Bændablaðið - 07.09.2023, Side 6

Bændablaðið - 07.09.2023, Side 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023 Það má velta fyrir sér hvar mörk þess að blaðamenn geti óhindrað myndað bústörf liggi, án þess að fyrir því liggi leyfi frá viðkomandi bónda. Nú er mál þannig með vexti að á bæ nokkrum á Suðurlandi voru bændur að sinna bústörfum við blóðtöku úr merum, eins og þeir hafa stundað í mörg ár á grundvelli laga og reglugerða sem þeim eru sett af löggjafanum. Þá bregður svo við að stóðið við bæinn fer að ókyrrast. Ábúandi fer því út og svífur þá yfir flygildi sem augljóslega styggir hrossin, og við nánari eftirgrennslan kemur í ljós að bíll ríkisrekins fjölmiðils er lagður steinsnar frá vettvangi. Voru þar komnir starfsmenn Kveiks að taka myndir á einkalandi bóndans. Það vekur furðu mína að viðkomandi starfsmaður umrædds ríkisfjölmiðils spyrji ekki um leyfi, ræði við bóndann eða láti vita, heldur virðist dýravelferð og stjórnarskrárvörðum réttindum enginn gaumur gefinn þegar kemur að myndatökum eða friðhelgi einkalífs. Óhjákvæmilega vaknar því sú spurning að ef starfsemi er að lögum landsins leyfð, hvar sé þá verndin? Verðlag og verðbólga Mikið hefur verið rætt og ritað undanfarið um verðlag á Íslandi. Þegar rýnt er í þessa gagnrýni, þá er líkt og ábyrgðin liggi hjá bændum og að þeirra athafnir séu eldiviður á verðbólgubálið. Vel má velta fyrir sér hvernig verðmyndun á vörum verður til. Hvernig má það vera að lítri af íslensku vatni kostar 60% meira en lítri af mjólk? Um þó nokkra hríð hefur það truflað mig allnokkuð þegar ég fer í stórmarkaði í mínu nærsamfélagi og versla inn, að næsti maður á undan mér í röðinni er starfsmaður í verslun sem staðsett er í hinum dreifðari byggðum. Má draga af því líkur að viðkomandi fái hagstæðara verð í stórmarkaðnum heldur en hjá viðkomandi birgjum? Hvar á verðmyndunin á matvörunni þá stað ef ekki hjá birgjunum? Því fylgir oft aukinn kostnaður að búa utan höfuðborgarsvæðisins og nær ekkert okkar hefur farið varhluta af umræðu um flutningsfyrirtæki undanfarna daga. Verður það virkilega þannig að neytendur, og þá sérstaklega þeir sem búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins, jafnvel með sína atvinnustarfsemi, þurfi að bera skaða af samráði fyrirtækja á markaði sem endurspeglast svo í hækkuðu vöruverði? Bændafundir Dagana 21. til 25. ágúst og svo þann 30. ágúst fór stjórn og starfsfólk Bændasamtakanna í fundaferð um landið. Alls var komið við á 13 áfangastöðum og voru fundirnir vel sóttir og umræðurnar málefnalegar og upplýsandi um þau málefni sem brenna helst á bændum. Vil ég fyrir hönd stjórnar þakka öllum þeim sem tóku þátt í fundunum fyrir komuna og ekki síður starfsfólki Bændasamtakanna fyrir frábæran undirbúning á þessari fundaröð, þetta er að mínu mati mjög mikilvægt fyrir stjórn og starfsfólk að sinna þar sem þetta gefur okkur innsýn inn í áherslur á hverju svæði. SKOÐUN Græðlingar Skrifað stendur í einu fræðsluriti Skóg- ræktarfélags Íslands að sá plöntuhluti sem notaður er til þess að rækta af nýja plöntu nefnist stiklingur. Stiklingur sem kominn er með rætur og blöð og þannig orðinn sjálfstæð planta nefnist græðlingur. Hér í blaðinu er fjallað um tvo efnilega „græðlinga“ í íslenskri garðyrkjuflóru sem eru af gjörólíkum uppruna. Annars vegar eru það hvítlauksbændur í Dölunum, hjón sem hafa á undanförnum árum undirbúið jarðveginn fyrir að hætta að vinna venjulega launavinnu og gera að einhverju leyti atvinnu úr áhugamálinu – sem er að rækta hvítlauk. Þau hafa lagst í pælingar um forsendur vel heppnaðrar ræktunar á hvítlauk á Íslandi án tilbúins áburðar og notkunar eiturefna. Niðurstaðan er að það þarf að rækta jarðveginn, auðga hann og vernda – gera hann að mestu leyti sjálfbæran. Þau komust að því að markaður var fyrir íslenskan hvítlauk við hliðina á þeim innflutta sem er