Bændablaðið - 07.09.2023, Side 58

Bændablaðið - 07.09.2023, Side 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023 LESENDARÝNI Til í samtalið við bændur Ég fór á fund Bændasamtakanna á Selfossi á dögunum. Þetta var lokafundur í fundaröð undir yfirskriftinni: Tökum samtalið. Mér skildist að aðeins tveir þingmenn hafi komið til þessara funda, en var alveg sátt við að Viðreisn skuli hafa átt helming þeirra. Ég veit að grund­ vallarhugmyndir Viðreisnar um atvinnufrelsi og alþjóðasamvinnu hafa ekki í einu og öllu átt upp á pallborðið hjá öllum bændum. Afstaða Viðreisnar er skýr um að við viljum sjá íslenskan landbúnað dafna og við höfum stutt þann fjárhagslega stuðning sem bændur njóta á fjárlögum. Við erum því sannarlega til í samtalið við bændur. Umfram allt trúi ég því að hreinskilni sé betri í því samtali en gylliboð. Áhyggjur af afkomu Það kom ekki á óvart að áhyggjur af afkomu bænda voru hinn þungi undirtónn. Vandinn er að hluta tímabundinn vegna stöðu efnahagsmála. En vandinn á líka kerfislegar rætur, bæði í landbúnaðarkerfinu sjálfu og peningakerfinu. Einn fyrrverandi landbúnaðar­ ráðherra, reyndar sá sem lengst hefur setið á þeim stóli á þessari öld, dró á fundinum upp mjög dökka mynd af framtíðinni. Að öllu óbreyttu gæti sú spá ræst. Ég vil gjarnan taka þátt í samtali sem miðar að því að finna leiðir til að koma í veg fyrir að sú kolsvarta mynd verði að veruleika – og helst að samtalið verði þannig að markmið okkar um öflugan landbúnað verði sú mynd sem rætt er um. Við ættum að geta komist að sameiginlegri niðurstöðu um þá þætti sem núverandi stefna er að stranda á og bændur finna rækilega fyrir. Svo er ég til í að rökræða mismunandi leiðir og hlusta á rök annarra. Mig langar til að opna þetta samtal með því að varpa fram spurningum varðandi tvö atriði sem fram komu á fundinum. Fjármælaáætlun gerir ekki ráð fyrir auknum fjárframlögum Formaður Bændasamtakanna greindi frá því að tólf milljarða króna vantaði inn í reksturinn. Hann sagði jafnframt að úrbætur fengjust ekki við endurskoðun búvörusamninga á þessu ári. Því yrði að leggja allt traust á nýja búvörusamninga eftir þrjú ár. Mín spurning er þessi: Er raunhæft að stóla á meira svigrúm ríkissjóðs eftir þrjú ár? Í fimm ára fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er ekki gert ráð fyrir auknum heildarframlögum. Við sjáum þannig að núverandi ríkisstjórnarflokkar hafa svarað spurningunni afdráttarlaust neitandi. Það er ekki gert ráð fyrir auknum fjárframlögum af hálfu ríkisstjórnarflokkanna þriggja. Minn flokkur getur lofað einörðum stuðningi við að núverandi styrkir haldist að verðgildi. En það væri ómarktækt gylliboð ef ég gæfi undir fótinn með aukin útgjöld án samtalsins um nýjar hugmyndir og sóknarfæri fyrir landbúnaðinn. Slík pólitík er ekki heiðarleg og hjálpar engum, hvorki landbúnaðnum né öðrum. Vandinn er fyrir hendi. Lausnin liggur ekki á borðinu. Mér sýnist því að samtal um hugmyndir sé nauðsynlegt. Kerfislegt óréttlæti Ein leið er að kanna hvort unnt er að minnka kostnað. Formaður Bændasamtakanna upplýsti að vaxtahækkanir að undanförnu hafa aukið kostnað bænda um 5,5 milljarða króna. Vaxtahækkunin ein er helmingurinn af því sem vantar inn í reksturinn. Einnig hefur hann bent á að við stöndum frammi fyrir áskorun um hvernig við látum nýliðun í íslenskum landbúnaði raungerast. Þar vanti hagstæð lánakjör en fjármagnskostnaður sé þar verulega íþyngjandi þáttur. Jafnvel ég, húsmóðir í Hafnarfirði og Ölfusinu, sé í hendi mér að það getur ekki gengið upp að greiða 40 krónur í vexti af hverjum mjólkurlítra sem framleiddur er. Það endar með ósköpum. Að því kemur að vextir lækka aftur. Þeir verða hins vegar alltaf þrefalt hærri en hjá grannþjóðunum sem neytendur horfa til með verðsamanburð. Það sama gildir um bændur. Sú væntanlega staða gengur því heldur ekki upp. Sjávarútvegurinn sætti sig ekki við slíka samkeppnismismunun. Hann fékk því heimild stjórnvalda til að yfirgefa krónuna og tekur þar af leiðandi ekki þátt í þeim umfram kostnaði sem henni