Bændablaðið - 25.05.2023, Síða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
VIÐTAL
Hjónin Ásmundur Lárusson og
Matthildur Elísa Vilhjálmsdóttir
hafa verið í búskap síðan 1995. Nú
er sonur þeirra, Hannes Orri, kominn
inn í búreksturinn og á þriðjung
búsins á móti foreldrum sínum. „Ég
var búinn að ákveða þegar ég byrjaði
í búskap 25 ára gamall að ég ætlaði
að hætta um fimmtugt. Ég er 53 í dag
og ekki enn hættur,“ segir Ásmundur.
Ásmundur ólst upp á Selfossi,
en hafði alltaf hug á að verða bóndi.
„Ég byrjaði í sveit á Hlemmiskeiði
1 tíu ára gamall og var til sautján
ára aldurs,“ segir hann. Matthildur,
eiginkona Ásmundar, er frá
Hlemmiskeiði 2, sem er steinsnar
frá. Hjónin sem Ásmundur var í
sveit hjá buðu þeim að taka jörðina
sína á leigu árið 1995 og hófu þau
sinn búskaparferil á sömu torfu og
foreldrar Matthildar.
Ásmundur og Matthildur voru
þá með átján kýr og 70 þúsund
lítra framleiðslurétt. Ungu hjónin
unnu bæði úti meðfram búskap,
Matthildur sem leikskólastjóri og
Ásmundur sem smiður.
Framtíðaráætlanirnar byggðust
á því að kaupa Hlemmiskeið 1 og
byggja þá jörð upp. Þau reistu sér
nýtt íbúðarhús á meðan eldri hjónin
bjuggu áfram í sínu húsi. Enn fremur
keyptu þau allar vélar og skepnur, en
gerðu fimm ára leigusamning fyrir
útihúsunum, jörðinni og kvótanum.
Að fjórum árum liðnum gerðu þau
kauptilboð sem var hafnað. Þá vildi
svo til að ríkisjörðin Norðurgarður
losnaði til ábúðar, sem þau sóttu
um og fengu. Rétt rúmir tveir
kílómetrar eru á milli Hlemmiskeiðs
og Norðurgarðs í beinni loftlínu.
Keyptu jörðina 2009
Eftir að hafa leigt Norðurgarð af
ríkinu í áratug keyptu Ásmundur
og Matthildur jörðina árið 2009.
Ári síðar stofna þau einkahlutafélag
í kringum reksturinn sem hafði
að hluta til verið til að liðka fyrir
kynslóðaskiptum. Hann segir mikla
vöntun á leiðsögn og upplýsingum
fyrir bændur sem eru að færa
búreksturinn yfir til yngri kynslóðar.
Ásmundur segist hafa leitað
upplýsinga víða og enginn aðili
hafi getað sagt skýrt hvaða leið væri
farsælust. „Ég fékk upplýsingar frá
ráðunautum og bændum sem hafa
gert þetta áður. Svo veit maður ekki
hvort það sé endilega rétta lausnin.“
Hefði átt að fá róbót fyrr
Þegar þau fluttu að Norðurgarði árið
1999 var þar 32 kúa fjós. Árið 2004
breyttu þau fjósinu í lausagöngufjós
og fjölguðu básunum. Þá voru
mjaltaþjónarnir nýlega komnir á
sjónarsviðið en þau ákváðu að nota
mjaltabásinn sem var í fjósinu fyrst
um sinn, en hann var í grunninn frá
1986. „Ég var alltaf með það í huga að
setja inn róbót og var að kljást við þá
ákvörðun til ársins 2015. Mér fannst
þetta dýrt í innkaupum og dýr rekstur
á þessu. Nú sé ég eftir að hafa ekki
gert það miklu fyrr, því ég var orðinn
þreyttur. Þegar ég var farinn að mjólka
65 kýr var ég upp undir sex tíma í
mjöltum á dag,“ segir Ásmundur.
