Bændablaðið - 25.05.2023, Side 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
LESENDARÝNI
Rökin fyrir frjálsum
handfæraveiðum
Strandveiðitímabilið hófst
2. maí sl. í fimmtánda sinn
frá því strandveiðum var
komið á í núverandi mynd.
Einungis 10.000 tonn af þorski
eru í strandveiðipottinum á
veiðitímabilinu, sem stendur í 48
daga frá maí til ágúst.
Líklegt er
að veiðum
verði hætt fyrr
og veiðidagar
verði færri en
48 vegna skorts
á aflaheimildum.
H l u t f a l l
s t r a n d v e i ð a
af leyfilegum
h e i l d a r a f l a
þorsks nemur tæpum fimm
prósentum. Strandveiðar, þótt
takmarkaðar séu, hafa sannað
gildi sitt. Þær eru hagkvæmar og
hafa reynst vel fyrir hinar dreifðu
sjávarbyggðir og yfir sumartímann
hleypt auknu lífi í brothættar
byggðir víða um land. Auk þessa
gefið fjölbreyttum hópi sjómanna
atvinnufrelsi og tækifæri til
handfæraveiða.
Smábátaútgerð hefur spornað
gegn samþjöppun og komið í veg
fyrir að fjölbreyttur sjávarútvegur
legðist af á landsbyggðinni.
Strandveiðar eru umhverfisvænar,
þær valda minnstu raski í hafrýminu,
hafa minnsta kolefnissporið og
hámarka verðmæti aflans.
Markmið fiskveiðistjórnunarlaga
hafa ekki náðst
Markmið laga um fiskveiðistjórnun
er að stuðla að verndun og
hagkvæmri nýtingu nytjastofna á
Íslandsmiðum og tryggja með því
trausta atvinnu og byggð í landinu.
Kvótakerfinu var komið á til þess
að vernda íslenska fiskistofna
fyrir ofveiði.
Sé litið til markmiðsins um
verndun þá hefur árangurinn ekki
leitt til uppbyggingar fiskistofna.
Kvótakerfinu var komið á fót til
bráðabirgða árið 1984. Aflamark í
þorski var þá lækkað í 200.000 tonn
til að byggja upp þorskstofninn.
Það eru sömu veiðiheimildir og í
dag. Hafrannsóknastofnun lagði
til að afli fiskveiðiárið 2022/2023
yrði ekki meiri en 208.846 tonn.
Mikil nákvæmni það. Gríðarlegar
tæknibreytingar sl. 40 ár hafa einnig
leitt til mikillar hagkvæmni. Líklegt
er að þær haldi áfram og verði enn
hraðari á næstu árum.
Segja má að kvótakerfið hafi
einnig leitt til hagkvæmni með
samruna fyrirtækja í greininni.
Ríkið gerði aldrei kröfu eða skapaði
skilyrði fyrir hagræðingu innan
greinarinnar fyrir daga kvótans.
Árum saman var gengi íslensku
krónunnar fellt þegar útgerð stóð illa.
Útgerðarstjóri fór til þingmanns, sem
fór til ráðherra og seðlabankastjóri
felldi gengi íslensku krónunnar.
Frekar var þjóðin gerð fátækari sem
nam gengisfellingu en krafa væri um
hagræðingu. Hún kemur ekki fyrr en
með kvótasetningu.
Markmiðin um að tryggja traust
atvinnu og byggð í landinu hafa ekki
náðst í þeim sjávarbyggðum þar sem
kvótaeigandi er ekki með útgerð.
Staða hinna dreifðu sjávarbyggða
staðfestir það. Sjávarbyggðum
hefur hnignað og íbúum fækkað.
Þessi þróun mun halda áfram verði
nýtingarréttur sjávarbyggðanna ekki
viðurkenndur. Það er viðurkenning
á atvinnufrelsi og búseturétti í
sjávarbyggðum landsins.
