Úrval - 01.03.1969, Qupperneq 61
Á AÐ BANNA FLUG RISAÞOTANNA?
59
lasergeislum eða skyldum aðferðum
- að það drægi úr þrýstiloftsbylgj-
unni eða kæmi jafnvel í veg fyrir
myndun hennar, en ekki hafa þeir
fund;ð neina nothæfa aðferð til þess
enn sem komið er. Þá standa og yfir
tilraunir með ný og léttari trefja-
efni, í því skyni að draga úr þunga
flugvélanna — bresturinn verður
að sama skapi meiri og þær eru
þyngri, því að vængstærðin fer eftir
þyngdinni.
Þess verður að öllum líkindum
langt að bíða að lausn finnist á
þessu vandamáli, en yfirhljóðsbrest-
urinn bylur þegar uppi yfir okkur,
og mótspyrnan gegn framtíðaráætl-
unum flugfélaganna færist stöðugt í
aukana. f maímánuði 1968 var efnt
til alþjóðlegrar andhávaðaráðstefnu
í Lundúnum, þar sem fulltrúar frá
25 þjóðum samþykktu áskorun til
ríkisstjórnanna um að setja löggjöf
sem bannaði flug með hljóðfrömum
flugvélum, er gæti valdið fólki ,,lík-
amlegu eða andlegu tjóni“. Kanada
hefur þegar sett slíka löggjöf, en
eftirlitsráðstafanir eru þegar í und-
irbúningi í Sviss, Austurríki, Þýzka-
landi og Danmörku. Case öldungar-
deildarmaður, sem borið hefur fram
svipað lagafrumvarp í bandaríska
þinginu, kemst svo að orði: „Við
hljótum að hverfa frá blindri dýrk-
un okkar á tækninni og viður-
kenna þá staðreynd að tæknin er
vegna mannsins en ekki gagnstætt".
Að sjálfsögðu verða hinar hljóð-
frömu farþegaflugvélar teknar í
notkun. Þær eru nauðsynlegur þátt-
ur í hinni feiknhröðu þróun flugs-
ins. En sú þróun má hvorki skaða
taugakerfi almennings né hljóð-
himnur.
Hinn fullkomni stjórnmálamaður er leikinn í að kasta upp krónu
um hlutina með góðum árangri, sko, kórónan upp, ég vinn, talan upp,
ég vinn eitthvað annað.
Charles A. Cerami..
Það er ekki fáfræðin, sem er dauði þekkingarinnar, heldur mætti
segja, að það væri fáfræðin um fáfræðina, það að vita ekki, að maður
er fáfróður.
Alfred North Whitehead.
Mannlegt líf er aldrei öruggt, hvernig sem þvi er lifað .... og mikið
aif töfrum þess er einmitt fólgið í þessari staðreynd.
Edgar Ansel Mowter.
Vandamálið er það, að unglingunum finnst, að þeir verði að hneyksla
hina fullorðnu, og það verður bara alltaf erfiðara og erfiðara að
hneyksla hverja nýja kynslóð.
Cal Craig.