Bændablaðið - 07.09.2023, Blaðsíða 55

Bændablaðið - 07.09.2023, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023 hans verði ákaflega mjólkurlagnar, fituhlutfall i mjólk í góðu meðallagi en próteinhlutfall aðeins neðan meðallags. Júgurgerðin góð, spenar í lengri kantinum hæfilegar þykkir og vel settir. Mjaltir mjög góðar og skapið í góðu meðallagi. Heildareinkunn 114. Naut í notkun áfram Í notkun verða áfram Kollur 18039, Skáldi, Simbi 19037, Kvóti 19042, Bússi 19066, Billi 20009, Marmari 20011, Hengill 20014, Banani 20017, Garpur 20044, Óðinn 21002, Hákon 21007, Kaldi 21020 og Pinni 21029. Nú hillir undir að sett hafi verið í notkun öll þau naut sem áhugaverð eru til frekari notkunar úr nautaárgöngum 2018–2022. Þetta eru naut sem voru keypt á grunni ætternis og fóru flest í dreifingu á sínum tíma sem ungnaut til afkvæmaprófana Áður en til niðurstaðna þeirra kom var erfðamengisúrvali hleypt af stokkunum en eigi að síður munu öll þessi naut fá sína prófun í fyllingu tímans. Nú fara hins vegar að koma til notkunar naut sem voru keypt á grunni erfðamats en það á við um yngstu nautin fædd 2022. Val nautanna fer þá fram um leið og þau koma í heiminn eða þegar erfðamat þeirra liggur fyrir. Þau koma því til notkunar gefi þau nægilegt og nógu gott sæði, nokkuð sem aldrei liggur fyrir fyrr en til á að taka. Hvatning til að nota sæðingar Það fjölbreytta úrval nauta sem nú stendur mönnum til boða ætti að verða öllum hvatning til þess að nota sæðingar sem allra mest og láta af notkun „spari“nautanna, þ.e. nautanna sem standa heima í fjósi og á að spara. Erfðaframfarir hjá dönskum kúabændum Í nýjasta tölublaði tímaritsins Dansk Holstein kemur fram að erfðaframfarir hafa skilað dönskum kúabændum 2 þús. dönskum kr. á kú á ári síðasta áratuginn samkvæmt úttekt SEGES – dönsku landbúnaðar- ráðgjafarinnar. Þetta er nálægt 38 þús. ISK á kú á ári. Ef við heimfærum þessar tölur upp á íslenskar aðstæður og gefum okkur að erfðaframfarir hérlendis skili helmingi minna (sem þó er alls ekki víst vegna mun hærra mjólkurverðs hér) nemur þetta rétt tæpum 2 milljónum króna á ári fyrir meðalbúið. Þetta segir mér að sú ákvörðun að leiða fram heimanautið er einhver sú alversta sem nokkur kúabóndi tekur á sinni búskapartíð. Þessa röngu ákvörðun taka margir bændur því miður oft og mörgum sinnum, ekki bara sjálfum sér til skaða heldur einnig ræktunarstarfinu og sæðingastarfseminni sem og þjóðfélaginu öllu. Þriðjungur undan heimanautum Það getur ekki gengið til langframa að um þriðjungur allra fæddra kálfa sé undan heimanautum og sá tími hlýtur að koma að spurt verði hvernig bændur hafi efni á því að slá hendinni á móti þeim fjármunum sem erfðaframfarir skila. Hverju svörum við þá? Kajak 22009 frá Þorgautsstöðum. Svarfdal 22006 frá Göngustöðum. Lífræn hreinsistöð • Fyrirferðalítil fullkomin sambyggð skolphreinsistöð • Uppfyllir ýtrustu kröfur um gæði hreinsunar • Engin rotþró eða siturlögn 25 ára ábyrgð • Tæming seyru á þriggja til fimm ára fresti • Engir hreyfanlegir hlutir • Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík Sími 517 2220 - petur@idnver.is G ra fik a 19 Helstu upplýsingar Gnúpufell er landmikil jörð með heimaland sem eru tæpir 600 hektarar, auk þess umtalsvert afréttarland. Jörðin er mjög áhugaverð fyrir margra hluta sakir. Er með ágætum eldri húsakosti. Búið var mjög myndarlega á Gnúpufelli, m.a. var þar umtalsverð skógrækt. Í dag er jörðin ekki í ábúð en nytjuð. Til sölu jörðin Gnúpufell í Eyjafjarðarsveit fasteignanúmer F215-8627 og landeignanúmer L152605. Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson í síma 892 6000 eða magnus@fasteignamidstodin.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.