Vissulega hefur fiskeldi styrkt
byggð víða sem ný atvinnugrein og
er mikilvæg viðbót. Ferðaþjónusta
er það einnig yfir sumartímann og
eykur fjölbreytni í atvinnulífi. Það
breytir því ekki að sjávarútvegur
er sérstaklega mikilvægur fyrir
atvinnu og grundvöllur byggðar
víða á landsbyggðinni og í
sjávarbyggðunum.
Viðurkenna þarf að afla
hámarkskerfið hefur hvorki skilað
þeim markmiðum sem lög um
fiskveiðistjórnun stefna að né þeim
árangri sem vonir stóðust til. Einnig
þarf að viðurkenna réttmæti gagnrýni
á hafrannsóknir og veiðiráðgjöf og
gera umbætur.
Strandveiðikerfið tryggir ekki
jafnræði og atvinnufrelsi
Núverandi strandveiðikerfi með
48 veiðidögum og litlum afla
heimildum var sett á í kjölfar álits
Mannréttindanefndar Sameinuðu
þjóðanna frá 2007. Álitið sagði
að stjórnkerfi fiskveiða bryti á
jafnræði borgaranna samkvæmt
alþjóðasamningi um borgaraleg og
stjórnmálaleg réttindi.
Strandveiðikerfið í núverandi
mynd tryggir ekki jafnræði
borgaranna. Til þess eru takmarkanir
á veiðunum of miklar og meiri
en nauðsyn krefur. Gæta verður
meðalhófs við að ná því markmiði
sem stefnt er að, sem er verndun
fiskistofna, og réttlæta takmarkanir
á atvinnufrelsi. Takmarkanir á
atvinnufrelsi þarf að byggja á því að
veiðar ógni fiskistofnum. Verndunin
þarf að ná til veiðarfæra sem ógna
fiskistofnun, ekki þeirra sem
ekki ógna þeim. Handfæraveiðar
með nokkrum önglum á bát
gera það ekki. Þegar kemur að
handfæraveiðum gengur skerðingin
því lengra en nauðsyn krefur.
Handfæraveiðar á smábátum búa
einnig við náttúrulegar takmarkanir
vegna veðurs og sjólags. Þetta
auk lögbundinna frídaga ættu að
vera nægar takmarkanir stóran
hluta ársins.
Núverandi ríkisstjórn hefur
gengið mjög gegn hagsmunum
strandveiða og sjávarbyggðanna.
Fyrsta verk sjávarútvegsráðherra
VG var reglugerðarbreyting um
að skerða þorskveiðiheimildir til
strandveiða sumar 2022. Breytingin
var á reglugerð sem hafði tekið gildi í
ágúst 2021 – rétt fyrir kosningar – en
með henni eru þorskveiðiheimildir
skertar um 1.500 tonn. Aflaheimildir
lækkuðu með því úr 10.000 tonnum
í 8.500. Byggðakvótinn var einnig
lækkaður um 874 tonn, úr 4.500
tonnum í 3.626 tonn. Hér var um
umtalsverða skerðingu að ræða, sem
fór þvert gegn kosningaloforðum
VG í Norðvesturkjördæmi.
Stjórnvöld hafa ekki tryggt
strandveiðikerfinu nægjanlegar
aflaheimildir til að tryggja 48
veiðidaga. Í fyrra var veiðum
hætt 21. júlí sl. vegna skorts á
aflaheimildum. Líklegt er að svipað
verði upp á teningnum í ár.
Sátt í samræmi við markmið
fiskveiðistjórnunarlaga og
réttarvitund almennings
Rétturinn til handfæraveiða
er ævaforn og á styrka stoð í
réttarvitund almennings. Í Jónsbók
frá 1281, lögbók Íslendinga í
árhundruð, segir: „Allir menn eigu
at veiða fyrir utan netlög at ósekju.“
Kvótakerfið var sett til verndar
fiskistofnum og á því að ná til þeirra
veiðiaðferða og veiðarfæra sem ógna
fiskistofnunum. Handfæraveiðar
með önglum ógna ekki fiskistofnum
og ber því að gefa þær frjálsar.
