Úrval - 01.03.1969, Page 24
22
ÚRVAL
til að auka hatur innan fjölskyldunn-
ar. Væri það ákjósanlegt að opin-
bera þessi mistök fyrir almeninngi,
og láta fjögur börn Georgs líða fyrir
afbrot föðurins? Væri ekki hyggi-
legra að taka tapinu og hætta við
refsiaðgerðir? Þau samþyktu, — þau
sáu líka að þau höfðu ekkert upp
úr málaferlum.“
Reiði, gremja og hefnigirni deyfa
dómgreindina. Þótt það geti verið
stundarléttir að ryðja úr sér því sem
hvílt hefir á huganum, þá er hætt
við því að maður sjái eftir því síðar.
Það er hyggilegt að fara varlega
með leyndarmál annarra, og ekki
síður ef það eru okkar eigin leynd-
armál. Kunningakona mín, sem er
rithöfundur, sagði mér frá skóla-
systur sinni, sem stóð andspænis
hjónaskilnaði. Þessar konur hittust
oft. Dag nokkurn bauð konan, sem
átti í miklu sálarstríði, vinkonu
minni til hádegisverðar, og fleipraði
þá út úr sér ýmsu sem var niður-
lægjandi fyrir eiginmann hennar og
hjónaband þeirra. Á eftir hefir hún
líklega bæði skammast sín og séð
eftir því að hafa leyst frá skjóð-
unni, í augnabliks æsingi, og það
varð til þess að hún hætti að hitta
vinkonu sína, neitaði hreinlega að
sjá hana aftur.
Það er öruggt að það getur verið
gott „að tala út“, getur jafnvel orðið
sú heilsubót, sem þörf er fyrir. En
það eru takmörk. Mark Twain sagði
að játning gæti verið „góð fyrir sál-
ina, en slæm fyrir mannorðið." Hann
hefði getað bætt því við að hún geti
reynt á og jafnvel eyðilagt samband
beztu vina.
Það er dálítið athyglisverð eftir-
skrift við þessa hugrenningu mína.
Vinkona mín sagði: „Þegar hún fór
að segja mér frá öllum vandræðum
sínum, hefði ég átt að segja henni að
ég hvorki kærði mig um eða vildi
vita um þetta. Það getur verið að
það hefði sært hana þá, en ég hef
þá trú að við værum ennþá vin-
konur.“
Stundum getur það verið ógæti-
legt að tala, en það getur líka verið
ógætilegt að hlusta. Því þegar einu
sinni er búið að ljóstra upp um
leyndarmál, verður það ekki aftur
tekið. Sá sem hlustar er líka gæzlu-
maður þess ævilangt og það getur
ásótt báða aðila.
Maðurinn er maður vegna þess að
hann á einkalíf sem hann varðveitir
í hjarta sínu, hug og sál. Þetta er
hluti af virðugleik hans sem mann-
legrar veru, merki um persónulegt
frelsi.
Einræðisríki leggja mikla áherzlu
á að borgarar þeirra þegi ekki yfir
leyndarmálum, að þeir tíundi allt
sem þeir vita. Með því niður-
lægja þau þegna sína. En við sem
njótum frelsis ættum að skilja það
að gætni í orðum og umgengni er
tvöföld blessun: — blessun fyrir
þann sem sýnir hana — og blessun
fyrir þann sem nýtur hennar ....