Úrval - 01.11.1969, Page 54

Úrval - 01.11.1969, Page 54
52 ÚRVAL í dagbók sína, að hann hefði „fagran vöxt, með breiðar herðar og fallegt mitti“. Hann hafði þunglyndisleg, blá augu, fallegan munn og yndis- legt nef eins og hún komst að orði í dagbók sinni. Hann kom á fimmtudegi ásamt Ernest bróður sínum . Næsta sunnu- dag skýrði hún Melbourne lávarði frá því, að hún hefði „skipt um skoðun varðandi giftingu“. Og þeg- ar komið var fram á mánudag, hafði hún ákveðið að giftast Albert. Og á þriðjudegi boðaði hún hann á sinn fund. Hún skýrði honum frá ákvörðun sinni, er þau voru orðin ein. í dagbók sína skrifaði hún lýs- ingu á því, sem gerzt hafði. „Að nokkrum mínútum liðnum sagði ég við hann, að ég héldi, að hann hlyti að gera sér grein fyrir því, hvers vegna ég hefði óskað eftir því, að þeir kæmu.... og að ég yrði mjög hamingjusöm, ef hann yrði við ósk- um mínum um að giftast mér.“ „Við föðmuðumst, og hann var svo góður, svo ástúðlegur.“ Hún var ástfangin. Hann hafði töfrandi framkomu, var góður og indæll og reiðubúinn til þess að gera það, sem hann hafði alltaf vit- að, að búizt yrði við af honum, er hann næði fullorðinsárum. Hann hafði verið alinn upp í þeirri vitn- eskju, að slíkt ætti fyrir honum að liggja. Og því var nú brúðkaups- dagurinn ákveðinn. En hvorugt þeirra var hamingju- samt þennan biðtíma. Og vansæld þeirra jókst, eftir því sem leið nær úrslitastundinni. Hún var altekin ótta um, að hann mundi reyna að ná einhverju af völdunum í sínar hendur, þannig að hún yrði ekki í raun og sannleika lengur stjórnandi ríkis síns. Hún óttaðist einnig, að hann mundi reyna að ná öllum yf- irráðum í einkalífi þeirra. Hún gerðist nú taugaóstyrk og uppstökk og svo æst í skapi, að leitað var til læknis. Hvað Albert sjálfan snerti, þá var hann ósköp daufur og leiður um þessar mundir. Hann hafði al- drei haft neinn áhuga á konum. Honum var meinilla við að verða að yfirgefa Coburg, sem hann unni svo heitt. Og honum stóð stuggur af því að þurfa að setjast að í Eng- landi, þar sem fólk og lífshættir þess voru svo ólíkir öllu því, sem hann unni svo heitt heima í Þýzka- landi. En ótti hennar gufaði algerlega upp, er hún leit hann, klæddan fallega einkennisbúningnum sínum. Hann var reiðubúin að gera það, sem vænzt var af honum. Og því voru þau gefin saman með óvenju- legum íburði og hátíðleika þ. 10. febrúar árið 1840. Aðstaða Alberts prins sem drottn- ingarmanns var erfið. Það var í raun og veru ekkert rúm fyrir hann og engin þörf fyrir hann við ensku hirðina nema í hlutverki hans sem elskhugi Viktoríu drottningar. Hún var ákveðin í því, að hann skyldi ekki fá tækifæri til þess að hafa nokkur afskipti af stjórnmálum. Melbourne lávarður, sem henni þótti mjög vænt um og hún mat mikils, var forsætisráðherra og var jafnframt því einkaritari hennar. Og þau tvö vildu ekki, að neinn annar hefði nokkur afskipti af rík- isstjórnarstörfum þeirra. Og Lehzen
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.