Úrval - 01.11.1969, Page 55

Úrval - 01.11.1969, Page 55
ÁSTAMÁL VIKTORÍU DROTTNINGAR 53 barónessa, fyrrverandi barnfóstra drottningarinnar, var ekki síður ákveðin í því, að hann skyldi ekki fá nein tækifæri til þess að stjórna einkalífi Viktoríu drottningar. Hún hafði eftirlit með öllu í höllinni, smáu sem stóru, og hafði alltaf gert það, frá því að drottningin var smá- telpa. Og hún ætlaði vissulega ekki að víkja um hársbreidd fyrir nein- um. Hún vildi halda stöðu sinni og völdum algerlega óskertum. Það var einnig erfitt fyrir þau bæði tvö að laga sig eftir óskum hvors annars og taka tillit til þess, sem hinu geðjaðist vel eða illa að. Hún var heimskona hin mesta og elskaði gleðilíf Lundúna. Það var mesta unun hennar að dansa alla nóttina. Hann hafði mikið yndi af sveitinni og ríki Móður Náttúru. Hann vildi helzt eyða kvöldunum á kyrrlátan hátt, umkringdur vísinda- og listamönnum, fara svo snemma að hátta og rísa snemma úr rekkju. Henni fannst, að maður ætti að sýna breyskleika annarra umburð- arlyndi, en hann var ekki á sama máli. Henni fannst, að það væri réttur hennar sem drottningar að velja sjálf þá menn, sem áttu að aðstoða hann og þjóna honum. Hann var ekki á sama máli. En raunin varð sú, að í fyrstu réð hún öllu ásamt þeim Melbourne lávarði og Lehzen barónessu. En Albert var ekki veikgeðja persóna. Hann var mjög mannleg- ur í allri sinni breytni. Hann var ekki gæddur neinni kímnigáfu, en hann var mjög glaðvær, mesta hermikráka, góður leikari og prýði- legur skilmingamaður. Hann hafði mikið dálæti á Móður Náttúru og útilífi í faðmi hennar, einnig á tón- list. Hann var gáfaður og tillitssam- ur, trúrækinn og starfsamur og mjög ástundunarsamur og dugleg- ur nemandi, hvert svo sem náms- efnið var. Hann hafði hlotið stór- kostlega þjálfun til þess lífs, sem ætlazt var til, að hann lifði. Og hann hafði geysilega sterkan per- sónuleika til að bera. Vilji hans var eitilharður. Albert mat nú vel og vandlega allar aðstæður þessarar erfiðu af- stöðu sinnar sem drottningarmanns með hjálp Stockmars baróns, síns gamla vinar og kennara, sem var ætíð við hlið hans, kenndi honum og leiðbeindi og hvatti hann vitur- lega til þess að sækja fram og láta til sín taka. Hann ákvað að reyna að sætta sig sem bezt við allar að- stæður. Hann ákvað að kynna sér gaumgæfilega allt það, sem að ensk- um stjórnmálum og stjórnmálabar- áttu lyti, og alla þætti þessarar nýju aðstöðu sinnar, þessa nýja lífs, sem átti nú fyrir honum að liggja að lifa. Hann ákvað sem sagt að verða eins enskur í háttum og viðhorfi og honum yrði frekast unnt. Og hann tók til óspilltra málanna af sínu stórkostlega viljaþreki. Hann upplifði sinn fyrsta sigur á þessu sviði, þegar hann sá um stjórnmálalega samninga eftir valdatöku Toryanna. Ríkisstjórn Whiganna sagði af sér 1841, og Mel- bourne lávarður neyddist til þess að láta af sinni árhifamiklu stöðu við hlið Viktoríu drottningar. Hún fyrirleit Sir Robert Peel, sem tók sæti hans, og neitaði að ræða við
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.