Bændablaðið - 25.05.2023, Side 59
59Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
TIMBUR EININGAHÚS
Sími: 893 3022 einingar@einingar.is
www.einingar.is
Blóðmerahaldið enn
Nú er blóðmerahaldið aftur komið
á dagskrá og nú fyrir tilstuðlan
sunnan af meginlandi Evrópu
úr innstu kimum ráðsmennsku
og stjórnsemi, sem í málinu
tekur undir með öfgasamtökum
og áróðursmeisturum sem ekki
hafa sannleika og sanngirni
að leiðarljósi, heldur yfirlýst
markmið um að ganga af
starfseminni dauðri.
B æ n d u r
og búalið,
d ý r a l æ k n a r
og annað fólk
sem stendur í
og stendur að
blóðmerahaldi
veit hvað það
er að gera í
smáa t r iðum.
Það hefur gert
þetta aftur og aftur og er hokið af
þeirri reynslu sem starfsemin hefur
leitt yfir það og leiðbeint því um
aðferðir. Þetta fólk veit að hve miklu
leyti dýrin þjást við blóðtökurnar
og annað stúss í kringum þær.
Það veit hveernig sársaukastuðull
hrossa er allt annar en manna. Það
veit líka hvers þessi hross njóta í
staðinn fyrir blóðgjöfina. Það veit að
blóðmerahald lýtur sömu lögmálum
og annar dýrabúskapur og býr hjá
því við þann samanburð.
Lögfræðingar og annað
skrifstofulið, sem situr suður á
meginlandi Evrópu og semur
reglugerðir og dæmir um það eftir
hvaða reglum skuli farið og dæmt um
húsdýrahald, hefur yfirleitt enga eða
harla litla reynslu af húsdýrahaldi
og samlífi með hjörðum þeim
sem undir búskap standa. Sumt
hefur það kannski einhverja
reynslu af borgarhundahaldi
eða búrfiskabúskap og öðru því
dýrahaldi sem ekki lýtur lögmálum
lifibrauðs og framleiðslu, þar
sem skrifstofustörf standa undir
kostnaði og hagnaður er ekki
forsenda dýrahaldsins. Það fjallar
ekki um málin af eigin reynslu
og kunnáttu á dýrabúskap. Það
fjallar um málin í samræmi við
formfastar klásúlur í lagabálkum
og reglugerðum sem orðið hafa til í
regluverksverksmiðjum.
Svo er felldur dómur á slíkum
forsendum um hvað sé siðlegt og
boðlegt í dýrahaldi. Það er gripið
fram fyrir hendurnar á þeim sem
vitið og reynsluna hafa og völdin
tekin af því fólki. Dómsvöldin eru
komin í hendurnar á fólki sem ekki
hefur reynslu og vit á því sem það
dæmir um, en þekkir fastmótaðar
og kategórískar reglur sem það
og kollegar þess hefur að mestu
leyti sjálft sett og það í skjóli
reynsluleysis.
Ætlum við að tryggja það að
mannkynið eigi bjarta framtíð á
jörðinni með þvílíku fyrirkomulagi?
Ætlum við að leggja valdið
mótmælalaust í hendurnar á
reglugerðarfarganinu fræga?
Ætlum við að dæma vitið og
reynsluna úr leik?
Ætlum við í raun að setja
formfestuna tekna úr sambandi við
vitið í öndvegi lífs okkar?
Ætlum við að selja okkar
sjálfstæðu hugsun?
Ætlum við aftur að selja sjálfstæði
vort?
Páll Imsland
eftirlaunaþegi.
Páll Imsland.
Mynd / PI
REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is
Lyftu á
gæðum