Úrval - 01.03.1969, Side 124

Úrval - 01.03.1969, Side 124
122 ÚRVAL ann eru þeir að þvæla?“ spurði hann mig. „Ég er ekki að skrifa um ítali. Ég er að skrifa um meðlimi skipulagðra glæpaflokka.“ Þ. 1. febrúar árið 1966 kom nefnd 12 Bandaríkjamanna af ítölskum ættum saman á fund í Washington með Nicholas Katzenbach, saksókn- ara ríkisins, og öðrum yfirmönnum innan Dómsmálaráðuneytisins. — Fjórir þessara ítölsku Bandaríkja- manna sátu á þingi þjóðarinnar. Þeir kröfðust þess, að útgáfa bók- arinnar yrði stöðvuð, og hótuðu að fara með málaleitan sína til sjálfs Hvíta hússins. Robert F. Kennedy sálugi var ekki sérlega uppörvandi þegar ég ræddi þetta ástand við hann. „Þeir munu fara með málaleitan sína til Johnsons,“ sagði hann. „Það verður auðvelt fyrir hann að ná þeim þannig öllum í einu á krókinn. Hann segir Nick svo að ,,drepa“ bókina, og Nick mun ekki þrátta um það við hann.“ Og síðar í sama mánuði hóf Dómsmálaráðuneytið svo aðgerðir til þess að fá það í gegn, að mér yrði bannað að „skýra frá innihaldi handritsins eða gefa það út“. Valachi var nú fluttur til alríkis- fangelsisins í bænum Milan í Mic- higanfylki. Og þ. 11. apríl, eða fimm dögum eftir að honum var skýrt frá því, að það yrði ekkert úr útgáfu bókarinnar, sleit hann rafsnúruna úr útvarpstækinu sínu, gekk inn í steypibaðklefann sinn, batt öðrum enda snúrunnar við sturtuna og reyndi að hengja sig. Það var ein- skær tilviljun, að honum tókst þetta ekki. Það var málmþynna í sturt- unni, sem var ekki nægilega vel slípuð, og risti hún snúruna í sund- ur, er það stríkkaði á henni, þegar líkami Valachi hékk í henni af öll- um sínum þunga. Öll fullorðinsár sín hafði Vala- chi vanizt þeirra hugsun og trú, að Cosa Nostra væri ósigrandi afl. — Þegar hann bauð Cosa Nostra loks birginn, þá var tilhugsunin ein um væntanlega útgáfu þessarar frá- sagnar hans honum næg sönnun þess, að hann kynni að hafa haft rangt fyrir sér áður fyrr, er hann trúði sem heitast á ofurmátt Cosa Nostra. Hann fór að álíta, að það kynnu samt að vera til öfl í þessu landi, sem Cosa Nostra réð ekki við. En ákvörðunin um að stöðva útgáfu bókarinnar var mjög alvar- leg í hans augum. Honum fannst hún benda til þess, að jafnvel sjálf ríkisstjórn Bandaríkjanna gæti ekki staðizt ofurvald Cosa Nostra. Mér hafði verið neitað um að ná fundi Valachi, eftir að hann hafði verið fluttur í fangelsið í Milan. En það var samt gerð ein undantekn- ing í þeirri von, að mér tækist að fá hann ofan af því að gera aðra tilraun til þess að ráða sig af dög- um. Hann var enn mjög ráðvilltur, þegar ég kom á hans fund. „Ég skil þetta ekki,“ sagði hann. „Áður var ég að gera rétt, en nú er ég allt í einu farinn að gera rangt.“ Þetta var í síðasta sinn, að mér var leyft að heimsækja hann. Og ég sagði honum, að ég skyldi gera allt, sem í mínu valdi stæði til þess að sjá svo um, að hann fengi að segja sögu sína opinberlega. Og eft- ir langa viðureign f'yrir dómstólun-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.