Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Búnaður
• Fjaðrandi framhásing (hægt að læsa)
• Fjaðrandi hús með loftkælingu
• Loftpúðafjöðrun á ökumannssæti
og farþegasæti bólstrað
• Fjaðrandi ámoksturstæki 3x65 með hraðtengi
og 3 sneiðum að framan
• Stýripinni fyrir ámoksturstæki í armpúða
með hraðastilli
• Fjaðrandi beisli að aftan, rofar á bretti
og hægt að forrita
• 3 sneiðar að aftan
• Framdrif, hægt að hafa sjálfvirkt eða alltaf á
• Driflæsingar, bæði hægt að hafa sjálfvirkar og fastar
• Úrhleypibúnaður á dekkjum og loftdæla
• Bremsutengi fyrir aftanívagn
• Live PTO 540 /540E/1000 (sér hraði óháður hraða
dráttarvélar )
• Útskjótanlegur krókur
• Útvarp með CD/MP3
• Handfrjáls búnaður
• 10 vinnuljós
• Dekk framan 440/65R24 og aftan 540/65R34
Trekkiborg TM800 (má hleypa lofti úr)
• Veltistýri
Ekin aðeins 170 tíma
Verð: 13.990.000 kr. án vsk.
Fendt dráttarvél
til sölu
M
eð fyrirvara um
m
ynd- og textabrengl.
211 S Vario
• Hestöfl: 111 PS
• Tork: 463 Nm
• Sjálfskipt Vario TMS C267
• Með stýripinna og petala
• Án AdBlue
• Hraðastillir
Nánari upplýsingar í síma 841 9991
Orðsins list kemur að þessu sinni frá Hákoni Aðalsteinssyni, skáldi
og skógarbónda í Fljótsdal. Hann fæddist árið 1935 í Vaðbrekku
í Hrafnkelsdal og lést 2009.
Hákon var landsþekktur hagyrðingur og
skáld og sendi frá sér sjö bækur, þar af
þrjár ljóðabækur.
Á byggingartíma
Kárahnjúkavirkjunar
fór Hákon til Noregs
og flutti konungi
drápu til varnar náttúru
Íslands, sem honum
var mjög kær. Sigurdór
Sigurdórsson skráði
æviminningar hans
1997. Hákon segir í
formála að ljóðinu
Skáldaraunum, sem birtist í ljóðabók hans
Bjallkollu* 1993, að fyrir þann sem langi til
að verða skáld sé nauðsynlegt að velja sér réttan vettvang til að yrkja á.
„Eins og kvæðið ber með sér er sýnilegt að það er ekki samið á réttum
stað,“ segir hann og klykkir út með að „skyldu menn ætíð gæta að
umhverfi sínu og félagsskap áður en þeir reyna að skapa gullkorn í
íslenskar bókmenntir.“
Skáldaraunir Hákonar
LÍF&STARFLANDBÚNAÐUR Í SKÁLDSKAP
Skáldaraunir
Glitra daggir glampa vogar
gullnum bjarma slær á hafið
í mildum skýjum morgunn logar
merlar fagurt litatrafið.
Sólin dreifir ljúfu ljósi
logagyllir fjallakórinn
aleinn staddur úti í fjósi
er ég nú að moka flórinn.
Þetta er fagur dýrðardagur
drottni verður hann til sóma
heyrist söngur fugla fagur
flugur svífa milli blóma
lifnar allt í laut og bala
litir skýrast móa og túna
beljusvínið blautum hala
barði mig á kjaftinn núna.
Upp til heiða fuglar fljúga
fyllist loftið vængjaþytnum
augun varla ætla að trúa
ægifögrum morgunlitnum
breiðir úr sér gróður gjöfull
gott er nú við heimskautsbauginn.
Nú fór illa dauði og djöfull
þar datt ég beint í skítahauginn.
Austurland:
Bókaútgáfa Félags
ljóðaunnenda
Félag ljóðaunnenda á Austurlandi
var stofnað árið 1996 og innan
skamms urðu félagarnir yfir eitt
hundrað að tölu en það hefur haldist
nær óbreytt síðan.
Segir formaðurinn, Magnús
Stefánsson, frá því að þarna hafi
orðið til sameiginlegur vettvangur
ljóðaunnenda og skálda. Félagið
hefur verið hugsað sem sameiginlegur
vettvangur höfunda og annarra
ljóðaunnenda þar sem félagsmenn eru
hvattir til, og studdir í, að gefa út eigin
verk enda ljóðahefð Austfirðinga sterk.
