Stuðlaberg - 01.12.2016, Blaðsíða 9

Stuðlaberg - 01.12.2016, Blaðsíða 9
STUÐLABERG 2/2016 9 Meðfram veggnum leiðin lá Út er komin bókin Ævintýrið af Sölva og Oddi kóngi. Bára Grímsdóttir hefur samið söguna. Söngtextana gera hún og Helgi Zim­ sen. Myndskreytingu annaðist Halla Sólveig Þorgeirsdóttir. Geisladiskur fylgir bókinni og er tónlistin í umsjón Báru Grímsdóttur. Sagan er að miklu leyti rakin í ljóðum þar sem ort er undir margvíslegum bragar­ háttum. Þar má sjá ferskeytt, afhent, langhent, stikluvik, braghent samrímað og bak sneitt, stefjahrun, breiðhent, skamm hent, stafh ent og samhent. Söguþráðurinn er ævin týra legur eins og hann á að vera og endar vel eins og venjan er með þessa tegund bókmennta. Hér á eftir fara nokkur dæmi um vísurnar. Við grípum niður í söguna þar sem Sölvi eltir Odd kóng út um nótt með aðstoð huliðs­ hjálms: Sölvi huliðshjálminn bar, hann má konung elta þar. Ganga þeir um gang og brátt gegnum stóran sal. Þar við enda er opin gátt, inn um hana skal. Breið og löng þá birtast göng, bogahvelfing há. Inn fer kóngur, þar er þröng, þoka skellur á. Sölvi huliðshjálminn bar, hann má konung elta þar. Sölvi ekkert sá sér frá, svart var útsýnið. Greitt má stefnu góða fá, gangaveggs við hlið. Sölvi huliðshjálminn bar, hann má konung elta þar. Meðfram veggnum leiðin lá löng og sjón ei fín, þar til loksins þoku grá þraut og birtist sýn. Kynleg jurt er / kræklurót Davíð Hjálmar Haraldsson hefur sent frá sér fimm bækur sem hann kallar Davíðs­ bækur I-V. Um þessar bækur var fjallað í vor­ hefti Stuðlabergs 2015. Nú hefur Óðinsauga gefið út Sjöttu Davíðsbók sem er að því best er vitað án fordæma í ljóðbókmenntum okkar. Hann yrkir sextíu og sex ljóð um jafnmargar plöntur úr íslenskri náttúru og birtir mynd af hverri plöntu á opnunni móti ljóðinu. Þetta samspil ljóða og mynda er einstakt.

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.