Úrval - 01.11.1969, Side 29
27
LÍTTU í SPEGIL, HVÍTI MAÐUR
stofurnar til að borga skatt, sáu þeir
stór málverk, sem þeim var sagt að
væri af „hans hátign“, höfðingja
þeirrar þjóðar í Evrópu, sem öllu
réði. Hermennirnir voru í einkenn-
isbúningum hans og allt var gert í
hans nafni. Kennarinn sýndi börn-
unum lituð póstkort af honum, af-
mælisdagur hans var almennur frí-
dagur, og á dularfullan hátt tók
þessi fjarlægi höfðingi þátt í öllu,
sem skeði, þótt hann hefði aldrei
tíma til að heimsækja þessa þegna
í eigin persónu.
Allan seinni helming nítjándu
aldar var Viktoría drottning sam-
eiginlegt tákn brezka heimsveldis-
ins, og það er því ekkert undarlegt,
þótt hún hafi orðið mörgum hinna
frumstæðu listamanna að yrkisefni.
Ein af skemmtilegustu myndunum
er gerð af listamanni á strönd Nýju
Guineu. Það er tréskurðarmynd og
af því að hann hefur líklega aðeins
séð vangasvip drottningarinnar,
hefur hann aðeins sett á hana eitt
brjóst. Hinn skósíði kjóll hennar
hefur auðsjáanlega vakið hjá hon-
um efa urn, að slík kvenvera hefði
fætur eins og annað fólk. Listaverk-
ið náði því ekki lengra en niður að
kjólfaldi. En til vonar og vara hefur
hann þó skorið út örsmáa fætur inn
undir kjólnum, sem ekki sjást nema
myndinni sé lyft upp. Myndir af
eftirmanni drottningar, Játvarði
VII. voru notaðar til að fæla burt
illa anda í Ikobar í Austur-Indlandi.
Margar myndir svipaðar þessum
má finna í kofum hinna innfæddu,
þar sem þær eru notaðar við dýrk-
un forfeðranna eða aðra skurðgoða-
dýrkun.
En ef þér skylduð einhvern tíma
hætta yður inn í frumskógana, þar
sem innfæddir menn ráða enn ríkj-
um, og með h:nu nána sambandi sínu
við náttúruna hafa varðveitt óskert-
an þann eiginleika að sjá skýrt og
án hefðbundinna skoðana, ■— þá
gætið þess, að svipur yðar verði
ekki meitlaður í tré og vísindamenn
síðari tíma finni myndina innan um
aðrar fuglahræður eða djöfla og
setji hana á safn, þar sem hún er
öllum til sýnis. Myndin verður vafa-
laust lík yður, þótt þér getið ekki
komið auga á það, af því að þér
sjáið ekki í henni þau einkenni sið-
menningarinanr, sem ekkert eiga
skylt við hið upprunalega: náttúr-
una. Hafið því gát á hegðun yðar í
frumskóginum!
Sumir ökumenn minnast þess, þegar hægt var að aka frá New York
til San Francisco án þess að vera stöðvaður af uimferðaljósum ....
Það var ekki búið að finna þau fjandans „apparöt" upp þá. Og nú
getum við enn á ný gert þetta. Svo er 'njýja hraðbrautakerfinu fyrir
að þakka. Það tók bara 50 ár og 50 billjón dollara að koma okkur í
sömu spor og við eitt sinn vorum í.
Nevj York World-Telegram and Tlie Sun.