Fyrsta bók hins nýja ljóðafélags,
Raddir að austan – Ljóð Austfirðinga,
var útgefin árið 1999, en þar má
finna ljóð og lausavísur eftir 122
austfirska höfunda sem allir voru á
lífi við útkomu bókarinnar. Tveimur
árum síðar hóf félagið útgáfu á flokki
ljóðabóka sem ber nafnið Austfirsk
ljóðskáld og hefur útgáfan haldist
árlega nú í rúm tuttugu ár.
Sú nýjasta kom út sl. haust,
Öræfanna andar svífa, en þar má
finna úrval ljóða fjögurra systkina
frá Heiðarseli í Jökuldalsheiði. Bók
númer 23 er í undirbúningi, ljóð
Iðunnar Steinsdóttur frá Seyðisfirði.
Magnús segir frá því að fljótlega
hafi framboðið aukist verulega,
ljóðahandrit orðið fleiri en komust að
í flokknum og félagið fór að gefa út
það sem þau nefni „aukabækur“. Svo
skemmtilega vill til að þær eru líka
orðnar 22 talsins og félagið þá alls
gefið út 44 bækur.
Erfitt sé þó að láta sölu ljóðabóka
standa undir útgáfukostnaði en
félagið njóti góðs af styrkjum. Má
þar nefna Uppbyggingarsjóð Austur-
lands, sem hefur styrkt útgáfuna
mörg síðustu ár, auk sveitarfélaga
á Austurlandi. Félagar greiði ekki
eiginlegt félagsgjald heldur kaupa eitt
eintak af bókum í flokknum Austfirsk
ljóðskáld og gera þannig félaginu
kleift að halda bókaútgáfunni áfram.
Auk bókar systkinanna frá
Heiðarseli voru nýverið gefnar út
bækurnar Söngvar norðursins, eftir
Grænlendinginn Knud Rasmus-
sen, í þýðingu Björns Ingvarssonar.
Var Knud þekktur fyrir heim-
skautsleiðangra sína og rannsóknir
á norðurslóðum enda afar sterk
tenging við náttúruna einkennandi í
verkum hans.
Einnig var gefin út bókin Ekkert
eitt eftir Söndru Ólafsdóttur, sem hefur
skrifa sig í gegnum erfiðar tilfinningar
úr myrkri í ljós. /SP
Tvær þriggja nýútgefinna bóka
sem fjallað er um.
Fallegt íslenskt handverk var
í lykilhlutverki á lokaathöfn
leiðtogafundar Evrópuráðsins á
dögunum.
Þá færði Þórdís Kolbrún Reyk-
fjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra
Edgar Rinkēvič, utanríkisráðherra
Lettlands, útskorinn fundarhamar og
þar með tóku Lettar við formennsku
í ráðinu af Íslandi.
Handverkið er eftir Sigríði
Kristjánsdóttur, Siggu á Grund eins
og hún er alltaf kölluð.
„Þetta var mjög skemmtilegt
og krefjandi verkefni, sem ég er
stolt af. Það fóru 80 klukkutímar í
verkið, sem var mjög skemmtilegt
og gefandi. Ég notaði peruvið
í hamarinn,“ segir Sigga, sem
skar einnig út fundarhamar fyrir
Alherjarþing Sameinuðu þjóðanna
árið 2005. „Það er alltaf meira en
nóg að gera hjá mér enda er ég alltaf
að fá ný og ný verkefni í hendurnar.
Nú er ég að vinna skemmtilegt
verk, sem hvílir leyndardómur yfir,
ég má alls ekki segja hvað það er,“
segir Sigga hlæjandi og bætir við:
„Ég sker út á meðan ég get, þetta
er svo skemmtilegt og gefur mér
mikið,“ segir Sigga, sem verður 79
ára þann 30. maí. /MHH
Sigga á Grund:
Fundarhamar úr peruvið
Sigga á Grund í Flóahreppi er einn færasti listamaður þjóðarinnar. Hún hefur
til dæmis skorið út allar gangtegundir íslenska hestsins. Mynd /MHH
Frá afhendingu hamarsins.
Mynd / Utanríkisráðuneytið
Hákon Aðalsteinsson
skáldbóndi, 1935-2009.
*Bjallkolla er ávalur hryggur syðst á Þrívörðuhálsi,
sem er austan við Sænautavatn í N-Múlasýslu.