Bændablaðið - 25.05.2023, Síða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
VIÐTAL
Bændasamtökin:
„Aldrei dauð stund í landbúnaði“
– Útivist tengir Örvar Þór Ólafsson, nýjan fjármálastjóra, við sveitir landsins
„Við erum þrjú sem myndum
fjármálateymið en ásamt mér eru
það Sigga (Sigríður Þorkelsdóttir) og
Jóhanna Lúðvíksdóttir. Ég er heppinn
að fá að vinna með „stelpunum“
eins og þær eru alltaf kallaðar, enda
spannar þeirra reynslubanki innan BÍ
og forverum samtals sjö áratugi. Við
þetta bætist það lán mitt að starfa með
Gylfa áður en hann lét af störfum en
hann er sá einstaklingur sem þekkir
fjármál samtakanna betur en nokkur
annar. Það hefur verið gagnlegt að
horfa í baksýnisspegilinn og skoða
söguna þegar maður er að hugsa
hlutina fram á við. Maður þarf
auðvitað að setja hlutina í samhengi.“
Verkefni nýs fjármálastjóra snúa
fyrst og fremst um að halda þétt
utan um fjármál samtakanna og öllu
því sem heyrir þar undir. „Við erum
óhagnaðardrifin félagasamtök sem er
ætlað að nýta fjármuni samtakanna
til ákveðinna verkefna – ekki bara
þessari grunnhagsmunabaráttu heldur
einnig að bera ábyrgð á og hrinda í
framkvæmd fjölmörgum verkefnum
sem stuðla að velsæld bænda og
framþróun í landbúnaði.
Það er ákveðinn línudans að
fullnýta fjármunina í okkar verkefni
en heldur ekki skila taprekstri.
Samtökin þurfa ákveðið eigið fé til
að hafa borð fyrir báru ef tekjuhliðin
bregst af einhverjum orsökum.
Við getum ekki tekið tekjurnar
sem sjálfsagðan fasta, hvorki
félagsgjöldin, auglýsingatekjur
Bændablaðsins eða framlög frá
stjórnvöldum. Það er erfitt að gera
áætlanir fyrir meira en eitt ár í einu
og það er ákveðin áskorun.“
Einnig sér teymið um öll fjármál
fyrir Nautastöðina (NBÍ ehf.) á Hesti
sem og tvö dótturfyrirtæki sem eru að
slíta barnsskónum: Kolefnisbrúin og
Íslenskt staðfest. „Hið síðarnefnda
mun hins vegar hafa ákveðinn
aðskilnað frá Bændasamtökunum
varðandi bókhald, fjárhagslegar
upplýsingar og fleira í ljósi hlutverks
félagsins. Þá sjáum við um bókhald
og uppgjör fyrir „gömlu“ félögin
sem gengu inn í Bændasamtökin árið
2021, þ.e. Landssamband kúabænda,
Landssamband sauðfjárbænda,
Félag kjúklingabænda og fleiri. Þá
er Styrktarsjóðir BÍ sérstakt félag
sem heldur utan um sjóði í umsjá
samtakanna,“ segir Örvar.
Bjartir tímar fram undan
Örvar segist taka við keflinu á
spennandi tímum hjá samtökunum.
„Allt kerfið í kringum landbúnaðinn
og samtökin hefur sem betur fer
einfaldast og reyndar eru enn tækifæri
til hagræðis. Fjárhagurinn hefur
einfaldast en við getum gert ýmsa
hluti enn skilvirkari en nú er. Mér
skilst að kennitölurnar sem samtökin
voru að sjá um í ýmsum félögum og
sjóðum hafi verið fjörutíu talsins fyrir
einungis um tveimur árum. Það var
farið í stórar og nauðsynlegar tiltektir
í þessum málum og kennitölunum
fækkaði niður í fimmtán. Og þeim
mun fækka enn meira.”
Enda eru risavaxin verkefni að
baki: að ljúka endanlega málefnum
Bændahallarinnar, sameina samtökin
undir einum hatti búgreinanna og að
flytja í nýjar höfuðstöðvar í Borgartún.
„Ég tek hatt minn ofan fyrir okkar
formanni, framkvæmdastjóra,
lögfræðingi og fleira starfsfólki sem
tók að sér það verkefni að „sópa út“
úr Bændahöllinni. Það er auðvitað
sorglegt fyrir samtökin hvernig sú
saga endaði en við verðum að sjá
tækifærin sem liggja í núverandi
stöðu: nýta þennan tímapunkt til að
sækja fram og nýta þau tækifæri sem
eru til staðar fyrir landbúnaðinn.“
Tekjustoðirnar þarf að styrkja
Styrkja þarf tekjustoðir Bænda-
samtakanna að mati Örvars. „Þær
eru of þunnar í dag í samhengi við
þau verkefni sem okkur er falið.
