Stuðlaberg - 01.12.2016, Side 21
STUÐLABERG 2/2016 21
það.“ Ég sá strax fyrir mér hvernig þetta yrði
og sendi Ástu um hæl þessa vísu:
Googlebílinn gramdist mér að sjá
og glott sem var í andlitinu á karlinum.
Bláum myndum bjóst hann við að ná,
bölvaður, og læddist upp að pallinum.
Hvert er uppáhaldsskáldið?
Ásta: Fyrstu tuttugu árin var það Davíð
Stefánsson, svo Hulda, Steinn Steinarr, Ólöf
frá Hlöðum, Guðmundur Böðvarsson, hann á
ljóð við öll tilefni lífsins. En maður verður líka
að nefna Sigrúnu Haraldsdóttur og Bjarka
Karlsson. Hvílík krísa! Nei svona spurningu
er ekki hægt að svara nema með bullandi
samviskubit!
Fanney: Eins og fyrr segir er ég alin upp á
Davíð Stefánssyni, þykir enn vænst um ljóðin
hans og kann vandræðalega mörg þeirra ut
anbókar. Af seinni tíma skáldum er Bjarki
Karlsson í algeru uppáhaldi.
Heiða Guðný: Davíð Stefánsson og Einar
Benediktsson eru í miklum metum en síðari
árin finnst mér eiginlega mest koma til Bjarka
Karlssonar.
Hafið þið systur kveðist á?
Ásta: Já, það höfum við gert. Ef átt er við
það að byrja næstu vísu á þeim staf sem sú
fyrri endar á þá hef ég gert það frá blautu
barnsbeini. Pabbi, mamma og Ásgeir fóstri
minn kunnu öll ógrynni af vísum og laum
uðu að okkur og hjálpuðu til. Þess vegna
sperri ég ennþá eyrun ef ég heyri vísu sem
byrjar á sjaldgæfum staf.
Og svo höfum við systur, aðallega við
Heiða, skipst á vísum á líðandi stund. SMS
sendingar mínar til hennar voru oft samdar
undir stýri í traktor eða bíl. Og jafnvel á öðru
hundraðinu! Þær eru stundum þannig að við
höfum leitað leyfis hjá þeim sem ort er um
áður en við flytjum þann kveðskap, t.d. á hag
yrðingamótum.
Fanney: Já, við kveðumst á. Við höfum
þann háttinn á að senda vísur við alls kyns
tækifæri og ætlumst til að fá svar í sömu
mynt. Stundum eru vísurnar þá svar við
þeirri fyrri, en oft eru þær bara lýsing á því
hvað við erum að aðhafast þessa stundina.
Það skal þó viðurkennast að ég er ekki eins
dugleg og hinar að svara og þykist hafa mér
það til afsökunar að hafa stundum minna
næði í vinnunni til að hugsa en þær.
Smá dæmi um þetta er t.d. hér frá nota
legum sunnudegi á miðju sumri, þar sem ég
var í rólegheitum að keyra trúss á milli fjalla
kofa – og sendi Heiðu smá upplýsingar.
Ljótarstaðasystur í Grímsey, frá vinstri: Ásta, Fanney og Heiða Guðný.