Úrval - 01.11.1969, Síða 82
80
ÍJRVAL
ur í lítinn pakka ásamt fótdælu til
þess að blása hann upp með, Langar
þig kannske að flytja stólinn í ann-
að herbergi? Hleyptu bara loftinu
úr honum og blástu hann upp að
nýju.
Lomazzi játar, að því sé eins farið
með sig og marga aðra unga hönn-
uði. Hann játar, að það hafi verið
Giovanni Battista Pininfarina, sem
hafi haft mest áhrif á starf sitt. Pin-
infarina dó árið 1966 eftir að hafa
eytt ævinni í að hanna fegurstu bif-
reiðir heimsins. Verksmiðjurnar
Ferrari á Ítalíu, Peugeot í Frakk-
landi, Volkswagen í Vestur-Þýzka-
landi og General Motors í Ameríku
reyndu ásamt fleirum að tryggja sér
starfskrafta þessa snillings. Árið
1963 hannaði hann einn bíl, sem
hlaut nafnið Sigma (er nú til sýnis
í safni í Lucerne), en um hann segir
bílasérfræðingur einn, að „í honum
hafi allt það verið saman komið,
sem öryggisfræðingar hafa komið
fram með síðan hann var byggður.“
Það er líkt og Pininfarina hafi séð
slíkt fyrir.
ÖGRUN Á SVIÐI TÍZKUNNAR.
Á meðan ýmislegt djarft og æsandi
var að ryðja sér til rúms í heimi
véla og lampa, voru jafnvel enn
meiri umbrot í annarri grein ítalskr-
ar verksnilli. Þetta hófst árið 1951,
þegar hópur ítalskra teiknara og
hönnuða hertu upp hugann og
ákváðu að ögra ofurveldi Parísar á
sviði hátízkunnar og reyna að
hnekkja því. Veraldarvanir sérfræð-
ingar á þessu sviði spáðu því, að
fyrsta tízkusýningin hlyti að enda
með skelfingu. Hver hafði svo sem
heyrt getið um ítalska tízkuteiknara
og tízkuhönnuði?
En tízkufréttaritarar og innkaupa-
fulltrúar, sem sáu fatnað þeirra Fa-
biani, Veneziani, Pucci, Antonelli,
Fontanasystra og annarra, slepptu
sér alveg af hrifningu. Þessi tilraun
átti geysilegri velgengni að fagna,
og áður en árið var á enda, voru
þekktar tízkudömur um víða veröld
farnar að ganga í ítölskum fatnaði.
Og nú veltir iðnaður þessi milljónum
dollara á ári.
Roberto Capucci, sern fæddist í
Róm fyrir 38 árum, er einkennadi
fyrir þá menn, sem áttu hugmynd-
ina að átakinu í þessari iðngre'n og
öfluðu henni frægðar og frama. Ca-
pucci farast svo orð: „Hvað mig
snertir, Þá leitast ég alltaf við að ná
hinum fínlega, sígilda svip á föt
mín.“ Sýningar hans vekja athygli,
sem um alheimsatburði væri að
ræða, og sama er að segja um marga
aðra hátízkufrömuði á Italíu. Aðrir
helztu frömuðir hinnar ítölsku tízku
eru hin fræga Gucci fjölskylda frá
Flórens, sem hefur leðurvarning að
sérgrein, og Ferragamo fjölskyldan,
sem framleiðir hina frægu skó, sem
dáðir eru um víða veröld.
Guccifjölskyldan hefur tengt hin-
ar göfugu erfðavenjur stofnandans
Guccio Gucci framúrstefnum nútím-
ans. Hugmynd Guccios Gucci var
sú, að ,, búa til kvenveski, sem væru
svo fögur, að þau væru listaverk.“
Rodolfo Gucci, sem er helzti teikn-
ari og hönnuður fyrirtækisins, kemst
svo að orði: „Ég gef hugarfluginu al-
gerlega lausan tauminn fyrir jólin
ár hvert. Ég bý til veski, sem eng-
inn á jarðríki hefur efni á að kaupa.