Stuðlaberg - 01.12.2016, Page 25

Stuðlaberg - 01.12.2016, Page 25
STUÐLABERG 2/2016 25 tíma til hugar komið að kalla mig skáld, þá hefði jeg kallað mig kvenna skáld, því mín kvæði eru meira gjörð fyrir stúlkurnar, en fyrir þessa sjergæðinga, enda sje jeg hvað þeir öfunda hvað kvæði mín ganga vel út, og hvað jeg er innundir hjá kvennþjóðinni á Íslandi“ (Símon Bjarnarson 1874:74). Í svari Símonar kemur glöggt fram að hann vill ekki telja sig til skálda hins nýja tíma; hann lítur á sig sem alþýðuskáld sem kveður með þeim hætti sem alþýðan hafði vanist, þekkti best og vildi heyra. Jón Ólafsson er þó ekki af baki dottinn og árið 1877 fagnar hann: „Landhreinsun mikil má það teljast í bókmentum vorum, ef að það er sönn fregn, sem oss hefir munnlega borizt, að ið alræmda leirskáld Símon Bjarnarson, er kallaði sig sjálfr „Dala-skáld“ sje látinn.“ Það kemur þó fram í þessari grein að Jón telur að Símon hefði getað gert betur sem komi fram í eftirmælum eftir dóttur hans og þau hafi verið „látlaus og viðkvæm og jafnvel – hor­ tittalaus!!“ (Jón Ólafsson 1877:164). Símon sér sig tilneyddan að svara Jóni og bendir enn á vinsældir sínar hjá lærðum og leikum en sakar Jón á móti um ritstuld og lélegan skáldskap og sæmir hann nafninu „Alaskaskáld!!“ honum til háðungar (Símon Bjarnarson 1878:47-48). Raunar hefur varðveist vísa eftir Símon sem sýnir að honum var ljóst að hæfileikar hans voru meiri en hann bar alla jafna á torg (Árni G. Eylands 1951:85): Einn bezt skilja þú munt það, þengill dýrðar hæða, mjög að hef ég misbrúkað mína gáfu kvæða. Ýmsir brugðust við Símoni til varnar, meðal annarra Matthías Jochumsson sem fullyrti að gullkorn fyndust í ljóðum Dalaskáldsins en Bólu­Hjálmar launaði honum þau ummæli með níðvísu. Lengi síðan átti Símon í vök að verjast. Árið 1906 birtist mynd af Símoni í tímaritinu Óðni. Litlu síðar birti ritstjóri þess, Þorsteinn Gísla­ son, stutta grein þar sem kom fram að ýmsir lesendur hefðu hneykslast á þeirri mynd­ birtingu. Ritstjórinn baðst þó ekki vægðar en fullyrti að mynd Símonar eigi að geymast. „Hann er síðasti fulltrúi æfagamallar kveð­ skaparstefnu og þjóðkærrar hjer í landi um langan aldur“ (Símon Dalaskáld 1906:32). Mun það rétt mat hjá ritstjóranum. Það var svo ekki fyrr en eftir að Símon var allur að menn létu falla niður svigurmælin og drógu það fremur fram sem prýddi hann en það sem lýtti. Tvenn eftirmæli birtust strax eftir dauða hans, eftir Jens Sæmundsson í Vísi og Gísla Ólafsson í Ísafold. Matthías kvaddi Símon með eftirmælum og falleg eftirmæli Jóns Magnússonar eru í ljóðabók hans Blá­ skógar. Í vinstri dálki á næstu blaðsíðu er ljóð Jens, skáldbróður Símonar, undir hætti sem Dalaskáldið kunni að meta (Jens Sæmunds­ son 1916:4). Sjá einnig heimildaskrá á næstu síðu. Þórður Helgason Símon Dalaskáld um fertugt.

x

Stuðlaberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.