Bændablaðið - 07.09.2023, Side 65
65 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
Nú þegar vetur nálgast er gott
að byrja á vetrarprjóni. Þetta
fallega og einfalda hálsskjól
situr svo vel á börnum.
Uppskrift að húfunni má finna
á vef garnstudio.com
Drops Design: nr me-084-bn
Stærðir: 2 (3/5) 6/9 (10/12) ára
Garn: DROPS Merino Extra Fine
(fæst í Handverkskúnst)
150 (150) 200 (200) g litur á mynd
nr 38, blá þoka
Prjónar: Hringprjónar 40 cm, nr 3
og 3,5. Sokkaprjónar nr 3,5
Prjónfesta: 22 lykkjur x 30
umferðir = 10 x 10 cm í sléttu
prjóni.
Garðaprjón (prjónað fram og til
baka): Lykkjurnar eru prjónaðar
slétt í öllum umferðum.
ÚRTAKA-2 (á við um hliðar
framan og aftan á hálsskjóli):
Öll úrtaka er gerð frá réttu og
lykkjum ef fækkað innan við 5
kantlykkjur í garðaprjóni.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 5
KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI
ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna
eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið
lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var
prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 5
KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI
ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan
5 kantlykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur
slétt saman (= 1 lykkja færri).
Útaukning (á við um útaukningu fyrir
axlarsæti):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp
þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni
að neðan, þráðurinn er tekinn upp að
aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri
lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp
þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni
að neðan, þráðurinn er tekinn upp að
framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari
lykkjubogann.
GARÐAPRJÓN: Lykkjurnar eru
prjónaðar slétt í öllum umferðum.
HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING
Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á
sokkaprjóna / stuttan hringprjón frá vinstri
öxl (þegar stykkið er mátað) – prjónað
er ofan frá og niður. Fyrst er prjónaður
kantur í hálsi í stroffprjóni. Síðan eru
lykkjur auknar út fyrir axlarsæti í hvorri
hlið, áður en axlalykkjurnar eru felldar
af. Síðan er bakstykkið og framstykkið
prjónað fram og til baka á hringprjóna
hvort fyrir sig til loka máls.
Fitjið upp 96 (104) 112 (120) lykkjur
á stutta hringprjóna nr 3. Prjónið stroff
hringinn (= 2L sl, 2L br) í 8 (9) 10 (11)
cm, eða að óskaðri lengd. Nú eru sett
4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt
er að neðan – þetta er gert án þess að
prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki
er sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin
eru notuð síðar þegar auka á út fyrir
axlarsæti. Setjið fyrsta prjónamerki
í byrjun á umferð – á undan fyrstu
lykkju, teljið 38 (38) 42 (42) lykkjur
(= bakstykki), setjið 2. prjónamerki
á undan næstu lykkju, teljið 10 (14)
14 (18) lykkjur (= öxl), setjið 3.
prjónamerki á undan næstu lykkju,
teljið 38 (38) 42 (42) lykkjur (=
framstykki), setjið 4. prjónamerki á
undan næstu lykkju. Nú eru 10 (14) 14
(18) lykkjur eftir á öxl á eftir síðasta
prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki
fylgja með í stykkinu, það á að auka
út við hvert prjónamerki. Skiptið yfir
á hringprjón nr 3,5 og prjónið fyrstu
umferð þannig: Prjónið sléttprjón yfir
38 (38) 42 (42) lykkjur á bakstykki og
fækkið jafnframt um 6 lykkjur jafnt
yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA/
ÚTAUKNING, haldið áfram með
stroff yfir 10 (14) 14 (18) lykkjur á
öxl, prjónið sléttprjón yfir 38 (38) 42
(42) lykkjur á framstykki og fækkið
jafnframt um 6 lykkjur jafnt yfir þessar
lykkjur, haldið áfram með stroff yfir 10
(14) 14 (18) lykkjur á öxl = 84 (92) 100
(108) lykkjur.
Síðan er aukið út fyrir axlarsæti eins og
útskýrt er að neðan.
ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Prjónið sléttprjón yfir 32 (32) 36 (36)
lykkjur á bakstykki og framstykki
og stroffprjón yfir 10 (14) 14 (18)
axlalykkjur. JAFNFRAMT er aukið
út um 4 lykkjur í hverri umferð fyrir
axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN
2. og 4. prjónamerki og á EFTIR 1. og
3. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4
lykkjur fleiri – útauknar lykkjur tilheyra
framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. að
10 (14) 14 (18) axlalykkjurnar haldast
stöðugar). Aukið svona út í hverri umferð
alls 8 (10) 12 (12) sinnum = 116 (132)
148 (156) lykkjur.
Í næstu umferð eru alxalykkjurnar felldar
af, þ.e.a.s. prjónað er frá byrjun á umferð
þannig (= við 1. prjónamerki): Prjónið 5
lykkjur brugðið, 38 (42) 50 (50) lykkjur
sléttprjón, 5 lykkjur brugðið, fellið af
næstu 10 (14) 14 (18) axlalykkjur með
brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur
og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, 5
lykkjur brugðið, 38 (42) 50 (50) lykkjur
sléttprjón, 5 lykkjur brugðið, fellið af 10
(14) 14 (18) axlalykkjur með brugðnum
lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum
lykkjum yfir sléttar lykkjur. Ekki klippa
þráðinn frá. Bakstykkið og framstykkið
er síðan prjónað hvort fyrir sig fram og
til baka á hringprjóna.
