Úrval - 01.04.1966, Blaðsíða 126
124
ÚRVAL
uðust það meðal annars, að uppi-
vöðslusöm smábörn mundu eyði-
leggja hina opinberu garða borgar-
innar. Hann gróðursetti samt blóm
í þúsundatali. Og nú eru þessir
garðar stolt og gleði borgarbúa.
Einnig spáðu þeir því, að hinir
frelsisunnandi Finnar fengju brátt
nóg af „sambýlinu" í samfélagi, þar
sem. borgarráð sá fyrir öllu, hita,
heitu vatni, gufubaðstofum, blóma-
görðum og skemmtunum. En hingað
til hefur enginn kaupandi beðið
Húsnæðismálastofnunina um endur-
greiðslu afborgana.
FRAMTÍÐARÁÆTLANIR
Von Hertzen er nú að vinna að
áætlunum fyrir aðrar borgir ásamt
hópi annarra húsateiknara. Og spá
þeir því, að framkvæmd þessara á-
ætlana muni snúa við straumi fólks-
ins til borganna. Hann sér í anda
sjö slíkar úthverfaborgir umhverfis
Helsinki, sérhverja borg fullkomlega
sjálfstæða og óháða. Húsnæðismála-
stofnunin hefur þegar eignazt 1600
ekrur lands um 25 mílum fyrir
vestan Tapiola fyrir eina slíka borg,
sem bera mun nafnið Strandborgin
Porkkala. Sú áætlun gerir ráð fyrir
„garðborg“ með um 100.000 íbúum.
Brátt munu einnig hefjast fram-
kvæmdir við aðra borg, er heita skal
Stensvik og er um 11 mílum frá
Helsinki.
En sjónarmið von Hertzens í
málum þessum er nú orðið víðfem-
ara en áður og nær nú til alls lands-
ins. Um þessar hugmyndir sínar
segir hann á þessa leið: „Til þess
að skapa byggðajafnvægi fyrir allt
landið og fyrirbyggja fólksflótta úr
vissum héruðum og koma þar á end-
urbótum á þessum vanþróuðu svæð-
um, hef ég stungið upp á því, að
þrjár nýjar borgir verði byggðar
frá grunni. Ein þeirra skal verða
í norðanverðu Finnlandi, önnur í
Ostrobothnia (vestanverðu Finn-
landi) og sú þriðja í austurhluta
Finnlands."
Von Hertzen hefur veitt forstöðu
nefnd, er ber nafnið United Nati-
ons European Seminar on Social
Aspects of Housing (þ.e. nefnd á
vegum Sameinuðu Þjóðanna, sem
fjallar um tengsl húsnæðis og ým-
issa þjóðfélagsvandamála). Hefur
hann þrásinnis verið beðinn um að
lýsa Tapiolaáætluninni á fundum
borgarskipuleggjenda í fjölda landa.
Nú skulum við láta hann hafa orðið
um efni þetta: „Þjóðfélagsfræðingar
tjá okkur, að yfirfull borgarhverfi
magni ýmis þj óðfélagsleg og sál-
fræðileg vandamál, svo sem
drykkjusýki, skólaskróp og flakk,
unglingaafbrot og sjálfsmorð, svo
að nokkur séu nefnd. Þýðingar-
mesta markmið borgarskipulags
nútímans verður að vera sköpun
umhverfis, sem sé hæfur bústaður
fyrir manninn þjóðfélagslega og
líffræðilega séð. Nýtízku borgar-
skipulag og íbúðabyggingar eru lyk-
illinn að því marki.“
Að vísu hefur verið um nokkra
fj öldaframleiðslu húsa og húshluta
að ræða í Tapiola, en samt er hvert
hús skipulagt þannig, að það rjúfi
hið venjulega tilbreytingarleysi
borganna. Um þetta atriði kemst
Heikki von Hertzen svo að orði:
„Arkitektúr skipar þar ekki fyrsta
sæti, þ.e. gerð og útlit byggingar-