Úrval - 01.11.1969, Side 8

Úrval - 01.11.1969, Side 8
6 ÚRVAL Morgunn nokkurn ár- ið 1888 vakti mjög leyndardómsfullt morð- mál almennan hrylling meðal bæjarbúa í litla, franska baðstaðnum St. Adresse. Kaupsýslumaður nokkur, André Monet að nafni, hafði komið til strandarinnar kvöld- ið áður með konu sinni til þess að eyða þar sumarleyfi sínu. Hafði hann gengið út úr gisti- húsinu til strandarinnar til þess að synda, áður en hann gengi til hvílu. Snemma næsta morguns fann bakarasendill Monet liggjandi í fjör- unni rétt fyrir ofan flóðmörkin. Hann var með byssukúlu í höfð- inu. Hann var allsnak- inn, og föt hans lágu vandlega samanbrotin við hlið honum. Aðalstciðvum Sureté, hinnar frægu, frönsku leynilögreglu, var til- kynnt þetta, og hún sendi strax til eins af beztu liðsmönnum sín- um, Roberts LeDru, og gaf honum fyrirmæli um að fara til Ste. Adresse og rannsaka málið. Le- Dru, sem var hetja allra franskra drengja, var þá í Le Havre, aðeins tveim mílum frá St. Adresse. LeDru var yngstur allra starfsmanna Sur- eté, en hafði þó hlotið æðstu viðurkenningu fyrir starfsafrek sín. Sagt var, að hann þyrfti ekki að gera annað en að virða fyrir sér fót- spor til þess að geta lýst þeirri persónu, sem fót- sporin voru eftir. Einn- ig var sagt, að honum nægði að þefa af vindla- ösku, og gæti hann þá sagt til um tegund tó- baksins, sem um hafði verið að ræða. LeDru einn vissi sannleikann. Hann var alls ekki snjall. Hann vann hægt og kerfis- bundið, var nákvæmur og þolinmóður. Þegar hann var sendur til þess að rannsaka eitthvert mál, þaulskoðaði hann hvern þumlung gólfsins í sérhverju herbergi hússins, tíndi upp hvern prjón, hvern þráðar- spotta. Ekkert var hon- um of mikil fyrirhöfn. Stundum eyddi hann mörgum tímum í að finna eiganda tölu sem fundizt hafði nálægt stað þeim, sem glæpur- inn hafði verið framinn á. Þessi þolinmæði hans og þrautseigja gerði honum kleift að leysa mjög flókin morðmál, og eru þar á meðal nokkrar snjöllustu lausnir, sem um getur. Samt vissi hann, að það myndi draga úr því áliti, sem yfirboðarar hans höfðu á honum, ef þeir gerðu sér grein fyrir því, hversu hægt og varfærnislega hann vann að lausninni hverju sinni. Þess vegna sendi hann yfirboður- um sínum mjög ýktar skýrslur um störf sín. í stað þess að viður- kenna, að hann hefði eytt fimm tímum í að hafa upp á grunuðum manni skrifaði hann í skýrslu sína, að hann Hér segir frá einkennilegasta sakamáli í alln sögu réttvísinnar. Fangi aðeins á nóttunni
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.