Úrval - 01.04.1966, Blaðsíða 129
3000.000.000 ÁRA GAMLIR STEINGERVINGAR
127
sagði svo frá að fundizt hefðu 3000
milljón ára gamlir steingervingar
í bergi. Með þessu er sannað, að
lífið á jörðinni á sér miklu lengri
aldur en haldið hefur verið fram
að þessu.
í nokkur hin síðustu ár hefur
próf. Barghoorn unnið að því sein-
lega og leiðinlega verki að leita að
steingervingum frá jarðöldum eldri
en kambríutímabilið. Það hefur oft
borið við, að vísindamenn hafa
fundið það sem í fljótu bragði virt-
ist vera steingervingur af frum-
stæðum dýrum eða jurtum, en
reyndist vera ólífrænt efni, við nán-
ari athugun.
En svo gerðist það árið 1960,
að próf. Barghoorn fann kol í Michi-
gan sem talið var vera 1,7 millj-
arða ára og langelzti vottur um líf
hér á þesum löngu liðnu öldum jarð-
sögunnar. Seinna fundust svo leifar
af lífverum frá því fyrir 2,7 millj-
örðum ára.
Síðustu fundir próf. Barghoorns
er það sem hann fann í bergi í Suð-
ur-Afríku. Jarðfræðingar telja berg
þetta vera afarfornt, og var farið
með mola úr því til Harvard, og
fengnir próf. Barghoorn, en hann
skoðaði þá í afarsterkri smásjá. Sá
hann í þeim strik sem líktust bakt-
eríum þeim sem enn eru til hér á
hnettinum. Ef þessi fundur stenzt
allar prófanir, þá er hér komin
sönnun fyrir því að lífið var tekið
að þróast hér aðeins (á jarðsögu-
legum mælikvarða) 1,5 milljörðum
ára eftir að jarðskorpan er talin
hafa myndazt.
Annar fundur sem lagður var
fram, bendir til þess að ó-
hætt sé að telja sögu prófaðra
dýrategunda a.m.k. 20% lengri,
en áður var, og er þetta hið mesta
áfall fyrir kenninguna um hina öru
þróun lífsins fyrir 600 millj. ára.
Andrew H. McNair, sem starfar við
Dartmouth-háskóla, tilkynnti á
fundinum að hann og félagar hans
hefðu fundið þróaðar tegundir í
bergi sem er eldra en frá kambríu-
tíma. Rannsóknaleiðangur frá Dart-
mouth, sem fór til eyjar nokkurrar
við norðurströnd Canada, sem heit-
ir Victoria, fann skeldýr sem líkt-
ist hörpudiski, og kallast brachi-
opod og ormategundir í bergi, sem
álitið er vera eldra en 720 milljón
ára. (Steingervingar voru horfnir
sjálfir, aðeins holrúm eftir, þar sem
þeir höfðu verið.)
Eit hið erfiðasta við þessa leit
að steingervingum frá því fyrir
kambríutímann, er að finna berg
sem nógu ofarlega sé í jarðlögum
til þess að unnt sé að leita í því.
Bæði Victoria-eyja og staður sá í
Suður-Afríku þar sem steingerving-
arnir fimdust, eru jarðfræðilegur
óskapnaður. Enginn veit með vissu
aldur bergsins í Victoria-eyju. Fyrst
var aldurinn samkvæmt rannsókn-
um talinn vera 720 milljón ár, en
svo fannst að radioisotóp-mælirinn
hafði ekki mælt rétt. Bergið gat
verið 455 milljón ára, minnst. En
jarðfræðingarnir frá Dartmouth
segja að þetta sé fjarstæða, bergið
hljóti að vera eldra. „Þetta er eins
og ef kona segist vera eldri en 21
árs, en er þó miðaldra. Þetta er
ekki ósatt, en því síður satt,“ sagði
einn hinna viðstöddu á fundinum.
Aðferðin er ekki fullkomnari en