Bændablaðið - 25.05.2023, Síða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
LÍF&STARF
Handverk:
Námskeið, markaðstorg og prjónasamkeppni
– Prjónagleðin á Blönduósi haldin í sjöunda sinn
Prjónagleðin, árviss prjóna- og
garnhátíð haldin á Blönduósi,
verður haldin í sjöunda sinn
9.–11. júní.
Að sögn Svanhildar Pálsdóttur,
sem er starfsmaður Textílmiðstöðvar
Íslands og kemur að skipulagningu
hátíðarinnar, er dagskráin fjölbreytt
sem endranær og ber þar hæst
spennandi námskeiðsdagskrá og
sérstakt Garntorg þar sem söluaðilar
sýna sínar vörur – auk ýmissa
annarra prjónatengdra viðburða.
Snillingar á sínu sviði
„Námskeiðin sem boðið er upp
á tengjast að sjálfsögðu öll
prjónaskap, hekli, garni og ull
og kennararnir eru einvalalið,
snillingar á sínu sviði.
Það ættu allir að finna námskeið
við sitt hæfi, hvort sem um er að
ræða byrjendur eða þaulreynda
prjónara.
Það er endalaust hægt að bæta
við sig kunnáttu og læra eitthvað
nýtt enda seljast námskeiðin eins
og heitar lummur og er nú þegar
orðið uppselt á mörg þeirra,“ segir
Svanhildur.
Textílmiðstöð Íslands hefur
að sögn hennar verið í mikilli
uppbyggingu og er nú orðin mjög
vel tækjum búin. „Það er því gaman
að segja frá því að á Prjónagleðinni
verður bæði boðið upp á námskeið
í hefðbundinni tóvinnu – þar sem
þátttakendur læra meðal annars að
spinna á rokk – sem og námskeið
þar sem þátttakendur kynnast
verklagi við að nota stafræna
prjónavél sem er sú fyrsta sinnar
tegundar hérlendis.“
Danskur pjónahönnuður gestur
hátíðarinnar
Sérstakur gestur hátíðarinnar
að þessu sinni er danski prjóna-
hönnuðurinn og prjóna konan Lene
Holme Samsøe.
„Hún er íslensku prjónafólki
að góðu kunn enda hafa komið út
eftir hana fjölmargar prjónabækur
hérlendis.
Hún mun halda námskeið og
fyrirlestra og það gefst einstakt
tækifæri á Prjónagleðinni að kynnast
henni og hennar prjónaferli,“
segir Svanhildur. Boðið verður
upp á dagsferð frá Reykjavík á
Prjónagleðina og er það nýnæmi.
Prjónarútan mun leggja af stað úr
Reykjavík snemma dags laugar-
daginn 10. júní og koma aftur í
bæinn fyrir miðnætti sama dag.
Skipuleggjendur hátíðarinnar
vonast til að þetta mælist vel fyrir og
að það þurfi stóra rútu fyrir hópinn
sem nýtir sér þennan möguleika.
Garntorgið fastur liður
„Garntorgið er fastur liður á
Prjónagleðinni og verður á sínum
stað í Íþróttamiðstöðinni.
Þar verða að þessu sinni 24
söluaðilar með sínar vörur, hand-
litarar, smáspunaverksmiðjur,
handverksfólk og verslanir með
garn og prjónatengdan varning.
Íslenska ullin skipar stóran sess á
Garntorginu eins og vera ber og
er mjög ánægjulegt að sjá hversu
margir eru að búa til úr henni band,
lita og vinna á fjölbreyttan hátt.
Á Garntorginu verður huggulegt
kaffihús og tilvalið að taka sér
bíltúr úr nágrannabyggðalögum,
líta á stemninguna og úrvalið og fá
sér kaffi og dýrindis meðlæti,“ segir
Svanhildur.
Að sögn Svanhildar er alltaf
haldin hönnunar- og prjóna-
samkeppni í tengslum við Prjóna-
gleðina. Að þessu sinni sé verkefnið
að endurvinna gamla, notaða og
slitna íslenska lopapeysu og nýta
hana sem grunnefnivið í nýja
nothæfa flík. Úrslit keppninnar
ráðast út frá frumleika, notagildi
og handverki og verða þau tilkynnt
laugardaginn 10. júní á Garntorginu
þar sem verkin verða til sýnis meðan
á hátíðinni stendur. Ístex, Tundra,
VatnsnesYarn og Rúnalist gefa
verðlaun í samkeppninni.
Hún segir að heimafólk og
fyrirtæki taki virkan þátt í hátíðinni
og kappkosti við að þjónusta gesti
hennar sem best.
Á sunnudagsmorgun verður
prjónamessa og opið hús í
Ullarþvottastöð Ístex, Heimilis-
iðnaðarsafnið verður opið og
ýmislegt fleira verður um að vera.
/smh
Svanhildur Pálsdóttir.
Mynd / Sarah Woodall
Svipmyndir frá liðnum hátíðum Prjónagleðinnar á Blönduósi. Myndir / Svanhildur Pálsdóttir
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf