Úrval - 01.11.1969, Page 66

Úrval - 01.11.1969, Page 66
64 ÚRVAL heill hópur upp Suðurhlið tii þeirra Irvine og Ortenburger, sem staddir voru nálægt tindinum. í hóp þess- um voru þeir Tingey og Sinclair auk Teds Wilson og Ricks Reese þjóðgarðsvarða og Mike Ermaths aðstoðarbrunavarðar. Þeir voru all- ir þaulvanir björgunarstörfum í há- fjöllum. Þeir Ortenburger og Irvine höfðu getið sér þess til, að hjálp mundi berast með þyrlunni, og því biðu þeir kyrrir nálægt tindinum. Þeir voru í 13100 feta hæð. Þeir gengu á ská yfir hamra, sem virt- ust að hruni komnir. Svo létu þeir sig síga í kaðli 150 feta leið niður hamrana, sneru að hömrunum, spyrntu fótunum í þá og „gengu“ þannig niður hamrana. Þar stönz- uðu þeir á smásyllu og létu sig svo síga önnur 150 fet niður hamrana. Klukkan 4 síðdegis lögðu svo björg- unarmennirnir 7 af stað niður Norð- urhlið í áttina til hinnar blóðidrifnu syllu. Þeir urðu að fara sér mjög hægt og sýna mikla varúð. Nú hófst hið erfiða björgunar- starf. Það tók fjóra menn fjórar klukkustundir að ná til syllunnar og koma stúlkunni þaðan til hjálp- arflokks þar skammt frá. Sá hjálp- arflokkur lagði síðan af stað með hana niður til aðalbækistöðvar björgunarleiðangursins, en björg- unarmennirnir fjórir settu sig í samband við aðalbækistöðina með talstöð sinni og báðu um, að þeim yrði sent morfín, sjúkrabörur úr áli, fleiri kaðla og tvo stálvíra með sigtunnu, sem hægt væri að krækja fastri í klettana. Er því var lokið, gátu þeir ekkert frekar að- hafzt að sinni. Þeir urðu nú að híma aðgerðariausir allt til dögun- ar. Það fór illa um þá, en þeir reyndu samt að blunda öðru hverju. Reynt hafði verið að þyngja ekki þyrluna að óþörfu,, og því höfðu þeir enga svefnpoka og mjög litlar vistir, aðeins nokkrar niðursuðu- dósir og súkkulaðipakka. Þeir Ortenburger, Irvine og Wil- son bundu sig fasta við hamrana og reyndu að sofna. Campbell gnísti tönnum öðru hverju og stundi þungan. Þeir gerðu sér grein fyrir því, að þeim tækist aldrei að koma honum á baki sér upp hamravegg- inn. Brotni fóturinn gerði slíkt ómögulegt. Þeir horfðu niður til glitrandi jökulsins fyrir neðan, en þangað yrðu þeir að láta slasaða manninn síga. En þvílíkt sig! Það voru um 1900 fet beint niður á við! Snemma morguns heyrðist í þyrl- unni að nýju. McLaren hallaði sér út um opnar dyr hennar og kast- aði morfíninu beint niður í kjöltu Ortenburgers. Mennirnir fjórir, sem flutt höfðu slösuðu stúlkuna burt, létu sig nú síga niður til þeirra aft- ur. Þeir voru með sjúkrabörur með sér og einnig útbúnað til þess að láta þær síga niður hamravegginn. ÚT YFIR HAMRABRÚNINA Sú spurning, sem brann nú á allra vörum, var þessi: Hver átti að fylgja Campbell niður hamravegg- inn? Hann þurfti fylgdarmann til þess að forða því, að sjúkrabörurn- ar hölluðust eða hvolfdust alveg eða skyllu harkalega utan í klett- ana eða festust á syllu. Wilson bauðst til þess að fara með honum. Kaðall var reyrður tryggilega um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.