Úrval - 01.11.1969, Page 72
70
ÚRVAL
Þegar höfundur Tarzansagnanna,
Edgar Rice Burroughs, dó árið
1950, var komizt svo að orði í minn-
ingargrein um hann í dagblaðinu
Los Angeles Times: „Fáir höfund-
ar hafa náð til fjölmennari lesenda-
hóps, en samt var hann laus við
allt yfirlæti og sýndarmennsku. —
Hann fór hvorki í háskóla né til
Afríku. Hann sagði, að hann vasri
eins konar lífsflóttamaður, þar eð
hann skrifaði til þess að flýja fá-
tæktina.“
Skrif Burroughs einkenndust
sannarlega pf algerum flótta frá
raunveruleikanum. Æviferill hans
sjálfs hefur að geyma skýringuna
á hinni áköfu hvöt hans til þess að
skapa bjartari. meira æsandi ver-
öld. en veröld þá, sem hann þekkti.
Hann hafði þegar stundað um heila
t.vlft mismunandi starfa, er hann
hóf ritstörfin. Og honum hafði
gengið mjög illa við þau öll. Þegar
annað barnið hans fæddist, stóð
hann straum af kostnaðinum sam-
fara fæðingunni með því að veð-
setia skartgripi konunnar sinnar og
úrið sitt. Svo hóf hann að skrifa
sövu í einhverri örvæntingu árið
1911. Þá var hann 36 ára að aldri.
Sögusviðið í fyrstu bók Burr-
oughs var plánetan Mars, prýðilegt
sögusvið, þar eð enginn gat rétti-
lega dregið í efa lýsingar á um-
hverfi og staðháttum þar. Hann
skrifaði bók þessa í skrifstofu kunn-
ingia síns eftir eigin vinnutíma,
svo að konan hans kæmist ekki að
því, að hann hefði árangurslaust
reynt við enn eina starfsgrein. Saga
þessi bar heitið „Undir Marsmána".
Hún var birt í 6 skömmtum í tíma-
ritinu „All Story Magazine". Og
höfundurinn fékk 400 dollara fyrir
hana.
Næsta sagan var söguleg skáld-
saga, er bar heitið „Útlaginn í
Torn“. Og hann fékk hana sam-
stundis beint í hausinn frá útgef-
endunum, sem hann sendi handritið
til. En Burroughs gat ekki gleymt
því, að hann hafði haft 400 dollara
upp úr fyrra handriti sínu, því að
í hans augum voru það heilmikil
auðæfi. Hann bjó sig vel undir rit-
un þriðju sögunnar með því að lesa
bók Stanlevs ,,f myrkviði Afríku"
og ,,Frumskógabókina“ eftir Kipl-
ing á borgarbókasafninu í Chicogo.
Ov árangurinn af þessari markvissu
viðleitni hans var svo briðja sagan
hans. sem bar hej+ið „Tarzan apa-
bróðir“. Hann sagði, að hann hefði
íengið hugmyndina að henni frá
sögninni um þá Romulus og Rem-
us, sem fóstraðir voru af úlfvnju
og stofnuðu síðar Rómaborg. Hann
skrifaði hana í frístundum sínum.
Og panm'rsarkirnar, sem hann skrif-
aði handritið á. voru bréfsefni úr
verzlunarfvrirtækjum, sem hann
hafði starfað við.
Sa»an var einföld. John Clavton
CGrevstoke lávarður) og hin fagra
eiginkona hans, Alice. voru sett á
land á frumskópaströnd Afríku ár-
ið 1888 af skipshöfninni, sem hafði
vert uonreisn. Lafði Alice var þá
þunguð. Hún dó svo, skömmu eftir
að henni fæddist sonur. Og hinn
sorgmæddi lávarður var brátt drep-
inn af grimmum apa. Drengurinn