyndasmiður
verkefnisins er Ólavur Gregersen
hjá Ocean Rainforest í Færeyjum,
sem hafa í fjölda ára unnið að
ræktun sjávarþörunga og afurða
úr þeim í fóðurbæti í landbúnaði.
Fyrirtækið stofnaði hann ásamt
Sigurði Péturssyni, sem einnig
er frumkvöðull í lagareldi, en
markmiðið er að nýta einstakar
umhverfisaðstæður á Íslandi til
stýringar í þörungarækt.
Í stuttu máli snýst verkefnið
um að nýta náttúrulegar aðstæður
á Reykjanesi, borholusjó, jarðhita
og græna raforku, til landeldis á
sértækum sjávarþörungum, sem
síðan verður blandað við fóður fyrir
mjólkurkýr. Fóðurblöndur verða síðan
prófaðar við háskólann í Árósum.
Aðrir aðilar að CircleFeed verkefninu
eru færeyski þörungaframleið-
andinn Ocean Rainforest, HS
Orka, danski fóðurframleiðandinn
DLG, færeyska nýsköpunarfélagið
Sjókovin og Konunglegi tækni-
háskólinn í Svíþjóð.
Sigurður Pétursson, meðstofnandi
Lava Seaweed ehf., segir verkefnið
frábært tækifæri til að nýta sjálfbærar
náttúruauðlindir á Íslandi til að
hjálpa til við að leysa eina af helstu
áskorunum í matvælaframleiðslu á
heimsvísu; að draga úr kolefnisspori
við framleiðslu hjarðdýraafurða.
„Við sem að þessu verkefni
stöndum höfum kynnt okkur ræktun
rauðþörunga í Ástralíu og fylgst
með þróun mála þar. Niðurstöður
rannsóknarverkefna sem snúast
um íblöndun rauðþörunga til að
lækka kolefnisspor búfénaðar hafa
gefið hreint út sagt frábæra raun og
við höfum tröllatrú á því að okkar
náttúrulegu aðstæður hér á Íslandi
geti hjálpað okkur að ná jafngóðum
eða betri árangri í stýrðu landeldi,“
segir hann.
Sigurður bendir á að Matvæla-
og landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna hafi í skýrslu sinni, sem
út kom í fyrra, beinlínis hvatt
til margföldunar í þörungarækt
og það sama á við í áherslum
Evrópusambandsins.
„Sem engan þarf í rauninni að
undra. Þörungar eru svo magnaðir og
hægt að nota á svo mörgum sviðum
að fólk sem ekki þekkir vel til á
yfirleitt erfitt með að trúa því hversu
vítt litróf þörungar spanna þegar
kemur að nýtingarmöguleikum,“
segir Sigurður.
Þannig séu þörungar nýttir til
fæðu, í áburð, sem lífeldsneyti, í
fæðubótarefni, í litarefni, koma í
stað plasts og hafa meira að segja
verið nýttir til skógerðar. Þeir
innihalda fjölda næringarefna svo
sem magnesíum, kalk, joð, járn, sink
og omega-fitusýrur, svo engan þarf
að undra að þeir séu mikið nýttir til
gerðar fæðubótarefna af ýmsu tagi.
„Þar við bætist sú staðreynd að
á heimsvísu binda þörungar um
tuttugufalt magn kolefnis á við allan
gróður jarðar samanlagt.
Þeir eru í reynd hin sönnu
lungu heimsbyggðarinnar,“ bætir
Sigurður við.
Ráðstefna um þörunga í Hörpu
Í fyrra voru stofnuð Samtök
þörungafélaga á Íslandi og telja
meðlimir samtakanna á þriðja tug
aðildarfélaga. Stofnendur félagsins
eiga það sameiginlegt að stunda
sjálfbæra öflun, ræktun, rannsóknir,
fræðslu, vinnslu, vöruþróun og sölu á
afurðum tengdum þörungum.
Í upphafi þessa árs voru samtökin
svo samþykkt sem meðlimir í
Evrópusamtökum þörungafélaga,
European Algae Biomass Associated.
Sigurður situr í stjórn samtakanna
og segir uppgang í uppbyggingu
fyrirtækja á sviði smá- og stór-
þörunga hér á landi bara rétt að
hefjast. „Við munum halda okkar
fyrstu alþjóðlegu ráðstefnu í
Hörpu um smá- og stórþörunga á
Íslandi, sem ber heitið Arctic Algae,
dagana 30.–31. ágúst næstkomandi.
Þangað hafa þegar staðfest komu
sína reynsluboltar og stór nöfn úr
þörungaheiminum og undirbúningur
er í fullum gangi. Þar munum við í
fyrsta sinn stefna saman hagaðilum
þörunga í víðum skilningi hérlendis
auk allra áhugasamra um málefnið.
Það er enginn vafi í mínum huga
að við erum bara rétt farin að klóra
í yfirborð þeirra möguleika sem í
þörungum felast og við munum
sjá mikinn uppgang í greininni á
komandi árum.
Það eru spennandi tímar fram
undan,“ segir Sigurður.
Áhugasamir geta kynnt sér málið
á www.arcticalgae.is.
CO2
Sólarljósið skiptar stórt hlutverk
í tengslum við ljóstillífun
sjávarþörunga í landeldinu.
Auðlindagarður HS Orku
útvegar jarðsjó sem er síaður
í gegnum hraun, jarðvarma
og græna raforku.
Lífrænn úrgangur sem verður
til vegna lagareldis í Auðlinda-
garði HS orku nýtist sem fóður
fyrir landeldi á sjávarþörungum.
Binding kolefnis
(koltvísýrings/gróðurhúsa-
lofttegunda) gerist við
ræktun sjávarþörungana.
CircleFeed er fóðurbætir úr þörungum sem nýttur er sem fóður
fyrir mjólkurkýr. Hann hefur gefið góða raun til lækkunar á metan
losun og stefnt er að því að það kolefnisspor lækki um a.m.k 30%.
CircleFeed
CFORCE 625 Touring
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogur
Sími 557 4848 / www.nitro.is
Kr. 1.599.000,-
Tilboðsverð m/vsk
Sigurður Pétursson.
Þorvaldur B. Arnarson
thorvaldur@bondi.is