Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Bændablaðið fékk til prufu
rafmagns-liðlétting frá Giant.
Þessi græja er á margan hátt
eins og aðrar fjósavélar frá
Giant og öðrum framleiðendum
– miðlungsstór og fær í flest
almenn verk. Helsti munurinn er
að þessi fjósavél er hljóðlát og án
útblásturs.
Þegar horft er á Giant G2700E
að utan er fátt sem bendir til
að þessi liðléttingur sé eitthvað
öðruvísi en allir aðrir. Þessi er jú
gulur, ekki rauður eins og algengt
er, en það segir meira til um hver
framleiðandinn er. Þegar skoðað er
nánar sést að vélarhlífin er ekki með
grilli, heldur mynstruðum límmiða.
Jafnframt finnst hvergi púströr og
áfyllingarstútur fyrir eldsneyti.
Vélin í þessum prufuakstri var
útbúin veltigrind, en hægt er að
fá hús sem aukahlut. Grindin fer
ágætlega með þeim einfaldleika
sem einkennir þessa vél. Vörn
gegn náttúruöflunum er hins
vegar í algjöru lágmarki og hlýr
fatnaður nauðsyn. Ef koma þarf
liðléttingnum í lágt rými er hægt
að leggja veltigrindina aftur og
höfuð ökumannsins verður hæsti
punkturinn. Beggja vegna eru slár
í stað hurða. Til að stíga um borð
þarf að opna slárnar og hífa sig upp
og ekki alveg augljóst hvar best er
að grípa.
Innréttingin er eins einföld og
kostur er. Þú færð sæti, stýri, tvö
fótstig, handbremsu, stjórnpinna,
lítinn upplýsingaskjá og nokkra
takka. Sætið er klætt sterku
plastefni sem líklega þolir vel ágang
veðurs og vinds. Beggja vegna eru
stillanlegar armhvílur.
Til að kveikja á liðléttingnum
þarf að snúa lykli. Eina leiðin til
að átta sig á hvort vélin sé í gangi
er að horfa á upplýsingaskjáinn bak
við stýrið. Rafmótorarnir eru alveg
hljóðlausir þegar vélin er kyrrstæð.
Hentugt til moksturs
Þegar ekið er af stað finnst að
þetta er tæki með einfaldleikann í
fyrirrúmi í stað þæginda. Í sætinu
er gormafjöðrun sem eflaust
mun aldrei klikka. Hreyfingarnar
verða hins vegar mjög kvikar, sem
magnast enn frekar vegna þess
hversu hátt er setið á tiltölulega
mjórri vinnuvél.
Hámarkshraði liðléttingsins í
efsta hraðaþrepinu er 20 kílómetrar
á klukkustund niður brekku. Vilji
menn aka á þeim hraða er gott
að geta smellt sér í öryggisbelti,
því ökumaðurinn kastast nokkuð
til þegar fjöðrunin er engin. Á
þessum hraða heyrist niður frá
rafmagnsmótornum, sem er þó
lægri en í flestum ryksugum.
Þegar eitt dekkið fer ofan
í holu finnst slagsíðan vel í
ökumannssætinu. Þetta er hins
vegar atriði sem ekki er hægt að
gagnrýna, því þetta er líklega alveg
eins á öllum öðrum liðléttingum.
Vilji menn ögn meiri þægindi,
þá er loftpúðasæti fáanlegt sem
aukahlutur.
Liðurinn er með veltingi til
að halda öllum dekkjunum á
jörðinni. Hjólbarðarnir á þessari
vél eru flotmiklir með alhliða grófu
mynstri.
Þegar kemur að mokstri og
vinnu með ámoksturstækjunum
er liðléttingurinn í essinu sínu.
Helsti lúxusinn í þessari vél er
stjórnpinninn fyrir ámoksturstækin.
Í stað þess að vera beintengd
glussastöng er þetta rafmagnspinni
sem er léttur í hreyfingum.
Útsýnið er nær óhindrað til allra
átta, fyrir utan að stundum sést
ekki í það sem er beint fyrir
framan ámoksturstækin. Stórir
hliðarspeglar sýna vel það sem er
aftan við tækið.
Aksturshraðanum er stjórnað
með fótstigi hægra megin.