að mestu leyti fluttur inn frá Kína í miklu magni. Þau eru þegar búin að selja alla uppskeru næsta árs í heildsölu, sem þau áætla að verði á bilinu sex til átta tonn. Hvítlauksbændurnir voru studdir í gegnum undirbúningsferlið af sérstökum sjóðum sem hafa það hlutverk að hlúa að frumkvöðlastarfi sem þessu. Þau segja að án þessa stuðnings hefði verkefnið aldrei orðið að veruleika. Hinn græðlingurinn mun þrífast í krafti fjármagnsins – stórhuga athafnamanna – og felst í tómataræktun til útflutnings. Ætlunin er að reisa risagarðyrkjustöð á iðnaðarsvæði í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem mun geta framleitt 56 tonn tómata dag hvern árið 2027 þegar stöðin verður að fullu risin. Það er margfalt það heildarmagn sem allir íslenskir tómataframleiðendur framleiða á hverjum degi. Verkefnið er enn á fjármögnunarstigi en samkvæmt framkvæmdastjóra þess gengur það ferli vel og engar beinar hindranir í sjónmáli. Líklegt er að örlög verkefnisins muni á endanum ráðast af markaðsforsendum íslensku tómatanna í erlendum verslunum. Munu nægilega margir vilja greiða nógu hátt verð fyrir íslensku gæðavöruna, sem framleidd er með hreinu vatni og vistvænni orku? Fjárfestar veðja á að dæmið gangi upp. Þetta eru dæmi af tveimur vænlegum græðlingum í íslenskri garðyrkju, en þeir hafa því miður ekki verið margir á síðustu árum. Það verður því miður að segjast eins og er að það hefur lengi ríkt stöðnun í greininni, einkum í útiræktun grænmetis. Sömu tegundirnar hafa verið í framleiðslu ár eftir ár, fáar bætast við og hlutfall innlendrar framleiðslu á markaði hefur ekki breyst í grundvallaratriðum. Nýliðun er lítil og garðyrkjubændum fjölgar mjög hægt. Þau sem eru áhugasöm um framtíðarstörf í greininni komast ekki yfir þá erfiðu hindrun sem fjárfesting í landi og garðyrkjustöð er. Hér í blaðinu er einnig fréttaskýring um stöðu og horfur í kornræktinni. Hún hefur mikið verið til umræðu á undanförnum mánuðum eftir að matvælaráðherra tilkynnti í vor um tveggja milljarða stuðning við greinina á næstu fjórum árum. Það er góður og þarfur stuðningur í átt að fæðuöryggi á Íslandi. En garðyrkjan þarf líka aukinn stuðning til að svo geti orðið. Samkvæmt tíðindum sem berast af yfirstandandi endurskoðun bú vörusamninga, hafa garðyrkjubændur lítið komist áleiðis með sín hagsmunamál við samningaborðið. Það er þrátt fyrir fögur fyrirheit stjórnvalda um aukinn stuðning við íslenska grænmetisframleiðslu, sem hafa birst í ýmsum myndum á undanförnum misserum. /smh Einkamál annarra? Mynd úr safni Bændasamtakanna. Hluti af myndaseríu sem sýnir frá blóðtöku úr hryssum í Landeyjum. Á bakhliðinni stendur handskrifað: „Finnbogi Magnússon Lágafelli hjá blóðbrúsunum.“ Mynd / Úr safni GAMLA MYNDIN Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands gunnar@bondi.is Bændablaðið kemur út 23 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu burðargjalds. Árgangurinn (23. tölublöð) kostar þá kr. 14.900 með vsk. Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar kr. 11.900 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Borgartún 25, 4. hæð - 105 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Kt: 631294-2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − Ritstjóri: Sigurður Már Harðarson (ábm.) smh@bondi.is – Sími: 563 0300 – Blaðamenn: – Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – Hulda Finnsdóttir hulda@bondi.is Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is – Steinunn Ásmundsdóttir steinunn@bondi.is – Þórdís Anna Gylfadóttir thordisanna@gmail.com Auglýsingastjóri: Þórdís Una Gunnarsdóttir thordis@bondi.is – Sími: 866 3855 Netfang auglýsinga: thordis@bondi.is − Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Sigrún Pétursdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: 33.000 – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.