BAKSTYKKI: = 48 (52) 60 (60)
lykkjur. Prjónið fyrstu umferð frá réttu
þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni,
prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru
eftir í umferð, prjónið 5 kantlykkjur í
garðaprjóni. Haldið áfram fram og til
baka í sléttprjóni með 5 kantlykkjum í
garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT
þegar bakstykkið mælist 2 (3) 3 (3) cm
frá þar sem axlalykkjur voru felldar af,
fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá
ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með
2½ (3) 3 (3) cm millibili alls 3 (3) 4 (4)
sinnum í hvorri hlið = 42 (46) 52 (52)
lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 10
(12) 13 (14) cm frá þar sem axlalykkjur
voru felldar af. Nú eru eftir ca 3 cm til
loka máls, mátið e.t.v. hálsskjólið og
prjónið að óskaðri lengd.
Nú eru lykkjur auknar út eins og
útskýrt er að neðan, til að koma í
veg fyrir að stroffið sem prjóna á
dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1
umferð frá röngu eins og áður þar sem
aukið er út um 10 (10) 12 (12) lykkjur
jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/
ÚTAUKNING = 52 (56) 64 (64)
lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón
nr 3. Prjónið næstu umferð frá réttu
þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni,
*2L sl, 2L br*, prjónið frá *-* þar
til 7 lykkjur eru eftir í umferð,
prjónið 2 lykkjur slétt og endið með
5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið
svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið
af með garðaprjóni yfir garðaprjón,
sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur
og brugðnum lykkjum yfir brugðnar
lykkjur – sjá AFFELLING!
Hálsskjólið mælist ca 13 (15) 16 (17) cm
frá þar sem axlalykkjur voru felldar af.
FRAMSTYKKI: = 48 (52) 60 (60)
lykkjur. Prjónið alveg eins og bakstykki,
þ.e.a.s. framstykki og bakstykki eru
alveg eins.
Prjónakveðja,
Stelpurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Á Syðstu-Fossum í Borgarfirði
búa þau Unnsteinn og Harpa
ásamt Snorra, föður Unnsteins,
sem er fyrrverandi bóndi á
bænum, og Magnúsi, syni þeirra.
Býli: Syðstu-Fossar.
Staðsett í sveit: Borgarfjörður.
Ábúendur: Unnsteinn Snorri
Snorrason og Harpa Sigríður
Magnúsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við eigum tvo syni, Ísak Rey
(f. 2000) og Magnús Snorra
(f. 2015). Ísak er fluttur að heiman,
býr á Fáskrúðsfirði.
Á bænum býr einnig Snorri
Hjálmarsson, sem er pabbi Unn-
steins og fyrrverandi bóndi á
bænum. Í heimilisfesti eru einnig
tveir gagnslausir kettir, Doppa og
Aska, sem eru í eigu húsfreyjunnar.
Stærð jarðar: Jörðin er um 170
ha, þar af eru um 30 ha tún.
Gerð bús: Sauðfé og hross.
Fjöldi búfjár: 120 vetrarfóðraðar
ær og 25 hross
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum:
Dagarnir eru misjafnir, eftir
árstíðum, eins og gengur í
búskapnum. Harpa og Unnsteinn
vinna bæði utan bús. Unnsteinn
sér um gegningar að morgni áður
en hann fer til vinnu. Harpa sér um
að koma Magnúsi í skóla. Síðan
reyna allir að hjálpast að seinni
part dags eftir getu og áhugasviði.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegustu
verkefnin eru á vorin. Það fylgja
því alltaf einhverjir töfrar að taka
á móti vorinu með öllum þeim
verkefnum sem því fylgja.
Okkur þykja engin bústörf
sérstaklega leiðinleg, nema þá
helst bókhald og skýrsluskil.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5
ár: Það eru ekki fyrirhugaðar
neinar breytingar á búskapnum
næstu árin.
Við erum opin fyrir tækifærum
sem geta skapað meiri tekjur af
búskapnum, þannig að ekki þurfi
að sækja vinnu utan bús í eins
miklum mæli.
Hvað er alltaf til í ísskápnum:
Það er þetta hefðbundna, íslenskar
landbúnaðarafurðir, svo sem
mjólk, smjör, ostar og skinka.
Síðan er gjarnan til sviðasulta og
kalt slátur.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu: Þegar mikið liggur
við er eldað lambakjöt. Steikt
bleikja er líka ofarlega á
vinsældalistanum.
Eftirminnilegasta atvikið við bú-
störfin: Við gefum Magnúsi orðið:
„Mér fannst skemmtilegt þegar
kindin mín bar, 3 lömbum, úti á
túni eitt vorið. Við þurftum að
sækja hana á bílnum.
Pabbi mátti ekki vera að því
að setja hana inn á réttum tíma
því hann var að halda fyrirlestur
í tölvunni um vinnuhagræðingu
á sauðburði. Svo setti pabbi eitt
lambið á um haustið, en ég komst
að því í vor og núna á ég 6 kindur,
átti nefnilega bara 5.“
Syðstu-Fossar
BÆRINN OKKAR
HANNYRÐAHORNIÐ
Notalegt hálsskjól