Úrval - 01.11.1969, Page 49

Úrval - 01.11.1969, Page 49
. . . VÉRZLUN með sjaldgæf heimilisdýr 47 inu. Iiann drap kött þarna í ná- grenninu, særði hund illilega og réðst svo á 11 mánaða gamalt barn, áður en hann var drepinn. Afl slíkra villtra heimilisdýra vex hættulega mikið, þegar þau verða fullvaxta, jafnvel þótt ekki komi fram slíkar stökkbreytingar á persónuleika þeirra og að ofan get- ur. „Maður kaupir sætan, lítinn tígrisunga," segir Stanley Creigh- ton, meðeigandi dýragarðsins Wild Acres í bænum Largo í Floridafylki. „Og svo kemur að því, að hann er orðinn um 12 fet á lengd. Það get- ur verið, að dýrið sé ekki viðskota- illt, en hvað ætli yrði um þig, ef það stykki á þig í leik sínum?“ —- Creighton talar af reynslunni. Hann er með ör hálfa leið umhverfis háls- inn. Það eru merki eftir klær ljóns, sem leikur var í og vildi leika sér við hann. En þrátt fyrir þessar staðreyndir eiga nú fleiri en 50000 Bandaríkja- menn ýmis sjaldgæf dýr af katta- ættinni. Og tala slíkra eigenda fer sívaxandi. „Þetta er bara stöðu- tákn,“ viðurkennir einn slíkur eig- andi. „Maður er, sko, sannarlega maður með mönnum, þegar maður labbar niður eftir götunni með oce- lot í bandi.“ En staðreyndir þessa máls eru mjög ömurlegar að áliti Rogers Caras, sem hefur rannsakað afdrif dýra þessara. Um þetta far- ast honum svo orð í grein einni í dýraverndunarblaðinu „The Natio- nal Humane Review“: „Af hverjum 10 ocelotum, sem fluttir eru til Bandaríkjanna frá Mið- og Suður- Ameríku, deyja 7—8, áður en þeir komast á einkaheimili.“ Margir innflytjendur slíkra dýra flytja inn miklu fleiri dýr en þeir geta vonazt eftir að selja, þar eð þeir búast við því, að mikill hluti þeirra muni deyja. Vinkona mín ein sagði mér sögur af dýrainnflytjanda einum, sem hún starfaði fyrir: — „Hann keypti dýrin í slöttum, til dæmis 25 köngullóarapa í einu. Og þótt hann gæti aðeins selt nokkra þeirra, þá græddi hann samt, því að hann fékk þá svo ódýrt. „O, það sér ekki högg á vatni, þar sem þess- ir eru teknir,“ sagði hann bara, þeg- ar dýrin hans dóu.“ Hvernig er svo dýra þessara afl- að? Við skulum taka gibbonapann sem dæmi. Innfæddi veiðimaðurinn í Indónesíu veit, að hann getur að- eins selt kornunga gibbonapaunga, helzt unga, sem nærast enn á móð- urmjólk. Því kveikir hann í frum- skóginum ásamt aðstoðarmönnum sínum til þess að svæla dýrin út úr þykkninu. Og svo þegar apamóðir kemur í ijós út úr reykhafinu fneð ungann sinn í fanginu, sveiflandi sér frá einni greininni yfir á aðra, skýtur hann hana, en gætir þess að særa ekki ungann. Takist honum að hitta hana og hafi unginn ekki meiðzt illilega í fallinu niður úr trénu, losar hann tak dauðu apynjunnar um litla ungann og kastar honum niður í strigapoka. Og það má teljast mik- il heppni, ef unginn kemst svo lif- andi til Bandaríkjanna. Áætlað er af þeim, sem gleggst þekkja til, að aðeins einn af hverjum átta mann- öpum lifi af veiðar þessar og flutn- inginn til Bandaríkjanna. —• Hvað sumar fuglategundir snertir, lifir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.