Úrval - 01.11.1969, Síða 63
Björgunin
sem
virtist óframkvæmanleg
Eftir E. D. FALES
um, að köllin hafi borizt frá norð-
urhlið Stóra-Tetonfjalls.“
Tingey er fílsterkur, þótt hann sé
lítill vexti. Hann virti hina dökku
fjallatinda vandlega fyrir sér hvern
af öðrum. Þjóðgarðsverðirnir í
Stóra-Tetonþjóðgarðinum hafa
bjargað mörgum fjallgöngumönnum
úr ógöngum og lífshættu. En einn
var sá staður, sem þeir vonuðu, að
þeir þyrftu aldrei að leita til þeirra
erinda. Og það var hin hræðilega
norðurhlið Stóra-Tetonfjalls. Þegar
fjallgöngumennirnir voru farnir, ók
Tingey til staðar nokkurs, þar sem
norðurhlið Stóra- Tetonfjalls blasti
vel við honum. Hann tók að senda
ljósmerki. Fáir fjallgöngumenn
reyna til uppgöngu í norðurhlið
fjalls þessa, og það mundi reynast
mjög örðugt að finna nokkurn, sem
kynni að vera þar uppi. í 30 mínút-
ur samfleytt hélt hann áfram að
senda ljósmerki sín. En hann gat
ekki komið auga á neitt svarmerki,
og því sneri hann aftur til kofa
síns til þess að undirbúa leit í dög-
un.
BJARG, SEM SPLUNDRAÐIST
Gaylord K. Campell, kallaður
Gay, 26 ára að aldri, frá Mahopac
í New Yorkfylki, og Lorraine Hough,
kölluð Lorri, frá Sandwich í Illinois-
fylki, höfðu kynnzt við Illinoishá-
skóla. Hún var nýstúdent þar og
mjög vinsæl, en hann hafði þegar
tekið háskólapróf og lagði nú stund
á framhaldsnám þar í stærðfræði.
Campbell, sem er sterkur og hraust-
ur, hafði stundað fjallgöngur í heil-
an áratug. Hann var meðlimur í
Alpaklúbbnum, frægu, frönsku fjall-
göngumannafélagi, og hafði sigrazt
á fjallatindum í Frakklandi, Ítalíu,
Þýzkalandi og Mexíkó. Það var
sameiginleg ást þeirra á útilífi í
faðmi Móður Náttúru, sem hafði
dregið þau hvort að öðru. Lorraine
var smávaxin, en mjög dugleg. —
Sumarið 1967 höfðu þau klifið sam-
an margan fjallstindinn í kletta-
fjöllunum, bæði í Bandaríkjunum
og Kanada. Cambell ráðgerði nú að
klífa hina stórkostlegu Norðurhlið
Stóra-Tetonfjalls veturinn 1968. Ör-
yggisreglur þjóðgarðsins kváðu svo
á um, að fyrst yrði hann að klifra
61