Úrval - 01.04.1966, Síða 50
HUGRAKKUR KLERKUR
★ * * ★¥
Eftir Quentin Reynolds.
ólf sinnum höfðu allir
verið „kallaðir út“ um
nóttina, en engin óvina-
flugvél hafði komizt í
gegn, og nú með morg-
unsárinu höfðu Japanarnir skundað
heim til stöðva sinna á Okinawa og
Kyushu. Allt benti til að í hönd
færi aðeins dagur venjulegra dag-
legra starfa á stóra flugvélamóður-
skipinu af Essexflokki, U.S.S. Frank-
lin, sem sveimaði fram og aftur
um 53 mílur austur af Shikokueyju,
rétt .á dyraþrepi Japans, ef svo má
segja.
Franklin var heitið eftir frægri,
en óútkljáðri orrustu í þrælastríð-
inu, orrustunni við Franklin í Tenn-
essee, en flestir af áhöfninni héldu
að skipið héti eftir Benjamin Frank-
lin og nefndu það venjulega Big
Ben. Það hafði verið á Kyrrahaf-
inu nærri heilt ár, tók þátt í bar-
dögunum um Mariana- og Filipps-
eyjar, og var öllum leiðum kunn-
ugt. Núna, klukkan 7 að morgni,
er orrustuflugvélar þess voru fjar-
verandi, höfðu skroppið til Kobe-
borgar, var skipið statt um 50 míl-
ur frá Japan.
Niðri í dagstofunni létu flugmenn-
irnir fara vel um sig og sötruðu
kaffi. Aliir töldu sig örugga og áttu
sér einskis ills von. Þeir voru í
miðju kafi í geysimikilli hernaðar-
framkvæmd, undir stjórn Mare Mits-
chers, varaflotaforingja. Flokkur
orrustuvéla var á verði og sveim-
uðu yfir skipinu. 30 steypiárásar-
vélar var verið að hita upp á stóra
flugþilfarinu, og á neðra flugþil-
farinu (hangar deek) voru aðrar 28
flugvélar, allar hlaðnar sprengjum
og eldsneyti.
Aftur á hekkinu tautaði Meto-
distapresturinn Grimes W. Gatlin
frá Grandview í Texas útfararat-
höfnina mildum rámi yfir háseta,
sem andazt hafði um nóttina.
Niðri í matsal yfirmanna var séra
Joseph Timothy O'Callaham höf-
uðsmaður að borða morgunverð á-
samt fleirum yfirmönnum. Klerkur-
inn er grannur maður, dökkur yfir-
litum með svart liðað hár og and-
litsdrætti eins og síungur kórdreng-
ur.
„Þetta er friðsamur dagur“, sagði
48
Colliers