Bændablaðið - 25.05.2023, Síða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
KRÓATÍA
Lúxus gisting nærri
hinni fornfrægu
Dubrovnik
Nánar: info@agtravel.is
perlan við blátært
Adríahafið
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
GRÓÐURHÚS ÚR ÁLI
Tryggðu þér gróðurhús fyrir sumarið!
BRAGGA GRÓÐURHÚS
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
571-3535
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Margar gerðir gróðurhúsa - fást í ál lit, svörtu og
grænu. 4 mm hert öryggisgler - stál styrkingar
Breiddir húsa frá 3m og upp í 7m.
Stálboga gróðurhús með ylplasti
516-2600
vorukaup@vorukaup.is
• Loft í loft
• Loft í vatn
• Vatn í vatn
Eftirlit með vexti
Það er alls ekki auðvelt að fylgjast
með vexti á kvígum á beit og það er
ekki hægt að gera einungis sjónrænt.
Það ætti því að vera til staðar
aðstaða, tökubásar eða læsanlegar
átgrindur svo dæmi sé tekið, svo
það megi fanga kvígurnar svo unnt
sé að taka brjóstmálið á þeim, þ.e. ef
ekki er hreinlega til staðar sérstakur
vigtarbúnaður. Það er gott samræmi
á milli þunga og brjóstmáls gripa
og sé það mælt þegar kvígurnar eru
settar út, liggur grunnlínan fyrir.
Svo má setja sér reglu um að ná
að mæla einhverjar þeirra reglulega
yfir beitartímabilið, ekki endilega
allar og ekki endilega sömu aftur
og aftur, til að fylgjast með ætlaðri
þungaaukningu. Ef hún stefnir ekki
í nógu rétta átt þarf auðvitað að
bregðast við.
Vatnið
Eins og fyrr segir þá þurfa kvígur
í vexti á gríðarlega góðu fóðri
að halda, eigi þær að halda örum
vexti allt frá fæðingu og að burði.
Svo þetta geti átt sér stað þarf allt
í senn að vera til staðar: rétt magn
og hlutfall næringarefna, steinefna,
vítamína og góður aðbúnaður. Til
viðbótar má hér nefna sérstaklega
vatnið. Það er stórmunur á því hve
mikið vatn nautgripir drekka, eftir
gæðum þess.
Nautgripir geta auðvitað lifað
með því að svolgra í sig óhreint
vatni en það er ekki fyrsta val þeirra,
þ.e. ef þeir hafa val. Þegar ég hef
verið að heimsækja og ráðleggja
bændum víða um heim þá hef ég
yfirleitt sagt þeim frá mjög einfaldri
þumalfingursreglu sem gott er að
hafa í huga þegar kemur að gæðum
vatns fyrir nautgripi. Ef bóndinn
treystir sér til að drekka vatnið, þá
er það nógu gott fyrir nautgripina!
Einfalt í raun. Ef þessu er fylgt,
og magnið af vatninu er nægjanlegt
og gripurinn getur nálgast það á
tveimur ólíkum stöðum, þá hefur
öllum skilyrðum verið fylgt.
Benda má á að fræðast má nánar
um framangreint efni t.d. í bókinni
Nautgriparækt, sem er aðgengileg
á vef Bændasamtakanna.
Til að fylgjast með vexti gripanna er einfalt að mæla brjóstmálið vegna fylgni
á milli þunga og brjóstmáls.
VÖRU
SKEMMA
TIL SÖLU
klaustur.is
Skemman hefur aldrei verið reist og er
seld í því ástandi sem hún er í. Um er að
ræða um 540 fm vöruskemmu keyptri
hjá H. Haukssyni ehf.
Skemman verður afhent að Iðjuvöllum
10, Kirkjubæjarklaustri.
Skaftárhreppur tekur sér rétt að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Skemman verður seld með öllu því sem
henni tilheyrir ásamt teikningum sem
liggja fyrir.
Skaftárhreppur óskar eftir tilboðum í vöruskemmu
sem keypt var til notkunar sem sorpflokkunarstöð.
Nánari upplýsingar
Einar Kristján Jónsson, sveitarstjóri
í síma 842 5800.
Tilboð berist fyrir 16. júní nk.
Tilboðum skal skilað í lokuðu umslagi á skrifstofu
Skaftárhrepps, fyrir 16 júní 2023:
Tilboð skulu merkt: Vöruskemma, ásamt nafni
bjóðanda og fullu heimilisfangi.
Það sem fylgir með er eftirfarandi:
• Sökkulfestingar, málað stálburðarvirki með ásoðnum
festingum, timbur í langbönd, boltar og skrúfur, litað
þak- og veggstál, saumur/skrúfur til að festa stálið,
kjöljárn, hornlistar og slétt stál í áfellur kringum glugga
og hurðir. Undir stálklæðninguna borðaklæðning +
þakpappi á þak og krossviður á veggi.
• Teikningar þ.e. sökkulteikning og byggingarnefndar-
teikning (útlit og snið + stálburðarvirkisteikning (ekki
lagnir og rafmagn).
• 150 mm þykk einangrun í þak og í veggi, þolplast og lituð
stálklæðning innan á loft og á vegg.
• Fjórar aksturshurðir frá Héðni.
• Álgluggar og hurðir frá Gluggalausnum.
• Steypust.net, kambstál 12 og 10 mm.