Rökin fyrir núgildandi takmörkun
handfæraveiða eru því ekki fyrir
hendi og ættu að vera fyrir utan
kvótasetningu. Handfæraveiðar
gefa góðar upplýsingar um ástand
fiskistofna við strendur landsins sem
ætti að nýta betur.
Auka þess að ógna ekki fiski
stofnum og vera hagkvæmar þá
myndu frjálsar handfæraveiðar
stuðla mjög að því að tryggja trausta
atvinnu og byggð í landinu, líkt og er
markmið fiskveiðistjórnarlaganna.
Er hér átt við byggð í sjávarbyggðum
landsins, sem margar hverjar eru
brothættar. Auknar strandveiðar
myndu styrkja mjög stoðir hinna
dreifðu byggða landsins með
sjálfstæðum smáútgerðum, hleypa
nýju lífi í hnignandi sjávarbyggðir
og styrkja fjölbreytt útgerðarform í
sjávarútvegi.
Baráttan fyrir frjálsum
handfæraveiðum er réttindabarátta.
Þetta er barátta fyrir jafnræði og
atvinnufrelsi en takmarkanir á
atvinnufrelsi mega ekki ganga
lengra en nauðsyn krefur. Þetta
er einnig barátta fyrir búseturétti
í sjávarbyggðum landsins, sem
byggist á atvinnufrelsinu.
Sjávarbyggðirnar hafa byggt
tilvist sína á fiskveiðum og aðgengi
að fiskimiðunum. Þetta er barátta
fyrir jöfnum búseturétti og rétti íbúa
sjávarbyggðanna á landsbyggðinni,
þar sem byggð hefur alla tíð byggst
á fiskveiðum. Hægt er að tryggja
þennan rétt með eflingu strandveiða
án þessa að ógna fiskistofnum
við landið.
Ef vilji er til að ná sátt um
fiskveiðistjórnarkerfið þá mun sú
sátt felast í sanngjörnu veiðigjaldi
og aðgengi að fiskveiðiauðlindinni
með frelsi til handfæraveiða
með náttúrulegum og eðlilegum
takmörkunum.
Mikilvægt er að koma á breytingum
á fiskveiðistjórnunarkerfinu í átt að
réttlæti fyrir alla þjóðina og allar
byggðir landsins sem byggja á
jafnræði og atvinnufrelsi. Það verður
einungis gert með því að virða rétt
almennings til handfæraveiða við
Íslandsstrendur.
Eyjólfur Ármannsson,
alþingismaður fyrir Flokk
fólksins í Norðvesturkjördæmi.
Eyjólfur
Ármannsson.
Bygg á uppruna sinn fyrir botni
Miðjarðarhafs þar sem það
vex villt í högum Frjósama hálf-
mánans, vöggu siðmenning ar-
innar. Einmitt þar var bygg tekið
til ræktunar (e domestication).
Sem atvikaðist sennilega þannig
að nokkur strá í víðfeðmum
engjum felldu ekki fræin.
K o r n i ð
sat fast í
axinu, stökk
breyting, sem
gerði fólki
sem átti leið
um auðvelt
með að safna
korninu og
taka með heim. Þessi eiginleiki
er plöntunum til trafala í
náttúrunni þar sem fræ þeirra
dreifast síður með vindi. En fyrir
tilstuðlan mannsins dreifðist það
enn víðar en nokkru sinni fyrr
var mögulegt. Upp frá þessu
hófst sambýli mannfólksins og
byggs sem varir enn og saman
dreifðust tegundirnar um alla
jörðina. Án hvert annars gátu
þau ekki verið.
Bygg var notað eins og
annað kornmeti en vék fljótt
fyrir hveiti. Bygg reyndist
þó hið besta korn til bruggs.
Sem slíkt var bygg notað
sem gjaldeyrir til forna og
var þrælunum sem byggðu
pýramídanna í Gísa greitt með
byggi til bjórgerðar.
Það er auðvelt að ímynda sér
hvernig bygg sem gleymdist
blautt í skjólu súrnar og varð
að áfengri súpu. Súpu sem
fólk lagði allt kapp á að bæta
til þess að kalla mætti bjór.
