Úrval - 01.04.1966, Blaðsíða 17
FYNDNI Á BAK VIÐ JÁRNTJALDIÐ
15
Ulbrieht er dauður.“ Hálfri klukku-
stund síðar kemur sami maðurinn
aftur og segist þurfa að tala við
Ulbricht.
„Er ég ekki búinn að segja þér,
að Ulbricht er dauður?“ En eftir
30 mínútur kemur sami maðurinn
enn, og biður um viðtal við Ul-
bricht.
„Hver þremillinn er þetta! Ég er
búinn að segja þér tvisvar, að fé-
lagi Ulbricht er dauður. Hvað á ég
að segja þér það oft?“ „Já, já, ég
veit það,“ svarar maðurinn. „En ég
get aldrei fengið að heyra það nógu
oft.“
Ulbricht er að vísu óvinsaelli en
Tító marskálkur, en Júgóslavarnir
hafa líka sínar gamansögur. Tító
er yfirmaður ríkisins, yfirmaður
flokksins og yfirmaður hersins.
Kennari nokkur spyr einn nem-
anda sinn, hvers vegna Tító hafi
allar þessar þrjár stöður. Nemand-
inn svarar, að enginn maður í Júgó-
slavíu geti framar lifað á einu starfi.
í Dubrovnik muntu fyrr eða síð-
ar heyra þetta: „Tító segir, að árið
1970 munum við hafa ein'n bíl á
hverja fimm íbúa, einn kjúkling í
hverja fjóra potta, og eina skó-
á hverja þrjá fætur.“
Það var í Belgrad sem ég heyrði
sagt frá fornleifafræðingi, sem kom
aftur með múmíu frá Egyptalandi.
Þegar vísindamennirnir við háskól-
ann í Belgrad gátu ekki ákveðið
nákvæmlega aldur múmíunnar,köll-
uðu þeir á leynilögregluna. Eftir
fjórar klukkustundir komu leyni-
lögreglumennirnir út úr rannsókn-
arstofunni og sögðu, að múmían
væri nákvæmlega 3144 ára gömul.
Prófessorarnir voru furðulostn-
ir. Þá langaði til að vita, hvernig
lögreglumennirnir hefðu farið að
þessu. „Ósköp einfalt," sagði leyni-
lögreglan. „Múmína meðgekk."
FURÐULEGAR GERVIHENDUR
1 Aldermaston í Englandi hefur nýlega tekizt að fullgera nýja, mjög
fullkomna gerð af gervihöndum. Hendur þessar lita ekki aðeins út
eins og raunverulegar hendur, heldur eru einnig hreyfingar þeirra
eðlilegar. Slikar eðlilegar hreyfingar eru mögulegar vegna furðulegr-
ar, lítillar rafmagnsvélar, sem falin er í lófa gervihandarinnar, sem
sýnir svo eðlileg viðbrögð við daufum rafmagnsstraumssendingum, sem
handleggsvöðvarnir taka á móti.
Rafhönd þessi gerir hinum fatlaða mögulegt að gera flesta þá hluti,
sem hann gæti gert með sinni eigin hendi.
Ehn er aðeins um sýnishorn að ræða, en það mun bráðlega verða
hafin framleiðsla á gervihöndum þessum i Bretlandi, þannig að fatl-
aðir munu geta eignazt þær með hjálp sjúkratrygginganna.
Sunday Expresa