fylgir. Með því er landbúnaðurinn kominn í þá stöðu að bera byrðar sem stórútflutningsatvinnugrein­ arnar sleppa við, sjávarútvegurinn, stóriðjan, Landsvirkjun, stærstu ferðaþjónustufyrirtækin og þekkingar­ iðnaðurinn. Með landbúnaðinum í þessum báti eru heimilin og minni fyrirtæki. Þessi þungi vaxtakostnaður er þess vegna réttlætismál að leiðrétta. Mögulegar leiðir Er það náttúrulögmál að leggja vaxtabyrðar á landbúnaðinn sem aðrar atvinnugreinar í landinu sleppa við? Mitt svar er nei. Bændur vita að við viljum tryggja jafna aðstöðu allra með því að taka upp samkeppnishæfan gjaldmiðil. Ég þykist vita að almennt eru bændur ekki endilega sannfærðir. Þá er spurningin ­ Eru aðrar leiðir færar? Ég sé ekki fyrir mér ríkisstjórn sem snúa mun til baka og innleiða pólitíska ákvörðun vaxta. Eftir sex ár væru núverandi stjórnarflokkar búnir að því ef þeir teldu það fært. Ég veit þó ekki um neinn stjórnmálaflokk sem vill ná jöfnuði með því að skerða samkeppnisstöðu helstu útflutningsgreinanna. Það væri eins og að taka fóðrið frá bestu mjólkurkúnni. Við erum sammála um að ná þarf vaxtakostnaðinum niður. Ég er tilbúin að hlusta á aðrar hugmyndir en ég fer ekki ofan af því að mismununin milli bænda og útvegsbænda er óréttlát og efnahagslega óhagkvæm bæði fyrir landbúnaðinn og íslenskt samfélag í heild. Tölum meira saman Ég vildi þakka fyrir áhugaverðan fund á Selfossi og gott boð um að taka samtalið lengra með því að draga þessi afmörkuðu álitaefni fram strax í byrjun. Vonandi getum við í framhaldinu átt málefnalegt samtal um þau og málefni landbúnaðar í stærra samhengi. Orð eru til alls fyrst. Stundum finnst mér að umræðan snúist bara um tvennt: Endalokin eða öflugasta landbúnað í heimi. Er ekki rétt að byrja einhvers staðar þarna á milli? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Eitthvað var það. Jafnvel eitthvað áhugavert. En um leið og ég settist niður til að skrifa gleymdi ég því auðvitað samstundis. Þið sýnið mér vonandi smá þolinmæði meðan ég reyni að rifja þetta upp. Smá biðlund í Billund, ef þið eruð að lesa þetta þar. Bensín: rokgjarnara en Stórhöfði? Hvað gæti ég hafa lesið nýlega? Jú, gluggaði loks í hina frægu bók Kama Sutra um daginn. Aldeilis hvað ég brann fyrir efninu, nánast frá fyrstu málsgrein. Þetta var reyndar á sérlega sólríkum degi í Portúgal, svo kannski var það bara þess vegna sem ég brann. Gleymdi mér við lesturinn og sólvörnin mætti því afgangi. Engu að síður alveg funheitt efni. Líklega engin tilviljun að bálfarir og bólfarir tengist oft, svona séð yfir aldirnar. Oftar þó í öfugri stafrófsröð held ég. Hvað annað var ég að gera nýlega? Fyrir skömmu notaði ég vaskaföt til að vaska föt. Föt sem við setjum í fatahengi, líkt og samlíkingar í samhengi. En það hafði ég ekki gert lengi, þó rétt samhengi sé auðvitað lykilatriði. Keyrði líka framhjá Brókarvatni á Vesturlandi. Það man ég vel, enda leiddi það huga minn beint í þverfaglegar hugsanir. Sjálfsagt mætti nýta brókarvatn til að slökkva áðurnefnd bál, sé fyrir því vissa að manneskjan sem um ræðir verði ekki við það alveg bálreið. Ekkert af þessu ætlaði ég þó að miðla til ykkar, en nú man ég loksins hvað það var. Búsetumál Nýlega komst ég að því að íbúafjöldi við mína reykvísku götu er margfalt meiri en ég hélt. Stór hluti þeirra reyndist ekki einu sinni skráður í Þjóðskrá. Heilu hóparnir virðast geta búið hér án þess að mikið beri á og komist algerlega hjá því að vera til í opinberum gögnum. Þetta kom mér á óvart. Satt að segja hef ég enga hugmynd hvaðan þau komu né hve lengi þau eru búin að vera hér, en skv. mínum heimildum er þetta víst nokkuð algengt. Mikilvægt er að taka fram að sjálfsagt eru þau ekki viðriðin neitt ólöglegt eða gruggugt. Þegar maður kemst að einhverju svona grunar mann þó auðvitað ýmislegt. Hvað með sameiginlegu sjóðina? Fyrst þau eru ekki til í opinberum gögnum, borga þau væntanlega enga skatta né gjöld til ríkis og sveitarfélaga, eða hvað? Sjálfsagt var þetta lengi augljóst þeim sem vissu af, en ég hafði ekki tekið eftir neinu fyrr en mér