Bændablaðið - 25.05.2023, Page 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Þetta er árstíminn þegar flestir
bændur eru að setja út kvígurnar
sínar og oft eru þær settar í
úthaga, sem er í fínu lagi ef þær
komast þar í nógu orkumikla beit.
Kvígurnar eru framtíðin
fyrir búið, peningavélar búsins
í framtíðinni, og því þarf að hlúa
sérstaklega vel að þeim frá fæðingu
og fram að fyrsta burði.
Auðvitað á að hlúa vel að þeim
alla tíð, líka eftir að þær eru orðnar
að kúm, en flestir þekkja þó líklega
vel hvað sterkt uppeldi getur skipt
miklu máli þegar horft er til bæði
endingar og hagkvæmni kúa.
Markmið búsins
Allir kúabændur ættu að setja sér
skýr markmið þegar kemur að
uppeldi á kvígum, hvenær þær eiga
að ná nægum þroska svo hægt sé að
sæða þær o.s.frv. Í dag er bændum
ráðlagt að miða við að kvígur beri
22-23 mánaða og til að ná því þurfa
þær því að verða kynþroska snemma.
Það getur vissulega verið einhver
munur á kvígunum þegar kemur að
kynþroska, en kynþroski og vöxtur
eru sterkt tengdir eiginleikar og því
er oftast miðað við að ná ákveðnum
þunga eða stærð á ákveðnum aldri
þegar miðað er við að kvígur séu
tilbúnar til fyrstu sæðingar. Fóðrunin
hefur því mikil áhrif á það hve fljótt
kvígurnar verða kynþroska og eftir
því sem eldið er kraftmeira vaxa þær
hraðar og fara því fyrr að ganga.
Ef þær verða kynþroska snemma,
en vöxtur hefur samhliða ekki verið
góður, verða þær aftur á móti of
litlar þegar þær bera og þurfa að
nýta fyrsta mjaltaskeiðið í meiri
vöxt en ella. Þetta kemur þá beint
niður á nyt þeirra.
Stöðugur vöxtur mikilvægur
Það er alþekkt að það getur komið
afturkippur í vöxt hjá kvígum
sem eru settar út og það er einkar
bagalegt enda á vöxtur þeirra að
vera jafn og hraður fram að burði
svo þær séu tilbúnar til sæðingar
12-13 mánaða gamlar svo þær beri
nógu snemma að jafnaði, þar sem
ekki allar halda við fyrstu sæðingu.
Frá tímabilinu eftir að mjólkur-
fóðrun lýkur og fram að fyrstu
sæðingu ættu kvígurnar að þyngjast
um þetta 700-900 grömm á dag, en
til þess að svo verði þarf fóðrunin
að vera góð og rétt jafnvægi á milli
orku, próteins og steinefna. Oftar
en ekki fá kvígur næga orku úr
gróffóðrinu, en ekki er þó víst að
þær fái nóg prótein eða steinefni.
Að þessu þarf því að huga
sérstaklega þegar þær eru á beit
og oft jafnvel fjarri útihúsum og
því ekki fyrir augum ábúenda
jafn oft og kýrnar. Það þarf því að
skipuleggja beit kvíganna vel og
sér í lagi eigi að sæða þær á þessu
tímabili.
Venja rólega við
Til þess að ekki komi afturkippur
í vöxtinn er mikilvægt að þegar
kvígurnar eru settar út á beit þá
séu þær vandar við, þ.e. vambar-
starfsemin vanin við nýtt fóður.
Því er ráðlegt að hafa þær til að
byrja með í hólfi þar sem auðvelt er
að fylgjast með þeim og venja þær
þar við beitina samhliða gjöf, svo
fóðurbreytingin verði ekki of hröð.
Þó allt takist eins vel og hægt
er þarf ekki að koma á óvart að
kvígurnar léttist aðeins í upphafi,
það á sér eðlilegar skýringar s.s.
vegna aukinnar hreyfingar og atferlis
en fóðurskiptin sem slík hafa nánast
alltaf áhrif á vöxtinn líka.