Félagsgjöldin dekka ekki nema um
65% af launakostnaði samtakanna.
Við fáum fjármagn frá stjórnvöldum
eins og lýst er í búvörusamningum
frá 2021 þar sem okkur er ætlað
að bera ábyrgð á ákveðnum
málaflokkum og verkefnum, eins
og til dæmis Íslensk staðfest.
Þetta er í takti við okkar hlutverk
en fyrir utan þetta eru fjölmörg önnur
verkefni sem bíða okkar á næstu
árum en við höfum ekki fjármagn í.
Okkur vantar meiri fyrirsjáanleika í
reksturinn og traustari tekjustoðir. Í
því sambandi getum við einna helst
horft til þriggja þátta:í fyrsta lagi þarf
fjármagn að fylgja ef stjórnvöld vilja
að landbúnaður spili lykilhlutverk
í að ná þeim markmiðum sem
við höfum sett okkur varðandi
fæðuöryggi, umhverfismál o.s.frv.
Í öðru lagi þurfa forsendur á bak
við innheimtu félagsgjalda að
vera skilvirkari og nákvæmari. Í
þriðja lagi liggja stór tækifæri í að
samtökin taki frumkvæði og forystu
í styrkhæfum nýsköpunarverkefnum
sem geta haft mikil og jákvæð áhrif
hér á landi.
Til dæmis að gera Ísland sjálfbært
í framleiðslu á áburði sem er stórt
verkefni sem samtökin leiða.
Þarna er tækifæri til að fá styrki
frá Evrópusambandinu sem er
lykilatriði fyrir okkur. Það þarf samt
að hafa í huga að framlagið á móti
styrkjum sem þessum er oft talsvert
í krónum talið, að mestu leyti í formi
launakostnaðar.“
Helstu tækifæri í fjármálum
Bændasamtakanna
Nýr fjármálastjóri segir að fjárhagur
samtakanna eigi að endurspegla sem
best grunnrekstur þess. „Þannig
sjáum við best hvað það kostar að
reka hagsmunabaráttuna og sinna
okkar fjölbreyttu verkefnum.
Hér á árum áður voru samtökin
of oft eins konar afgreiðslumiðstöð
fyrir alls konar fjármuni sem
runnu frá ríkinu til landbúnaðarins
í gegnum sjóði og tímabundin
verkefni. Sumt af því hafði í raun
lítið með hlutverk samtakanna
að gera. Sem betur fer hefur
þetta minnkað mikið. Ég vil að
reksturinn sé gegnsærri þannig að
slíku fé sé að ákveðnu leyti haldið
aðskildu frá grunnrekstrinum. Það
er öllum hagaðilum til góðs að vita
hvað það kostar að halda úti starfi
samtakanna.”
Þá er Bændablaðið Örvari einnig
hugleikið enda í eigu Bænda-
samtakanna og rekstur hans því hluti
af hans verksviði.
„Samtökin reka þennan mest
lesna prentmiðil landsins, en
auglýsingatekjur þess eru okkur
mikilvægar. Það er hins vegar
svo að miðillinn er hluti af okkar
hagsmunabaráttu. Hann gegnir því
í raun sama hlutverki og samtökin:
að vinna að velsæld bænda.Þannig
getum við ekki sett sömu formerki
á rekstur blaðsins eins og um
einkarekinn fjölmiðil væri að ræða.
Að sjálfsögðu viljum við reka
blaðið, sem er haldið aðskildu í
bókhaldinu, réttum megin við núllið.
Það hefur ekki tekist síðustu ár og
er fjölmiðlastyrkurinn einfaldlega
nauðsynlegur fyrir okkur, ekki síst
í ljósi mikillar kostnaðaraukningar
á prentun og dreifingu blaðsins.
Það væri draumur að geta látið
blaðið renna inn um lúguna á öllum
heimilum landsins en það er auðvitað
ekki raunhæft. Mikill lestur blaðsins
undirstrikar áhuga landsmanna allra,
líka höfuðborgarbúa, á málefnum
tengdum landbúnaði,” segir Örvar.
