Bændablaðið - 07.09.2023, Qupperneq 66

Bændablaðið - 07.09.2023, Qupperneq 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023 Grágæs er stærst þeirra gæsa sem verpa á Íslandi og getur orðið allt að því 3,5 kg að þyngd. Hún er mjög algeng og útbreidd um allt land að undanskildu miðhálendinu sem hún eftirlætur frænku sinni, heiðagæsinni. Grágæsir eru að mestu farfuglar en þó dvelja þær nokkurn tíma á landinu. Fyrstu fuglar koma snemma, eða um miðjan mars, og dvelur mikill hluti þeirra hér alveg fram í nóvember. Algengt var að nokkur hundruð fuglar héldu til allan veturinn á Suðurlandi. Með hlýnandi loftslagi undanfarin ár og aukinni kornrækt á Suðurlandi hefur sú tala stóraukist og hlaupa staðfuglarnir nú á einhverjum þúsundum. Utan varptíma eru þær félagslyndar og sjást gjarnan í stórum hópum á láglendi þar sem þær sækja helst í gras eða korn í ræktuðu landi. Þær gæsir sem yfirgefa landið á veturna dvelja að mestu á Bretlandseyjum. Það getur verið tilkomumikil sjón á vorin og haustin að sjá stóra gæsahópa í oddaflugi. Langt farflug tekur mikið á fuglana en með því að fljúga í v-laga oddaflug tekst þeim að minnka loftmótstöðuna svo að fuglarnir geta flogið lengra án þess að þreytast. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson FRÆÐSLA Seint á sjöunda áratugnum mátti finna grein í vikublaði hérlendis þar sem hnútalitun svokölluð var lofi sungin. Kom fram að þarna væri um að ræða indverska litunaraðferð sem hefði þekkst frá alda öðli, þarlendis undir nafnið bandhnu. Litunin fór þannig fram samkvæmt vikublaðinu: „Vefnaðurinn er hnýttur saman á ýmsum stöðum og honum dýft í lit, til að fá fram alls konar mynstur, litskrúðugar klessur, hringi og tígla, mismunandi reglulegt, en alltaf litskrúðugt, og nú er það orðið þannig að þessi litunaraðferð er notuð bæði á ódýran fatnað og til að gera upp gömul föt, og svo er það líka notað og ekki síður, á betri efni og í glæsilegan samkvæmisklæðnað.“ Ókrýndur konungur hnútalitunar Kom á daginn að þessir tísku- duttlungar höfðu hafist hjá blómabörnum Kaliforníu sem voru hvað áköfust í að fá útrás fyrir litagleði alheimsins með allri þeirri skynjun sem möguleg var. Mátti sjá vinsæla tónlistarmenn þessa tíma klæðast litríkum flíkum, þá John Sebastian sérstaklega, en hann var þekktur fyrir einlægan áhuga sinn á hnútalitun. Stóð í sífelldum litabreytingum á fatnaði sínum, jafnvel strigaskónum – auk þess sem má finna afar litaglatt tónlistarmyndband með laginu hans, You are a big boy now, á Youtube. Nú í dag þekkir fólk hnútalitun frekar undir orðskrípinu Tædæ. Eða tie-dye. Klórtískan mikla Einhverjir gengu í gegnum tímabil á unglingsárunum þar sem „acid eða bleach-wash“ var móðins, eða „að klóra“ galla og bómullarfatnaðinn sinn. Þeir þekkja þetta kannski helst sem eru fæddir seint á áttunda áratugnum. Þessi aðferð með klórnum má segja að sé á borð við hnútalitunina, nema þar var útkoman þannig að heldur dró úr litnum frekar en hitt. Þetta er þó skemmtilegt og eina sem þarf að gæta er að hafa fatnaðinn ekki of lengi í klórnum svo hann eyðist ekki upp. Á meðan að klóraðferðin er fremur einföld og krefst nær einungis þess að viðkomandi eigi í fórum sínum klórbrúsa og plastfötu – er tædæið heldur kröfumeira. Aðferð hnútalitunar Fyrsta skrefið er að fara í búðir á borð við Liti og föndur, sem eitt sinn var til húsa á Skólavörðustígnum en er nú í Kópavogi, og finna þar fatalit eða liti sem gleðja. Gúmmíteygjur eða tvinni verða að vera handbær og sú flík eða klæði sem á að lita verður að vera þvegin með mildri sápu og höfð rök. Gúmmíteygjurnar eru bundnar á víð og dreif eins og sjá má á mynd – en til eru hinar ýmsu aðferðir við þetta skref. Næst er litnum blandað í vatn eins og stendur á pakkningunum og klæðið sett þar ofan í. Öðrum finnst best að leggja klæðið á bökunargrind svo litirnir renni síður saman. Eftir litun þarf að leyfa flíkinni eða klæðinu að draga í sig litinn og sitja í að minnsta kosti 8 klst. ef vel á að takast til, allt að sólarhring og jafnvel í plastpoka. Skola svo vel með köldu vatni. Margir notast við hvítt edik og kalt vatn til helminga til að festa litinn vel eftir að litarefnið hefur verið skolað úr og þá í 30 mínútur. Hægt er að bæta við öðrum lit eftir fyrstu litun, og svo koll af kolli. Einnig má setja lit í plastflöskur og sprauta honum á klæðið eða mála það með pensli. Jurtalitun Til eru þeir sem ganga skrefi lengra og nota jurtir við litunina. Þá er gott að kynna sér vel þau skref sem taka þarf en hérlendis má finna ýmislegt, bæði í ísskápnum og í náttúrunni, sem má nýta sér. Íslendingar hafa litað klæði í áraraðir og hér áður fyrr nýttu þeir sér bæði haugarfa og keytu til að gegna hlutverki festis. Keytan festi þó ekki aðeins litinn heldur breytti honum þannig að litirnir urðu skýrari. Í dag leika málmsölt á borð við álún sama hlutverk – sem festir eða til breytinga á litbrigðum. Bleikur = rófur, rauðlaukur Gult = laukhýði, túrmerik Blár = svartar baunir, bláber Grænt = gras, spínat, Fjólublátt = rauðkál, krækiber Að lokum er gaman að segja frá því að þeir sem standa í jurtalitun vilja gjarnan nota gamlan, jafnvel ryðgaðan pott, en litamunur er á flíkum sem eru litaðar í mismunandi tegundum potta, þá ál-, kopar- eða járnpottum. Álið er talið draga úr styrkleika litar á meðan kopar eða járn gera litinn sterkari. Áhrif (ryðgaðra) járnpotta geta orðið til þess að ef t.d. litað er með laukhýði sem vanalega gefur gulan lit – þá getur það orðið ólífugrænt. Og skemmtið ykkur nú vel. /SP Tíska: Náttúruleg hnútalitun Hér eru sjö skref hnútalitunar í myndum en á myndinni að ofan má sjá tónlistarmanninn John Sebastian í essinu sínu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.