Hann segir starfsumhverfið vera
allt annað en það var áður og nú gefist
tími til að sinna verkefnum sem sátu
áður á hakanum. Nú sé hægt að sitja
yfir gögnum í tölvunni, velta fyrir sér
öllu sem kemur að heilbrigði og svo
framvegis á meðan mjaltaþjónninn
mjólkar. Enn fremur segir Hannes
Orri tilkomu mjaltaþjónsins hafa aukið
áhuga sinn á að taka við búinu. Hann
útskrifaðist úr búfræði á Hvanneyri
árið 2018 og hefur starfað við búið
síðan þá.
Spurði Sölufélagið hvað vantaði
Árið 2020 keyptu þau jörðina
Andrésfjós, sem er á sömu torfu
og Norðurgarður. Sú jörð er 165
hektarar og fengu þau gott ræktarland.
Jafnframt fylgdu kaupunum íbúðar-
hús sem Hannes Orri og Marta
Stefánsdóttir, kærasta hans, búa
í. Enginn framleiðsluréttur var á
jörðinni. „Við skuldsettum okkur alveg
upp í rjáfur þegar við keyptum þessa
jörð,“ segir Ásmundur og fóru þau
því í grænmetisrækt til að afla frekari
tekna. Ásmundur sá að þetta hentaði
sérstaklega vel með kúabúskap þar
sem helstu álagstímar skarast ekki.
„Við byggðum létt gróðurhús og
sáum í það um miðjan apríl. Síðan
er maður að setja kornið niður um
mánaðamótin apríl-maí. Í lok maí
förum við að planta út grænmetinu
og eftir það byrjar heyskapur. Síðan
byrjar upptaka um miðjan júlí.“
Ásmundur hafði samband við
Sölufélag garðyrkjubænda og spurði
hvaða tegundir vantaði á markað.
Þar fékk hann þau svör að helst
væri þörf á spergilkáli (brokkólí)
og blómkáli. Það er því stór hluti af
þeirra ræktun, en jafnframt eru þau
með hvítkál og rauðkál í minna magni.
Heildaruppskeran árið 2022 var nálægt
30 tonnum. „Það fer ekkert til spillis
hjá okkur. Það grænmeti sem við
hendum frá okkur fer allt í kýrnar.“
Uppskerutími spergilkáls er
nokkuð stuttur og geymsluþol fimm
til sex vikur. „Þú getur verið að fá
fyrstu uppskeru um miðjan júlí og svo
endist tímabilið út október í besta falli.
Þá er uppskeran búin og spergilkálið
geymist ekki lengur,“ segir Ásmundur.
Önnur saga er með hvítkál, sem
geymist allan veturinn.
Ekkert uppgrip
„Þetta er mannfrekt, þannig að
launakostnaðurinn er mjög hár í
þessum bransa og það varð minna úr
hagnaði í þessu en vonir stóðu til,“
segir Ásmundur. Þegar grænmetið er
sett í garðana þarf sex manns til að
verkið gangi á skikkanlegum hraða.
„Gallinn við þetta er að það hefur ekki
verið tími til að fara yfir girðingar og
mála þök á húsum. Þetta tók í raun
alla glugga og allt frí fauk út í veður
og vind. Þetta er ekkert uppgrip og
við vorum vöruð við því áður en
við fórum í þetta,“ segir Ásmundur
aðspurður hvort grænmetisrækt sé góð
atvinnugrein. Þau hafi hins vegar átt
flestan tækjabúnað og ræktarlandið
hafi verið til staðar. Þær vélar sem upp
á vantaði keyptu þau fyrir hagstætt
verð og gróðurhúsið var ódýrt í
smíðum þar sem þau sáu um alla
vinnu sjálf.
Ásmundur segir að með því að
geyma grænmetið við eina gráðu
endist það best. „Það er lykilatriði
þegar við erum að taka þetta upp að
keyra þetta sem fyrst heim og kæla
strax – sérstaklega með spergilkálið.“
Til þess að hafa meira upp úr
grænmetisræktuninni segir Ásmundur
að það þyrfti að vera hægt að vélvæða
og auka magn. Það eru til vélar
sem taka upp grænmeti, en þær eru
mjög dýrar og skera ekki eins vel
og mannshöndin, sérstaklega þegar
kemur að spergilkáli og blómkáli.
