Úrval - 01.11.1969, Síða 13
ÞEGAR ANDINN KOM YFIR . .
11
sóknar og eftirgrennslan. Þegar hún
barst til Kína varð kurr mikill með-
al hinna svokölluðu „Boxa“, sem
gerði það að verkum, að blóðug
uppreisn brauzt út.
Andrúmsloftið í Kína á þessum
tíma var mjög eldfimt. Rússland
hafði aflað sér réttar til að lengja
síberísku brautina gegnum Man-
churíu. Þeir höfðu þegar tryggt sér
Port Arthur. Englendingar bentu á
fordæmi keppinautarins og heimt-
uðu og fengu Weihaiwei og gátu
með því skákað Rússum. Þýzkaland
hafði þegar slegið eign sinni á
Kiautschou og Frakkar voru byrj-
aðir að hernema Indókína. Það leit
út fyrir að Kína væri dæmt til
sundrungar.
í Kína hafði á meðan verið stofn-
aður leynilegur sértrúarflokkur. •—-
Þeir höfðu það að takmarki að reka
útlendinga úr landinu. f fyrstunni
gerði þessi hreyfing lítinn skaða,
en þegar þeir lásu í blöðunum um
áform Ameríkana um að rífa niður
kínverska múrinn, urðu þeir svo
reiðir, að þeir gerðu uppreisn. Trú-
boðar og aðrir vestrænir menn voru
myrtir hundruðum saman og sendi-
herrar erlendra ríkja í Peking tekn-
ir höndum. Kuang-su keisari og
keisaradrottning hans flýðu.
Skelfingin breiddist út. 12 þús-
und brezkir, franskir, rússneskir,
japanskir og amerískir hermenn
héldu til Peking. Að lokum var
höfuðstaðurinn tekinn og íbúunum
bjargað. Uppreisnin stóð ekki lengi,
en blóðbaðið var hræðilegt.
Mörg ár liðu. Henry W. Warren
biskup sneri aftur til Ameríku eft-
ir rannsóknarferð um Kína. Eitt
laugardagskvöld hélt hann fyrirlest-
ur í meþódistakirkjunni í Denver
um ástandið í Austurlöndunum.
Wilshire var sendur þangað til þess
að taka niður upplýsingar trúboð-
ans í Kína.
— Vinir mínir, sagði hinn lærði
biskup í upphafi máls síns. -— Þið
gerið ykkur sennilega ekki ljóst,
hvílíkur máttur hins prentaða orðs
getur verið. Ýktar eða falsaðar
fréttir tendra ófriðareldinn, sem
síðan verður að einu allsherjar báli.
Wilshire yppti öxlum. Hann hafði
svo sem heyrt þennan söng áður.
En biskupinn hélt áfram:
-- Tökum til dæmis eyðilegging-
una, sem varð í uppreisn í Kína
fyrir nokkrum árum. Sá neisti, sem
þar varð að ófriðarbáli, var tendr-
aður af þremur (við vitum nú, að
þeir voru fjórir) blaðamönnum í bæ
einum í Vestur-Kansas eða Ne-
braska. (Það var reyndar í Kolo-
rado). Af einhverjum orsökum, sem
mér er ekki kunnugt um, bjuggu
þeir til og birtu í blöðum sínum
sögu um ameríska verkfræðinga,
sem unnu að því áð rífa niður kín-
verska múrinn og að Kína ætti síð-
an að vera opið upp á gátt fyrir
erlendri verzlun.
Wilshire, sem sat aftarlega í saln-
um, var nærri fallinn í yfirlið, þeg-
ar hann heyrði eftirfarandi:
— Þessi blaðalygi náði alla leið
til Kína og blöðin þar sögðu frá
henni með feitletruðum fjrrirsögn-
um, og ræddu málið í leiðurum sín-
um. Það var vonlaust verk að bera
fréttina til baka. Kínverjarnir trúðu
lyginni og það var ekki nokkur