var bent á þetta. Kona sem býr á Akureyri hafði vitneskju um málið og mér til lukku var hún svo almennileg að deila þessu með mér. Svo kom bruninn. Bruni eða íkveikja? Hundruð íbúa sáust inni í bruna! Sem betur fer var ekki um íkveikju að ræða. Það skýrðist fljótt þegar ljóst varð að þessi bruni var víst innsláttarvilla. Burnirót átti þarna að standa. Burnirót (Rhodiola/Sedum rosea) kannist þið örugglega flest við. Hún vex víða um land og er bæði falleg og gagnleg. Oft búa hins vegar á henni heilu hóparnir af agnarsmáum langmítlum af tegundinni Aceria rhodiolae. Stundum kallaðir hnúðmaurar. Þótt orðið „agnarsmáir“ beri með sér að þeir séu svipaðir að stærð og Agnar, sjást þessir einungis með smásjá. Nærast á plöntusafanum og gera okkur ekkert mein. Eru meira að segja sérhæfðir á burnirót og hafa engan áhuga á öðrum tegundum. Enn eitt dæmið um „sérfræðinga að sunnan“? Fyrir tæpum sextíu árum sungu bítlarnir „Ticket to Ride“, en til lengri ferðalaga húkka mítlarnir miðalaust far t.d. með flugum. Flugurnar leita í blómin og því setjast þeir oft að þar. Þeir láta svo plöntuna sjálfa um að byggja fyrir sig híbýli, með því að sprauta efni í plöntuvefinn sem orsakar hnúðmyndun. Plönturnar bíða sjaldnast nokkurn skaða af veru mítlanna. Þegar hnúðar myndast á sjálfum blómunum getur það þó dregið úr sjálfsáningarhæfni plöntunnar. Mennskir neytendur burnirótar mættu hafa í huga að magn annars af tveim virkum efnum í plöntunni (salidroside) getur helmingast, séu mítlarnir til staðar. Ekki nógu frægir Burnirótin er ekki ein um slíka ábúendur. Svipaða mítla má t.d. finna á grasvíði/smjörlaufi (Salix herbacea) og sjást ummerkin þar líka einna helst í kringum blóm eða nærliggjandi blöð. Hafið endilega augun opin í náttúrunni. Flestir taka eflaust ekki eftir neinu óvanalegu, en einhverjir hafa séð mun og velt þessu fyrir sér. Af því mítlarnir eru lítt þekktir meðal almennings hérlendis og sjást ekki utan smásjár, er ekki skrýtið að fólki detti í hug sveppasýking. Það er einmitt þess vegna sem sýni rata til konunnar á Akureyri. Sveppafræðingsins Guðríðar Gyðu Eyjólfsdóttur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Hún sá fljótt að engin ummerki um sveppi voru til staðar. Í þröngu samhengi fannst ekkert, en af því hún hefur augun og hugann opin, sá hún hins vegar umrædda mítla. Rétt samhengi Hafi einhver gefist upp á miðri leið, heldur viðkomandi kannski að eitthvað vandræðafólk hafi komið sér fyrir við götuna mína. Þið sem lásuð áfram fenguð heildarmyndina. Alla söguna um burnirótina og íbúa hennar í réttu samhengi. Sveppafræðingar eru ekki eina fólkið sem þurfa að skoða hlutina nánar til að komast að hinu sanna. Við eigum jú til að lesa bara fyrirsagnir og jafnvel fyllast „réttlátri reiði“ án þess að kynna okkur málið betur. Í réttu samhengi. Fréttum kannski ekki af hinu rétta fyrr en miklu seinna. Jafnvel eftir að hafa sagt eða gert eitthvað sem við hefðum betur sleppt. Borusveppir og rassblöðkur Ekki er hægt að ljúka grein um mítlana án þess að minnast á rassblöðkurnar. Þeir eru með fjóra fætur á framenda og tvær blöðkur á afturenda, takk fyrir. Vafalítið notaðar til að losa sig sem hraðast við óvelkomna lykt. En hvað var annars með þessa borusveppi? Hvað er borusveppur? Borusveppir brjóta niður dauðan við og mynda sumir seig, fjölær aldin með áberandi lykt, sem mynda árlega nýtt borulag. Við greiningu getur útlitið, ekki síður en borustærðin, hjálpað til. Greiningar og annar sveppafróðleikur er nokkuð sem áðurnefnd Guðríður Gyða er einmitt óþreytandi í að fræða landann um og á hún hinar mestu þakkir skildar fyrir. Fyrir alla sem vilja fræðast meira er því rétt að nefna í lokin Facebook­hópinn hennar, en hann heitir: Funga Íslands – sveppir ætir eður ei. /Kristján Friðbertsson Kristján Friðbertsson. Brókarvatn og borusveppir Smásjármynd af Aceria rhodiolae. Mynd / Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir Hnúðmyndanir í blómum burnirótar. Mynd / Kristján Friðbertsson.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.