Einingin þyrfti að vera mun stærri til
að frekari vélvæðing myndi borga sig.
Eins og staðan er núna þá eru
þau búin að fullnýta þann mannskap
og tíma sem þau hafa. „Ég er ekki
að segja að verðið sé lágt fyrir
neytandann, en það veitir ekki af því
fyrir framleiðandann. Við erum ekki
að ríða feitum hesti frá þessu.“
Kindur „áhættubúskapur“
Þegar þau keyptu Andrésfjós fylgdu
15 kindur með í kaupunum. Þau voru
með þær í tvö ár. „Það er áhættusamt
að vera með kindur og grænmeti
hlið við hlið, því ef ein kind sleppur
í grænmetisgarð er hún búin að
eyðileggja hann á augabragði. Þetta
var orðinn áhættubúskapur,“ segir
Ásmundur.
Hann bætir við að vinnuálagið hafi
verið orðið ofboðslega mikið, enda
sauðburður á sama tíma og þegar mest
er að gera í grænmetisræktinni. „Svo
vaknar maður við að eitthvað þarf að
gefa eftir. Það þarf að breyta einhverju
svo maður fari ekki í keng. Þegar þú
ert að gera þetta fyrir heimilið þá er
þetta farið að taka of mikinn tíma
og þá er common sense að minnka
vinnuna. Þetta er dýrt hobbí nema
maður hafi brjálæðislegan áhuga
á þessu. Við erum ekki alveg þar,“
segir Ásmundur.
Norðurgarður og Eurovision
Ásmundur hefur spilað nokkurt
hlutverk í Eurovision-ferli Íslands,
en dóttir hans er Árný Fjóla og er
hann tengdafaðir Daða Freys. „Ég var
þeim innan handar í leikmunagerð.
Um leið og þau tóku fyrst þátt í
Söngvakeppninni voru þau með
ákveðnar hugmyndir um hvernig þau
vildu hafa hlutina. Ég var að hjálpa
þeim í að smíða fyrstu hljóðfærin, og
svo auðvitað hringpíanóið. Við vorum
að teikna þetta upp hérna á gólfinu til
að sjá hvað þetta yrði að vera stórt, og
svo þurfti að plögga þessu saman.“
Einingarnar voru þrjár og
Ásmundur segir marga klukkutíma
hafa farið í að finna góða útfærslu á
að tengja hlutina saman. Hann bætir
við að nær allt hafi verið endurnýtt
sem notað var í hljóðfærin. Til að
mynda var fyrsta hljóðfærið sem þau
smíðuðu gert úr bjórkassa. Ásmundur
tekur fram að allar hugmyndirnar hafi
komið frá Árnýju og Daða á meðan
hann hjálpaði þeim með útfærsluna.
Ala grísi
„Þegar við komum hingað 1999
var svínabú hér – bæði gyltur og
grísauppeldi. Það var ekki beysinn
búskapur á þeim tíma og ég ákvað strax
að fara ekki í það,“ segir Ásmundur.
Á Norðurgarði í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er rekið blandað bú með
meiru. Stærstur hluti veltunnar kemur frá mjólkurframleiðslu, en á bænum
er jafnframt grænmetisrækt, grísaeldi, kornrækt og skógrækt. Enn fremur
eru nokkrir hestar og þar til fyrir stuttu voru örfáar kindur til heimabrúks.
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Fjölskyldan í Norðurgarði. Á myndinni eru frá hægri: Marta Stefánsdóttir, Hannes Orri Ásmundsson, Matthildur Elísa Vilhjálms-
dóttir, Ásmundur Lárusson og Bergsveinn Vilhjálmur Ásmundsson. Fremst standa Kría og Áróra Björg Daðadætur.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur:
Grænmeti og mjólk fara vel saman
– Fjölbreyttur búskapur til að auka veltu og nýta tækjabúnað
Bæjarhúsin að Norðurgarði. Þar hefur verið byggt upp bú með fjölbreyttan rekstur. Mjólkurframleiðsla skipar stærstan sess, en grænmetisrækt og grísaeldi styður við rekstur búsins. Myndir / ÁL