Fjölbreyttur bakgrunnur
sem nýtist í starfi
Örvar nam viðskiptafræði í
Bandaríkjunum en þar starfaði hann
einnig hjá Icelandic USA sem áður
hét Coldwater Seafood Corporation.
„Ég og konan mín, Guðrún Árdís
Össurardóttir, fórum út rúmlega
tvítug en snerum heim árið 2004
eftir átta lærdómsrík ár – með þrjár
háskólagráður, þrjú börn, 40 feta gám
og „strumpastrætó“ í farteskinu! Ég
hafði nýlokið MBA námi mínu í
Fairfield University í Connecticut.
Ég starfaði hjá Íslandsbanka á
svokölluðum góðærisárum en fór
síðan til skilanefndar Glitnis árið 2010
þar sem ég vann m.a. með lánamál
fyrirtækja. Síðar vann ég í rúm fimm
ár hjá Lánasjóði sveitarfélaga en þar
kynntist ég málefnum sveitarfélaga
vel sem og opinberum fjármálum
og stjórnsýslu. Ég tel að nokkuð
fjölbreyttur bakgrunnur minn nýtist
vel í starfinu fyrir Bændasamtökin
– það er gott að hafa góða blöndu
í farteskinu fyrir þennan vettvang
sem er í senn skemmtilegur og
líflegur. Það er aldrei dauð stund í
landbúnaði, svipað eins og maður
hefur séð af kynnum sínum við
sjávarútveg.“
Ættir og útivist
Örvar á ættir að rekja bæði til suðurs
og vesturs. „Móðuramma mín er
úr Flóanum og afi var fæddur og
alinn upp á Ísafirði. Pabbamegin
eru ræturnar fyrst og fremst úr
uppsveitum Suðurlands en pabbi
er alinn upp á Laugarvatni þar sem
foreldrar hans, Haraldur Matthíasson
og Kristín S. Ólafsdóttir, voru
kennarar. Föðurfjölskyldan á enn þá
húsið sem þau byggðu þar en maður
á margar frábærar minningar úr æsku
frá Laugarvatni. Afi minn, „Halli
Matt“, var menntaskólakennari
í ML en var alinn upp í sveit
ofan úr hreppum. Áhugi hans var
fyrst og fremst í bókmenntum og
fræðistörfum frekar en búskap.
Hann fór aldrei til útlanda á sinni
löngu ævi, sá alltaf frekar ástæðu
til að eyða tíma sínum í ferðalög
innanlands. Hann og amma urðu
miklir ferðafrömuðir og við segjum
að útivistarbakterían í fjölskyldunni
eigi rætur sínar að rekja til þeirra.
Þá eru tengdaforeldrarnir bæði
alin upp í sveit á Vestfjörðum; Ásdís
tengdamamma á Hrafnabjörgum
í Laugardal (í Djúpinu) og
tengdapabbi frá Kirkjubóli í
Korpudal í Önundarfirði. Við hjónin
eigum sumarbústað í Djúpafirði í
Gufudalssveit og því eru tengingarnar
til Vestfjarða margar. Við þetta má
bæta að Ólafur Magnússon, langafi
minn og stofnandi Fálkans, ólst upp
í Kollsvík.“
Utan vinnu er Örvar mikill
útivistarmaður. „Ég hef verið á
hreyfingu frá því ég var strákur og
það hefur ekki minnkað mikið með
árunum. Útivist og fjallamennska
er í fjölskyldunni en pabbi minn,
Ólafur Örn Haraldsson, var
einmitt núna á dögunum sæmdur
heiðursverðlaunum Ferðafélags
Íslands – sami heiður og pabba hans
hlotnaðist á árum áður.“
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Örvar aðstoðaði bændur í Austurhlíð í Tungunum í sauðburði. Mynd / ghp
Samrýnd fjölskylda gengur Laugaveginn. Össur Anton, Guðrún Árdís Össurardóttir, Andrea og Örvar sem heldur
á Örvari Gauta. Á myndina vantar elstu dótturina, Kristínu Heklu. Mynd / Einkasafn
Í ársbyrjun hóf Örvar Þór Ólafsson störf sem fjármálastjóri hjá
Bændasamtökum Íslands. Hann tók við af Gylfa Þór Orrasyni, sem
hafði starfað fyrir samtökin í tæp 40 ár. Hann telur samtökin vera á
spennandi tímamótum þar sem tækifæri eru til að sækja fram og efla
landbúnaðinn gegnum hin sameinuðu samtök.
Maður hefur oft
verið í samskiptum
við bændur í þessu
fjallabrasi og þurft að
leita ráða hjá þeim ...“