Flokka eftir stærð
Til þess að ná hámarksárangri af
beitinni má ekki vera með of ólíka
hópa af kvígum, þ.e. stærðarlega
séð. Þær ætti því að flokka eftir
stærð þegar þær eru settar út og
ef einhver kvíga er lítil miðað við
jafnöldrur sínar á hún að vera í
flokki með yngri kvígum. Þetta
er gert til þess að tryggja öllum
kvígum sem jafnast aðgengi að
þeim gæðum sem aðgengileg eru.
Eldri kvígur, sem hafa fest fang,
geta svo verið sér en þetta er sá
hópur sem má hafa á heldur slakari
beit ef þörf krefur. Beitin þarf þó
samt sem áður að vera góð enda eru
þær bæði að vaxa og þroska fóstur
en áherslan á daglega þyngdar-
aukningu á þessu stigi má víkja
að hluta til, ef ekki er um aðra kosti
að ræða.
Próteinið þarf að tryggja
Beitin er eðlilega misgóð eftir
ástandi hagans, gróðursamsetningu
og -þroska auk áburðargjafar.
Það á því að skipuleggja beitina
vel og stýra henni, eigi að nást
hámarksárangur og réttur vöxtur
á kvígunum.
Eins og fyrr segir þarf að tryggja
að próteinið sé nægt á móti orkunni,
en alls ekki má gleyma stein-
og snefilefnunum enda fylgist
að aukin þörf fyrir þau ef tekist
hefur að gefa kvígunum orku- og
próteinríka beit. Bætiefnin má
gefa með ólíkum hætti og finnast
margar leiðir til þess og þá ættu
gripir á beit alltaf að hafa aðgengi
að saltsteinum að auki.
Fyrir yngri gripi má íhuga að
gefa þeim kjarnfóður með beitinni,
ef efasemdir eru um að beitin sé ekki
nógu góð, enda er vambarstarfsemi
þeirra afkastaminni en eldri gripa
og má því litið út af bera ef halda á
fast í kröfuna um öran líkamsvöxt.
Heggur er blómstrandi tré af
rósaætt og náskyldur kirsu-
berjatrjám. Í raun má segja að
heggur sé beinlínis kirsuberjatré
enda ættkvíslarheitið það sama.
Gallinn við kirsuberin á
heggnum er þó sá að aldinið utan
á fræhylkinu eða steininum er
mjög lítið. Því eru þessi ber ekki
þægileg undir tönn. Þau eru raunar
líka beiskari en þau kirsuber sem
vinsælust eru til átu enda hefur
heggur ekki verið kynbættur með
bragðgæði berjanna í huga.
Aðra kosti hefur heggur hins
vegar marga. Hann er hraðvaxta
fyrstu árin en fer þó snemma
að blómstra og þá dregur úr
hæðarvextinum. Á haustin prýðist
hann svörtum berjum. Hérlendis
ætti heggur að geta náð að minnsta
kosti tíu metra hæð ef honum er
leyft að vaxa upp sem einstofna
tré. Gjarnan er hins vegar sóst
eftir því að heggur breiði úr sér
sem stór, margstofna runni frekar
en tré enda verður blómskrúðið
meira eftir því sem plantan er
marggreindari og víðfeðmari.
Heggur er nefnilega mjög
blómviljugur og gjarnan
blómstrar hann ríkulega á hverju
ári. Tegundin á uppruna sinn á
breiðu belti frá Mið- og Norður-
Evrópu austur til Asíu allt til Kína,
Kóreu og Japans. Hann er jafnvel
að finna á afmörkuðum svæðum í
Suður-Evrópu og Norður-Afríku,
í Himalaja-fjöllum og víðar.
