Bændablaðið - 25.05.2023, Side 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Helsingi er önnur af þremur gæsum sem eru fargestir hérna á Íslandi. Þær verpa í klettum á Svalbarða og Nova Zemlja en sá stofn sem fer hér um Ísland verpir á Norðaustur-Grænlandi. Þeir fuglar sem stoppa
hérna á leið sinni til Grænlands á vorin leita mikið í tún í Húnavatnssýslum og Skagafirði. Þegar hóparnir fara til baka á haustin leita þeir meira inn á sunnanvert hálendið og Skaftafellssýslu. Helsingjar eru þó
ekki lengur alfarið fargestir á Íslandi heldur hefur undanfarna áratugi myndast ört stækkandi stofn í Skaftafellssýslum. Þar fundust hreiður í hólmum á jökullónum 1988. Sumarið 2014 var áætlað að hér séu
um 700 varppör en síðan þá hefur varpstofninn vaxið nokkuð rösklega og var 2020 áætlað að hér væru um 2.500 varppör. Með þessu hefur mikið færst í aukana að sjá helsingja með stóra ungahópa í kringum
jökullónin í Skaftafellssýslu. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
FRÆÐSLA
Í upphafi, eða að minnsta kosti fyrir
þúsundum ára, hófu bæði konur og karlar
að skreyta neglur sínar, ekki sérstaklega
vegna glysgirni heldur stéttamunar.
Er talið að elsta dæmið um litaðar neglur
hafi verið árið 3200 f. Kr. þegar karlmenn
Babýlonborgar lituðu neglur sínar með kolum
áður en þeir héldu til bardaga. Árið 3000 f. Kr.
notuðu Kínverjar og Egyptar býflugnavax,
náttúrulegt gúmmí og jurtir til að búa til lit á
neglur sínar – þóttu væntanlega mjög smartir,
enda um æðri stéttir að ræða.
Þessi stéttamismunun hélst í heillangan
tíma enda hélst sú refsing enn þá, um 600
f. Kr., að lágstéttin í Kína skyldi dæmd til
dauða fyrir að vera með naglalakk.
Róslitaða naglalakkið
Á tuttugustu öldinni, akkúrat þegar bíla-
iðnaðurinn var í blóma, hófst ganga naglalakks
á borð við það sem við þekkjum í dag.
Fæðing nútíma-naglalakks var rakin til
uppgötvunar á efni sem kallast nítrósellulósi.
Þetta efni var upphaflega notað til að búa til
bílamálningu, en fólk uppgötvaði fljótlega
að hægt væri að nota bílalakkið við aðra og
skemmtilegri iðju en bara bílalökkun.
Segir sagan að fyrstu tilraunir til að setja
bílalakk á neglur hafi reynt ansi mikið á
þolinmæðina enda hafi tekið yfir klukkustund
að láta lakkið þorna. Flagnaði svo af nokkrum
dögum síðar. Þetta þótti þó mikið sport enda
þónokkrir litir í boði.
Fyrsta glæra fljótandi naglalakkið var
svo kynnt árið 1916 af fyrirtækinu Northam
Warren Corporation, en þar í forsvari var
efnafræðingurinn Northam Warren, sem varð
þekktur fyrir framleiðslu ýmissa snyrtivara.
Árið eftir, árið 1917, bauð fyrirtækið
upp á róslitað naglalakk og stækkaði þá
neytendahópurinn til muna þó ekki hafi verið
hægt að segja að um mikið litaúrval hafi verið
að ræða. Því má svo bæta við að engum kom
til hugar að finna upp á naglalakkseyði fyrr
en árið 1930. Einnig má bæta við að nú, árið
2023, er róssanserað naglalakk hvað helst
móðins fyrir utan það perlulita – og silfurlita
– samkvæmt helstu tískufrömuðum.
Akrílneglur svona óvart
Ferill akrýlnagla hófst árið 1954, þegar dr. Fred
Slack, tannlæknir nokkur, braut á sér nögl
og lagaði hana með því að nota blöndu af
uppfyllingarefni ætluðu til tannviðgerða.
Þetta var upphafið að gervinöglum yfir-
höfuð, en önnur fyrirtæki komu fast á eftir
honum og buðu upp á alls kyns gervineglur,
bæði langar og stuttar. Voru gervineglur
afar vinsælar og mátti brátt fá þær í öllum
regnbogans litum.
Árið 1982 komu svo naglalampar til
sögunnar í kjölfar uppfinningar gelnagla.
Þarna var um að ræða seigt gel sem harðnaði
undir geislum útfjólubláa ljóss UV lampanna
svokölluðu og var eina leiðin til að ná
nöglunum af með naglaþjöl.
Í dag eru þær úr náttúrulegri efnum,
þynnri, sveigjanlegri og líta eðlilega út –
auk þess sem hægt er að leysa þær upp með
naglalakkseyði i flestum tilvika.
Fjölvítamín og fleira til
Naglalökk 21. aldarinnar eru þó í sífelldri
þróun og sum þeirra meira að segja bæði lífræn
og ekki sérstaklega skaðleg náttúrunni.
Alls kyns útfærslur eru í gangi og þróanir,
en flestir naglasérfræðingar nútímans bera
hefðbundið naglalakk yfir grunnlakk og
klára síðan með yfirlakki. Bæði er kemur
að náttúrulegum nöglum sem og gervi.
Tilgangur grunnlakksins er að bæta
viðloðun lakksins við yfirborð naglanna
og koma í veg fyrir að litarefni þess liti
nöglina sjálfa. Yfirlakkið er síðan borið yfir
naglalakkið til að fá glansandi áferð auk þess
sem það herðir nöglina.
Í dag finnast óteljandi útfærslur á nöglum
og aragrúi lakka … sem þjóna alls kyns
tilgangi, innihalda m.a. fjölvítamín og má
nota bæði sem undir- og yfirlakk.
Eins og við má búast eru vinsælar nýjungar
meðal annars „handsnyrti-vélmenni“
svokölluð sem koma þá í stað faglegra
naglasérfræðinga. Eru vélmennin til í ýmsum
stærðum og gerðum en einnig eru til vélar
þar sem hægt er að stinga fingrunum inn í og
fá þar lakkaðar neglur. Fer ýmsum sögum af
því hversu vel tekst til með útkomuna en við
skulum horfa björtum augum til framtíðar.
Það er alltaf farsælast.
/SP
Tíska:
Bílalakk ... naglalakk ...
Fegurstu naglalökkin þessa dagana, sanseruð, silfurlit og svo mött/glans/brún.