Með tímanum jukust kröfur til
byggs til bjórgerðar og eru í dag
strangar.
Til þess að bygg verði að
bjór þarf að malta það. Allt malt
er bygg en ekki allt bygg verður
malt. Um 15% alls byggs í
heiminum verður malt en rest
er fóður fyrir húsdýr.
Maltferlið er í sjálfu sér
einfalt, kornið er látið spíra og
prótín í fræinu umbreyta sterkju
í sykrur nefndar maltósi sem
er svo aðgengilegur gersvepp
sem nærist á sykrunum en
myndar etanól sem aukaafurð
í hjáverkum.
Til þess að hámarka afköst
og einsleitni bjórs úr brugg
húsum þarf maltið að vera af
hæstu gæðum. En það næst ekki
nema byggið sé einnig af hæstu
gæðum. Sömuleiðis þurfa
malthús að hámarka afköst og
einsleitni maltsins.
Margir eiginleikar eru
til úrvals þegar ákvarða á
hvort bygg geti orðið malt.
Helst þarf kornið að vera
sterkjuríkt, og ekki of prótínríkt,
þúsund kornaþyngd þarf að
vera há og kornið einsleitt í
stærðarflokkun. Algengt er að
aðeins tvíraða korn sé ræktað
til maltframleiðslu, sökum þess
að fá korn gildna í axinu sem
hækkar þúsundkornaþyngdina
og færri smá korn myndast.
Spírunarhlutfall þarf að
vera meira en 95% og vera
jafnspírandi. Meðan á þróunar
skeiði byggs stóð, spratt það
upp eftir rigningartíð og lá svo
sólbakað á jörðinni fram að
næsta rigningarskeiði. Til þess
að tryggja að kornið spíri ekki
fyrir næsta rigningartímabil
þurfti þurrk og hita til að rjúfa
frædvala kornsins.
Dæmi eru um eiginleika
sem eru korninu gagnslausir
á norðurslóðum nema fyrir
tilstuðlan fólksins sem þurrkar
kornið með vélrænum hætti.
Bygg spírar ekki nema það
upplifi hita og þurrk. Einkenni
sem seint verða notuð til að
lýsa íslensku hausti. Bygg
tapar spírunarhæfni sinni með
harkalegri meðhöndlun, eins og
þegar það er barið fast af blautu
axi í þreskivél.
Algengt er að aðeins hluti af
því byggi sem er ræktað með
það að markmiði að verða malt
nái þeim árangri, oft langt innan
við helmingur. Möguleikar til
maltframleiðslu hér á landi
hafa lítið verið rannsakaðir.
Bygg hefur ekki verið kynbætt
sérstaklega fyrir maltgæðum
í íslenska kynbótaverkefninu.
En það er hægt, þó það sé dýrt
að mæla malthæfni þúsundir
byggarfgerða árlega. Íslenskur
maltmarkaður er ekki stór
en miklir möguleikar eru
til aukningar með tilkomu
þekkingar hér á landi í bruggun
og eimingu.
Markmiðin að bæta gæði
byggs svo að það nái ströngum
kröfum malts eru þau sömu og
að bæta gæði þess sem fóður
fyrir öll húsdýr. Markmiðin að
bæta spírunarhæfni byggs til að
mæta kröfum möltunar leggja
grunn að sáðvöruframleiðslu
byggs á Íslandi.
Það er grundvallaratriði
að við setjum markið hátt og
bætum gæði byggs með bættum
aðferðum og öflugum kynbótum.
Hrannar Smári Hilmarsson,
tilraunastjóri í jarðrækt hjá
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Malt
Bygg er fyrsti skráði gjaldeyririnn og var síðar sleginn í mynt, hér frá
500 árum f.Kr.
KORNHORN
„Strandveiðar, þótt takmarkaðar séu, hafa sannað gildi sitt. Þær eru hagkvæmar
og hafa reynst vel fyrir hinar dreifðu sjávarbyggðir og yfir sumartímann hleypt
auknu lífi í brothættar byggðir víða um land.“ Mynd / Knut Troim
Hrannar Smári
Hilmarsson.