Hérlendis þrífst hann vel og er
mjög harðgerður ef ræktuð eru
kvæmi frá t.d. Norður-Noregi.
Suðlægari kvæmi henta einkum
á sunnanverðu landinu. Heggur
þarf þó alltaf rakan og frjósaman
jarðveg til að þrífast vel.
Á Íslandi hefur heggur lengi
verið notaður í garðrækt en
tvímælalaust má mæla með
aukinni ræktun hans í stálpuðum
skógum, einkum til fegrunar
á skógarjöðrum, við vegi og
heimreiðar, í rjóðrum og við
áningarstaði í skógum. Þar
nýtur hann sambýlis við aðrar
trjátegundir. Rétt er að velja
honum sólríka staði þar sem hann
er líklegastur til að blómstra vel.
Og jafnvel þótt okkur mennina
langi ekki í berin af honum gæða
fuglar sér á þeim og þannig styður
heggur við fuglalífið í skóginum
og nágrenni hans. Auk þess að
gróðursetja hegg sem stök tré í
bland við aðrar tegundir er ekki
er úr vegi að gróðuretja hann í
lundum í frjósömu landi. Hann
þolir vel vindálag og frost á
óheppilegum tímum.
Blóðheggur er rauðblaða
afbrigði af hegg sem fannst
í gróðrarstöðinni Fagerhult
í Smálöndunum í Svíþjóð
snemma á síðustu öld. Allur
blóðheggur er væntanlega
kominn af því eina tré. Rauði
liturinn stafar af stökkbreytingu
í genamengi trésins en kemur
líka fram í blómum hans sem
hafa tilkomumikinn bleikan
lit. Blóðheggur hefur talsvert
verið ræktaður hérlendis og er
ekki síður harðger en sá græni.
Meindýr virðast jafnvel hafa
heldur minni lyst á honum en
venjulegum grænum hegg. Ekki
er að sjá að rauði liturinn hamli
vexti blóðheggs miðað við grænan
hegg. Til veikleika tegundarinnar
má helst telja hættu á kali hjá
suðlægum kvæmum og stundum
herjar á hann sveppsjúkdómur
sem kemur í veg fyrir eðlilegan
þroska berja. Tjón af völdum
meindýra er sjaldan verulegt.
Margir lesendur kannast ef til
vill líka við annan rauðleitan hegg,
svokallaðan virginíuhegg. Hann
er reyndar stökkbreytt afbrigði
annarrar heggtegundar norður-
amerískrar, Prunus virginiana. Á
rauðum virginíuhegg vaxa blöðin
út græn á litinn en verða smám
saman rauð. Eftir því sem líður
á sumarið og nývöxtur minnkar
dregur úr hlutfalli grænna blaða
og tréð verður æ rauðara á litinn.
Liturinn á rauðum virginíuhegg
er enn dýpri og tilkomumeiri en
á blóðhegg, sérstaklega þar sem
hann nýtur vel sólar.
Óhætt er að mæla með aukinni
ræktun á hegg vítt og breitt um
landið, bæði í görðum og skógum,
hvort sem liturinn er grænn eða
rauður. Þótt hann verði hins vegar
seint til timburnytja að ráði, er
viðurinn bæði harður og oft
með fagurlitaðan kjarna og því
gætu eldri tré gefið spennandi
efnivið til minni háttar smíða og
handverksiðju.
Pétur Halldórsson.
Heggur
(Prunus padus)
Á blóðhegg verða blómin fagurbleik. Myndir / Pétur Halldórsson
LANDGRÆÐSLA Á FAGLEGUM NÓTUM
Hvít blóm á venjulegum hegg.
Kvígubeit
Þetta er árstíminn þegar flestir bændur eru að setja út kvígurnar sínar. Mynd / Jón Eiríksson
Sem merki um að gæði vatns eiga að vera slík að bóndinn vilji sjálf(ur)
drekka vatnið. Mynd /Ritvik Singh
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com