Úrval - 01.03.1969, Síða 104

Úrval - 01.03.1969, Síða 104
102 ÚRVAL Tony Bender, liðsforingja einum innan Cosa Nostra. Hið raunveru- lega nafn hans var Anthony Strollo. Skömmu síðar fékk Valachi fyrsta áþreifanlega sönnunarvott þess, að það borgaði sig að vera meðlimur ,,fjölskyldu“ Lucianos. í félagi við Bobby Doyle var honum veittur lít- ill hluti af spilavélarekstri, en svikastarfsemi sú var rekin í New York af einum af liðsforingjum Lucianos. Hann hét Frank Cost- ello. Valachi voru afhentir 20 límmið- ar frá Costello. Átti hann að setja þá á spilavélar, sem hann og Doyle urðu svo sjálfir að kaupa. (Meðan James J. Walker var borgarstjóri í New York, voru allar spilavélar í borginni gerðar upptækar nema þær, er báru Costellolímmiðana). Valachi kom spilavélum sínum fyrir á bill- iardstofum og sælgætisverzlunum í Austur-Harlem. Og brátt voru brúttótekjur þeirra Doyle af spila- vélunum komnar upp í 2500 doll- ara á viku. Nú var Valach orðinn 26 ára gamall og hafði gnægð fjár handa á milli. Því ákvað hann að giftast. Hann hafði orðið ástfanginn af Mildred Reina, systur mannsins, sem hafði skotið skjólshúsi yfir hann og falið hann á hættustundu. („Þegar ég var á hanabjálkaloftinu, var Mildred vön að koma upp stig- ann og upp á loftið með því að lyfta hlera. Og þar töluðum við saman.“) En foreldrar Valachi höfðu kom- ið frá Napólí, þar sem Reinafjöl- skyldan var aftur á móti ættuð frá Sikiley. Móður Mildred, bróður og frændum var alls ekki um þá til- hugsun gefið, að Valachi giftist Mildred, og því mynduðu þau hverja hindrunina á fætur annarri til þess að koma í veg fyrir, að það yrði nokkuð úr giftingu. Hjóna- efnin ráðgerðu því að strjúka burt, en það komst upp á síðasta augna- bliki. Milfred missti alveg móðinn og reyndi jafnvel að svipta sig lífi. „Jæja,“ segir Valachi, „ég fór á fund Vitos og útskýrði öll þessi vandræði fyrir honum. Hann kall- aði mig svo á sinn fund eftir nokkra daga og sagði, að hann hefði sagt Sikileyingunum, og átti þá við frændur Mildred, að þeir skyidu ekki skipta sér af þessu máli. Hann sagði við þá, að hefðu þeir verið hæfir til þess að giftast sínum kon- um, væri Jói hæfur til þess að gift- ast Mildred, og væri Jói ekki hæfur til þess, væri enginn okkar hæfur, eins og hann orðaði það. Og til þess að þeir skildu nú afdráttar- laust, hvar hann stæði í máli þessu, segir hann þeim bara, að hann vilji verða svaramaður minn.“ Þetta útkljáði málið. Valachi varð samt að afbera langa, form- lega trúlofun. En þ. 18. september árið 1932 gengu þau Mildred loks í heilagt hjónaband. Veizlan, sem haldin var að athöfninni lokinni, var í veitingahúsinu Pálmagörðun- um við 52. stræti rétt hjá Broad- way. „Leigan fyrir salinn kostaði ein næstum þúsund dollara“,“ segir Valachi. „Og það voru miklir pen- ingar í þá daga. Þú verður að muna, að þá var fullt af fólki, sem varð að ráfa um göturnar og reyna að selja epli til þess að hafa eitthvað að éta. Eg fékk tvær hljómsveitir,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.