Úrval - 01.03.1969, Blaðsíða 118

Úrval - 01.03.1969, Blaðsíða 118
116 ÚRVAL stúlku, sem hét Mildred, og dreng, sem hét Donald og fæðzt hafði ár- ið 1936. Og nú flutti fjölskyldan í einbýlishús norður í Yonkers í norðurjaðri New Yorkborgar. Geno- vese hafði sjálfur ráðlagt Valachi að flytja út í úthverfin. „Þar eru allt aðrar aðstæður en inni í borg- inni,“ sagði hann. „Þú skalt gefa skátunum og öllum góðgerðarfélög- unum. Reyndu líka að ganga í ein- hvern söfnuðinn. Og þú skalt láta kvenfólkið í hverfinu eiga sig.“ Donald hafði ekki hina minnstu hugmynd um glæpastarfsemi föður síns. „Eitt vil ég endilega taka fram um þetta tímabil ævinnar," segir Valachi. „Ég var mjög ánægð- ur yfir því, að ég ól drenginn minn þannig upp, að hann fékk ekki að kynnast lífinu eins og það er og var því ekki líklegur til þess að lifa lífinu á sama hátt og ég.“ Þetta voru órólegir tímar fyrir Valachi. Genovese var nú reiðubú- inn að hrifsa til sín öll völd innan Cosa Nostra. Og það lá í loftinu, að brátt færi allt í bál og brand. „Ég bar ekki á mér húslykla, þar sem mér hætti til þess að týna þeim,“ segir Valachi. „Ég kom oft heim seint að nóttu. Það ríkti dauðaþögn, þegar ég stanzaði fyrir útidyrunum heima hjá mér og ég herptist saman, þar sem ég bjóst við byssuskoti á hverju augnabliki. Mér fannst sem margir klukkutím- ar liðu, þangað til Mildred opnaði fyrir mér.“ LEYNIFUNDUR COSA NOSTRA- FORSPRAKKANNA Genovese hafði nú fundið veikan hlekk í varnarkeðju Costellos. Og hann byrjaði nú að notfæra sér þessa vitneskju af hinni mestu slægð. Hann sýndi mikla þolin- mæði. Þessi veiki hlekkur var einn af valdamestu stuðningsmönnum og nánustu vinum Costellos, William Moretti að nafni, sem gekk oft und- ir nafninu Willie Moore. Hann var meðlimur gömlu „Lucianofjölskyld- unnar“ og rak alls konar glæpa- starfsemi í norðurhluta New Jer- seyfylkis. Moretti átti við mjög erfitt vanda- mál að stríða. Og þegar komið var fram á árið 1950, fóru helztu fé- lagar hans, hinir forsprakkarinr í Cosa Nostra, að hafa miklar áhyggj- ur af því. Hann þjáðist af syfilis á háu stigi, og það var bara tíma- spursmál, hvenær sjúkdómurinn bærist til heilans. Stundum fékk hann mjög slæm köst og var þá með hálfgerðu óráði og sagði ým- islegt, sem hefði verið vissara að þegja yfir. Þegar hann fékk þessi köst, kom Costello honum í hjúkr- un á afviknum stað. En hann gat ekki komið í veg fyrir, að Moretti mætti við yfirheyrslur á vegum glæparannsóknarnefndarinnar, en öldungadeildarþingmaðurinn Ern- est Kefauver stjórnaði yfirheyrsl- um þeim. Þessi fársjúki glæpafor- ingi þvældi um ýmsa hluti, þegar hann kom fyrir nefndina. Og oft virtist hann vera kominn á fremsta hlunn með að láta eitthvað út úr sér, sem gæti reynzt mjög hættu- legt fyrir Cosa Nostra. Um þetta segir Valachi svo frá: „Sko, Vito er eins og refurinn. ■— Hann bíður bara síns tíma. Vito vill,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.