Akstursstefnunni er stjórnað
með veltirofa í stjórnpinna
ámoksturstækjanna. Við vinstri
fót er fótstig fyrir bremsu, en það
er yfirleitt óþarft, nema rétt í neyð.
Þegar „bensíngjöfinni“ er sleppt
tekur við öflug vélarbremsa og
stoppar liðléttingurinn af sjálfu sér.
Þröngt fyrir stóra skó
Nokkuð ankannalegt er að stökkva
úr vélinni. Rýmið milli stýrisássins
og sætisbotnsins er það mjótt að
nauðsynlegt er að skáskjóta stórum
skóm í gegn. Ef sætið hefur verið
dregið fram eða stýrið fært aftur
er erfitt að komast hjá því að reka
hnén í mælaborðið. Þetta gæti
reynst vandamál hjá notendum sem
sjá fram á að vera stöðugt að fara í
og úr tækinu.
Við hliðina á sætinu er hand-
bremsa. Þótt hún virðist einföld,
þá er hún nokkuð snjöll. Um leið
og henni er kippt upp fer vélin í
hlutlausan og neitar að fara aftur
í gír fyrr en slakað hefur verið á
stöðuhemlinum.
Batterí í stað vélar
Þegar húddið að aftan er opnað sést
hvað skilur þennan liðlétting frá
flestum öðrum. Í stað dísilvélar eru
tvö stór liþíumbatterí. Samkvæmt
framleiðandanum eiga þau að
geyma orku sem dugar í sex til átta
tíma vinnu.
Liðléttingurinn er með innbyggt
hraðhleðslutæki, þannig að
einungis þarf að stinga í samband
einfaldri kló eins og á húsbílum.
Framleiðandinn segir að hægt sé
að ná 50 prósent hleðslu á hálftíma,
þannig að ef liðléttingnum er
stungið í samband í kaffipásum þarf
aldrei að hafa áhyggjur af hleðslu.
Þar sem vélin er engin losnar
maður við alla þá ókosti sem
dísilmótorum fylgja. Það er nær
enginn hávaði og útblástur ekki
til staðar. Þetta má líklegast telja
mikinn kost þegar unnið er í þröngu
rými. Viðhald er jafnframt í algjöru
lágmarki og færri hlutir sem geta
bilað. Helst þarf að smyrja koppa
og skipta um síur í glussakerfinu.
Á heimasíðu framleiðandans er
hægt að velja úr fjölda aukahluta
sem hægt er að tengja við
ámoksturstækin. Það er allt frá
skóflu, plógi, rúllugreip, yfir í
götusóp, hekksláttuvél, saltdreifara,
haughræru og steypihrærivél.
Tölur
Lyftigeta Giant G2700E er
2.100 kg. Helstu mál eru: Lengd
án skúffu 3.377 mm; breidd
1.080; hæð með veltigrind
2.339 mm; lyftihæð 2.964 mm;
snúningsradíus með skúffu 2.972
mm; þyngd 2.595 kílógrömm. Afl
akstursmótors eru sjö kílóvött og
mótorinn fyrir vökvakerfið er tólf
kílóvött. Hjá Landstólpa kostar
þessi vél 9.890.000 krónur án
virðisaukaskatts.
Niðurstaða
Giant G2700E er á margan hátt
eins og flestir liðléttingar, nema
útbúinn vel útfærðu rafkerfi.
Rafknúinn liðléttingur meikar
fullkomlega sens fyrir vél sem er
alla tíð notuð í eða við fjós eða
annan vinnustað. Stór rafhlaðan
er enga stund að hlaðast og ætti
nytsemin því ekki að vera skert
samanborið við díselvél. Helsti
ókosturinn er mikill verðmunur.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
– Prufuakstur á Giant G2700E
Giant G2700E er rafknúinn liðléttingur. Við létta vinnu er fjósavélin þögul sem gröfin og því hægt að hlusta á kýrnar jórtra. Myndir / ÁL
Liðléttingurinn er engin lúxusgræja, en á móti kemur að færri hlutir eru til
að bila. Útsýni er nær óskert.
Liþíum-rafhlöðurnar halda hleðslu fyrir sex til átta tíma vinnu. Í hálftíma
kaffipásu er hægt að bæta 50% hleðslu.
Þegar brunað er á 20 kílómetra hraða sveiflast ökumaðurinn nokkuð til ef
vegurinn er ósléttur, vegna þess hversu mjótt tækið er.