Úrval - 01.03.1969, Síða 89

Úrval - 01.03.1969, Síða 89
í SKJÖL VALACHI 87 í ð morgni þ. 22 júní árið 1962 gerðist það í ríkis- fangelsinu í borginni Atlanta í Georgíufylki, að fangi einn, Joseph Michael Valachi að nafni, greip járnrör í fangelsisgarðinum, æddi að einum samfanga sínum aftan frá og barði hann til bana á nokkrum sekúndum. f fyrstu virtist hér aðeins vera um að ræða eitt af morðum þeim, sem framin eru öðru hverju af mönnum, sem eru að kikna undir þrúgandi fargi lífsins innan fang- elsismúranna. Vissulega var fátt, sem virtist benda til þess, að Vala- chi ætti nokkra sérstöðu meðal fanganna. Hann var 57 ára að aldri, dökkleitur og fremur lágur, en mjög kraftalega vaxinn maður. Rödd hans var hás og sargandi. Hann hafði verið dæmdur fyrir heroinsölu, en hann virtist samt vera einn þessara óþekktu saka- manna, sem eiga sér ekki neina sér- stöðu. En það var vegna þessa dráps, að það varð einmitt Valachi, sem varð fyrsti maðurinn til þess að fletta ofan af starfsemi Cosa Nostra í Bandaríkjunum. Þar er um að ræða risavaxin og þrautskipulögð glæpa- samtök. Og nú vita menn, að glæpa- samtök þessi eru hið ríkjandi afl að baki skipulagðrar glæpastarf- semi í Bandaríkjunum. Valachi hafði lifað og hrærzt í þessum heimi miskunnarlauss baktjalda- makks og bralls í um þrjá tugi ára án þess að rjúfa þann blóðeið holl- ustu og þagnar, sem hann hafði verið látinn sverja. En vissar furðu- legar aðstæður, sem sköpuðust í fangelsinu í Atlanta, urðu loks til þess að fá hann til að leysa frá skjóðunni. Vikum saman á undan morði þessu hafði líf Valachi verið sann- kallað hryllingslíf, þrungið voða og ógn. Einn af samföngum hans, Vito Genovese að nafni, hafði í raun og veru dæmt hann til dauða. Geno- vese var sá ,,capo“ eða yfirmaður innan Cosa Nostra, sem meðlimum og öðrum stóð langmest ógn af. í fyrstu gat Valachi ekki trúað því, að það ætti að drepa hann. Hann var meðlimur í „fjölskyldu" Vitos, en svo er hver aðaldeild innan Costa Nostra kölluð. Og Genovese hafði þar að auki verið svaramað- ur í brúðkaupi Valachi fyrir mörg- um árum. Þegar Valachi kom í fangelsið, var Genovese þar fyrir, en hann sat þar af sér dóm fyrir eiturlyfjasölu. Um stund virtist fara vel á með þeim. Genovese bauð Valachi jafnvel að gerast einn af 6 klefafélögum sínum. En þá ákærði annar fangi Valachi með leynd um að vera uppljóstrari, eða svo álítur Valachi. Valachi minnist þess, að skömmu síðar lét Genovese grímuna falla á ógnvænlegan hátt. „Kvöld eitt,“ segir Vito allt í einu við mig í klefanum okkar: ,,Sko, Valachi, við skulum taka eplatunnu sem dæmi. Það gæti ver- ið, að það væri skemmt epli í þess- ari tunnu. Og þá þarf að fjarlægja þetta epli!“ „Hafi ég gert eitthvað rangt,“ svaraði ég, „sýndu mér þá fram á það, og komdu svo með pillurnar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.