Úrval - 01.11.1969, Page 34
32
ÚRVAL
Sovézkir geimfarar munu einnig
finna verkefni í lengra könnunar-
flugi. Að því er varðar áætlanir, þá
munu þær verða sameiginlegar í
framtíðinni, þegar landnám í
geimnum verður sameiginlegt verk-
efni alls mannkynsins. Þá mun að
fullu hverfa óþarfar endurtekning-
ar rannsóknanna, sem ekki verða
til annars en wiðbótar eyðslu á
kröftum og fé.
— Er hægt að sjá fyrir sovézk-
bandaríska samvinnu um könnun
geimsins?
Samvinna milli Savétríkjanna og
Bandaríkjanna hefur þegar átt sér
stað um nokkurra ára skeið en ekki
í þeim mæli sem gagnlegt væri fyr-
ir löndin bæði. Sovézkir og banda-
rískir vísindamenn skiptast á fræði-
legum og praktískum upplýsingum
um margar athuganir sem gerðar
eru. Þegar á árinu 1964 var gerð
fyrsta sovézk-bandaríska tilraunin á
sviði fjarskipta í geimnum. Milli al-
heimsveðurathuganastöðvanna í
Mosku og Washington fara beina
leið veðurfræðilegar upplýsingar,
bæði venjulegar og þær sem gervi-
hnettir safna. Sovézkir og banda-
rískir vísindamenn vinna nú í sam-
einingu að vísindariti, þar sem
dregnar eru saman niðurstöður
rannsókna á sviði geimlíffræði og
læknisfræði. Og samt eru þessi sam-
skipti enn takmörkuð.
Sovézkir vísindamenn hafa alltaf
álitið víðtækt alþjóðlegt samstarf
gagnlegt fyrir þróun heimsvísind-
anna. Því erum við reiðibúinr til að
efla á allan hátt slík tengsli og þá
ekki aðeins við Bandaríkin heldur
og hvaða ríki sem er, á grundvelli
samkomulags sem báðir geta sætt
sig við. Við getum aðeins sagt, að
við hörmum að oft eru slík sam-
skipti torvelduð af ástæðum, sem
tengdar eru viðsjám í alþjóðamál-
um. En landnám í geim(num er
verkefni alls mannskyns. Og eng-
inn vafi er á því að ekki verða að-
eins Rússar og Bandaríkjamenn
fyrstir á fjarlægum geimbrautum
heldur og fulltrúar annarra þjóða.
Því er eins farið með minnið og litið barn, sem gengur á sjávar-
ströndu. Það er aldrei hægt að segja til um, hvaða steinvölu það hirðir
af leið sinni og varðveitir á meðal dýrgripa sinna.
Pierce Harris.
Mér geðjast vel að mönnum með meyr hjörtu og harðan haus.
Gerald Kennedy.
„Formúlan" fyrir vinsælan sjónvarpsþátt er sú, að konurnar reynist
snjallari en karlmennirnir, krakkarnir snjallari en konurnar o.g dýrin
snjallari en krakkarnir.
Richard E. Farson.