Úrval - 01.04.1966, Blaðsíða 70
68
ÚRVAL
um, þvert yfir þessa sigurgöngu-
götu.
í hinu nálæga Wilhelmstrasse, þar
sem stjórnarbyggingar og fyrrver-
andi hallir voru til beggja handa,
glitruðu gangstéttirnar og akbraut-
in af glerbrotum þúsunda glugga.
Nr. 73, litla höllin, sem hafði ver-
ið opinbert aðsetur þýzkra forseta
á dögum Þriðja Ríkisins, var nú að-
eins svipur hjá sjón. Það hafði eyðzt
í æðandi eldhafi, og þar stóðu að-
eins veggjabrot uppi. Einni götu-
lengd neðar í götunni stóð nr. 77
enn uppi, en það var þó allt sund-
urskotið og alsett skrámum. Hrúg-
ur af múrsteinum og alls kyns rusli
lágu allt í kringum þetta þriggja
hæða hús, sem var eins og L í lag-
inu. Út úr gulbrúnum, óhreinum og
skrámuðum framveggnum teygðu
sig veglegu svalirnar, sem verið
höfðu vitni að svo mörgum æðis-
legum ræðurn, sem þrungnar höfðu
verið ögrunum og ógnunum í garð
gervalls heimsins. Ríkiskanslarahöll
Adolfs Hitlers var enn uppi stand-
andi.
Loftvarnaflautur tóku nú að væla
um gervalla borgina til merkis um,
að hættan væri liðin hjá í bili. 314.
loftárás bandamanna á Berlín var
nú lokið. Fyrstu stríðsárin höfðu
árásirnar verið strjálar, en nú náðu
þær næstum saman í einni sam-
hangandi, óendanlegri keðju. Banda-
ríkjamenn gerðu loftárásir að deg-
inum og konunglega, brezka fluglið-
ið (RAF) að nóttu til. Sprengjurn-
ar höfðu eytt tíu fermílum íbúðar-
og iðnaðarhverfa eða tíu sinnum
stærra svæði en þýzka flugliðinu
(Luftwaffe) hafði tekizt að eyða í
Lundúnum í sínum loftárásum þar.
Ofboðslegir haugar múrsteina og
alls kyns rusls lágu hvarvetna um
allar götur. Næstum helmingur af
hinum 1.562.000 íbúðum Berlínar
hafði gereyðilagzt eða skemmzt.
A.m.k. 52.000 menn höfðu týnt lífi
í loftárásunum og tvöfallt fleiri
særzt alvarlega, eða fimm sinnum
fleiri en í loftárásunum á Lundúni.
Og lokaógnirnar áttu enn eftir að
dynja yfir.
En í þessari auðn eyðileggingar-
innar hélt lífið samt áfram sinn
gang, sem kalla mætti vitfirrings-
lega vanagang miðað við allar að-
stæður. 12.000 lögreglumenn voru
enn á verði. Bréfberar báru út póst,
dagblöð komu út daglega, símaþjón-
ustunni var haldið áfram og sorp
hreinsað. Sum kvikmyndahúsin og
leikhúsin voru enn opin. Útsölur
voru í stórverzlununum. Mikið var
að gera í fatahreinsunum og á
snyrtistofum. En furðulegast af öllu
var þó kannske það, að meira en
65% af verksmiðjum Berlínar héldu
enn áfram störfum að meira eða
minna leyti. Það tók Berlínarbúa
oft nokkrar klukkustundir að kom-
ast í vinnu og úr, og því höfðu þeir
tekið þann sið að fara snemma á
fætur. Allir vildu komast nógu
snemma til vinnu, af því að banda-
rísku flugmennirnir tóku daginn
líka snemma og voru oft komnir
til vinnu sinnar yfir borginni klukk-
an 9 að morgni.
Þennan bjarta morgun streymdu
Berlínarbúar fram úr vistarverum
sínum í hinum 20 hverfum borgar-
innar líkt og eins konar hellisbúar.
Þeir komu neðan úr neðanjarðar-