Úrval - 01.03.1969, Side 85

Úrval - 01.03.1969, Side 85
DJÖFLASÁTTMÁLI OG NORNAHÁTÍÐIR 83 Síðan er Djöflinum sýndur við- eigandi hollustuvottur. Það á sér þannig stað að hann snýr afturend- anum í söfnuðinn, sem síðan kyssir hann á vissan stað. Ekki kemur hann þó þannig fram við alla; ný- liðana, sem hann treystir enn ekki fullkomlega, beitir hann sjónhverf- ingum, þannig að þeir sjá fyrir sér glæsilegan höfðingja og halda sig kyssa hendur hans. Þvínæst hefst fagnaðurinn fyrir alvöru; galdra- fólkið hefur hringdans við hljóð- pípuleik og snýr bökum inn í hring- inn. Meðan dansinn er troðinn syngja púkar og nornir í kór: „Harra, herra, djöfull, djöfull, stökkva hér, stökkva þar, hoppa hér, hoppa þar, leika hér, leika þar.“ Að lokum þrífur svo hver púki sína norn, og þégar þau hafa svalað fýsnum sínum, eru stundirnar stytt- ar með frásögnum af þeim slysum, sem nornirnar hafa valdið frá næstu hátíð á undan. Fyrirliðar púkanna hýða þær, sem ekki hafa gert við- unandi skammarstrik. Þegar hinir nýju meðlimir norna- samfélagsins hafa þannig séð allt, sem bíður þelrra af góðu og illu, eru þeir teknir hátíðlega inn í sam- félagið með því að þeir skrifa nafn sitt í stóra bók með eigin blóði. Stundum gerir hlutaðeigandi við þetta tækifæri skriflegan samning við Dj öfulinn og áskilur sér þá viss jarðnesk gæði gegn því að gefast þeim gamla eftir ákveðinn tíma. En þesskonar samninga þarf ekki endi- lega að gera við nornafagnaðinn, heldur má gera þá hvenær sem er, eins og sjá má á eftirfarandi: „Ég undirrituð, Magdalena de la Palud, gef hér með til kynna og yf- irlýsi að ég í nærveru tveggja votta, herra Louis Godfridys og púkans Belsibúbs, afneita fullkomlega og af öllu hjarta og af öllum mætti mín- um og krafti Guði Föður, Syni og Heilögum Anda, allratignastri Guðsmóður, öllum dýrlingum og englum og séráparti mínum eigin verndarengli — o.s.frv.“ Þegar nöfnin hafa verið skráð í bókina og samningar gerðir við þá, sem þess óska, eru nýir meðlimir skírðir. „Þetta er ástæðan til þess að margar nornir og galdrakarlar heita tveimur nöfnum.“ Að lokum þrykkir Djöfullinn á þau merki sínu, svo að hann megi þekkja þau úr öðru fólki, en helzt á leyndum stað á líkamanum, þar sem aðrir taka varla eftir því. En sá blettur, sem Djöfullinn hefur snortið fingri sínum, er þaðan af ónæmur fyrir sársauka, og á slíkum blettum má helst þekkja sanna galdramenn og nornir. Meðal hinna gömlu höfunda var það mjög umdeilt hvort nornir gætu getið afkvæmi við púkum og djöflum. Sumir töldu það ekki úti- lokað, en slík afsprengi væru þá aldrei í mannsmynd, heldur ógeðs- legar verur í einskonar skepnulíki. Varla þarf að taka fram að allir hættir nornasamfélagsins: norna- skírnin, árshátíðirnar miklu, brennsla Djöfulsins á sjálfum sér og upprisa hans með meiru eru stæl- ingar á helgum siðum og atburð- um úr kristnum dómi. Og hvað ætti dj öfladýrkunin að vera annað en skrípastæling á guðsdýrkuninni?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.