Úrval - 01.11.1969, Qupperneq 26
24
ÚRVAL
kynni við frumstæðar þjóðir, var
tilgangur þeirra aðeins að svala æv-
intýraþrá sinni og drottnunargirni;
og til þess að halda samvizkunni
hreinni, neituðu þeir því að líta á
þetta fólk sem mannlegar verur.
Það var ekki fyrr en eftir tilskipan
Páls páfa 3. 1537, að farið var að
skoða þá sem menn, en ekki sem
dýr eða djöfla. Það er augljóst, að á
landfundatímabilinu voru ekki nein
skilyrði til að rannsaka menningu
hinna infæddu á vísidalegum
grundvelli. Hið eina, sem hugur sig-
Gríma, sem á að tákna hvítan trú-
boða. Það fer ekki mikið fyrir mildi
og kcerleika í svipnum!
urvegaranna girntist, voru dýrir
málmar og umfram allt gull. Því að
það var gullþorsti, en ekki löngun-
in til að kynnast ókunnum þjóðum
sem hvatti Spánverja og Portúgali
til að leita nýrra landa. 16. og 17.
öldin voru tímar hinna pólitísku
styrjalda og afstaða Evrópuþjóð-
anna til frumþjóðanna var alltof
heimsveldissinnuð til þess að nokk-
ur dýpri könnun á þessari nýfundnu
menningu væri hugsanleg.
Það er ekki fyrr en á átjándu öld,
að grundvöllur skapast fyrir þessar
rannsóknir. En fyrst á nítjándu öld-
inni vaknar áhuginn verulega, og
hin frumstæða menning verður þá
sá brennipunktur, sem hinn vísinda-
legi áhugi hvítra manna beinist að.
Allt öðru máli var að gegna um
hinn frumstæða mann. Hann gat
ekki komizt hjá því að verða fyrir
áhrifum af þessari nýju menningu,
að túlka þau í list sinni og leggja
með því dóm sinn á hinn hvíta sig-
urvegara. I fyrsta skipti sem hinn
hvíti maður birtist á slóðum ætt-
flokksins, vakti hann furðu, alveg
sömu tilfinninguna og við mundum
finna, ef við sæjum allt í einu íbúa
frá Marz á meðal vor. í augum
margra frumstæðra ættflokka hefur
hvíti maðurinn verið hetja flokksins
eða guð, aðrir hafa skoðað hann
sem einn af þeirra hópi, sem kom-
inn væri aftur úr ríki hinna dauðu;
enn aðrir sáu í honum persónugerv-
ing hins illa, sjálfan djöfulinn.
En jafnvel yfirnáttúrulegar ver-
ur dæma menn ósjálfrátt. Hvað
hugsuðu villimennirnir innst inni, í
fyrsta skipti sem þeir mættu hvít-
um manni? Af því að þessar þjóðir