Úrval - 01.11.1969, Síða 12
10
ÚRVAL
undir nafninu „Kóngurinn" af því
að hann var svo stór og stæðilegur
og gekk með voldug spangargler-
augu, beygði sig fram og sagði við
félaga sína:
— Hvers vegna erum við alltaf
að pukra þetta hver í sínu lagi og
ljúga upp smáfréttum, sem ekkert
bragð er að? Ef við leggjum allir
saman, hlýtur andinn að koma yfir
okkur og við búum til eina alls-
herjarstórfrétt!
Svo byrjuðu þeir að ræða málið
fram og aftur og að lokum urðu
þeir ásáttir um eftirfarandi sögu.
Hópur af verkfræðingum frá fyrir-
tæki í Wall Street var staddur and-
artak í Denver á ferð sinni til Kína.
Þeir höfðu fengið það verkefni í
hendur að rannsaka hvernig hægt
væri að brjóta niður kínverska múr-
inn með sem minnstum kostnaði.
Fyrirtæki þeirra hafði haft sam-
band við stjórnarvöld í Kína, sem
höfðu ákveðið að rífa niður hinn
ævagamla múr sem tákn hins góða
vilja Kína til þess að opna landið
fyrir verzlun við önnur lönd.
Klukkan var þegar orðin ellefu
og blaðamennirnir urðu að hafa
hraðann á. Þeir fengu sér einn bjór
í viðbót.
Næsta skref var að skrifa „verk-
fræðingana" inn á hótel, svo að
hægt væri „að eiga viðtal við þá“.
Blaðamennirnir héldu því til hins
nýtízkulega Windsor-hótels og skrif-
uðu sig allir inn undir fölskum nöfn-
um eftir að hafa tryggt sér þag-
mælsku næturvarðarins. Nætur-
vörðurinn lofaði, að ef einhver
myndi spyrja einhvers daginn eft-
ir, þá myndi hann svara því til, að
„gestirnir" hefðu ekki talað neitt
við hann, en hins vegar hefðu þeir
rætt við nokkra blaðamenn, og
ennfremur að þeir hefðu haldið
áfram för sinni til Kína eldsnemma
um morguninn.
Ef gestabækur Windsor-hótelsins
eru ennþá til, þá er hægt að finna
þar hin fölsku nöfn blaðamann-
anna.
Að þessu loknu fóru blaðamenn-
irnir aftur yfir á Oxford-hótelið og
fengu sér eitt glas af bjór í viðbót.
Hér játuðu þeir munnlega leyni-
legan sáttmála, þar sem þeir skuld-
bundu sig til þess að hvika ekki frá
hinni upplognu sögu og þegja ævi-
langt um uppruna hennar.
Næsta morgun var stórletruð fyr-
irsögn yfir þvera síðu í „Rocky
Mountain News“, er hljóðaði svo:
VERÐUR KÍNVERSKI MÚRINN
RIFINN NIÐUR?
Fyrirsagnirnar í hinum blöðunum
voru svipaðar. „Denver Post“ prent-
aði sína í rauðum lit.
Þremur vikum síðar heimsótti
Lewis Wilshire og sýndi honum ein-
tak af stóru, suður-amerísku dag-
blaði. Blaðið hafði nýjar fréttir að
færa af kínverska múrnum, fréttir,
sem staðfestu söguna þeirra góðu.
Blaðið birti stóra mynd af kín-
verska múrnum, en ekki nóg með
það. Það hafði átt viðtal við kín-
verskan mandarína, sem var stadd-
ur í New York og staðfesti fréttina!
Sagan um eyðileggingu kínverská
múrsins breiddist út og var loks
símuð yfir hafið, án nánari rann-