Úrval - 01.11.1969, Page 90

Úrval - 01.11.1969, Page 90
88 ÚRVAL tilhugalífi, sem geystist yfir okkur eins og hvirfilvindur. Eftir kaffið fórum við svo aftur í bókasafnið. Randy fór með mig inn í eina deild þess, sem ég hafði aldrei séð áður. Þar voru raðir af klefum fyrir þá, sem voru að búa sig undir meistara- próf og vinna að doktorsritgerðum. Þarna ríkti algerð kyrrð og ró, og það var svolítil myglulykt í loftinu. Við vorum þarna tvö ein. Randy beygði höfuðið í áttina til mín, þangað til það snerti næstum höfuð mitt. Ég var sem í leiðslu, og mér fannst sem bláu augun hans væru enn blárri en mig hafði minnt. Skyndilega minntist ég allra aðvar- ana móður minnar: Voru þetta þær aðstæður, sem hún hafði haft í huga, þegar hún hafði verið að tala um þorpara, sem notfærðu sér sakleysi ungra stúlkna? Hönd hans snerti hönd mína.... og ég varð viss um það. Og án þess að hika lengur, lagði hann nokkur talnablöð fyrir framan mig og byrj- aði að útskýra fyrir mér tilraunir þær, sem hann var nú að gera í dýrasálfræði. „Hérna eru allar upplýsingar um hundana,“ hóf hann máls. „Við erum að rannsaka hraða ósjálfráðra við- bragða þeirra og ákvarða hæfileika þeirra til hvatagreiningar.“ Ég skildi ekki orð af því, sem hann sagði, en mér fannst það al- veg dásamlegt. Mamma hafði einnig varað mig við því, að fyrr eða síðar mundi strákur, sem ég eignaðist að kunn- ingja, bjóða mér upp í herbergið sitt. Og viti menn, Randy bauð mér að heimsækja sig, eftir að ég hafði þekkt hann í 3—4 vikur. Hann bauð mér að koma í herbergið sitt í Alphahúsinu. Ég hugsaði um þetta boð hans um hríð. Mundi virðing hans fyrir mér minnka, ef ég þægi boði hans? Mundi ég missa hann, ef ég afþakkaði það? Hvað ætlaðist hann eiginlega fyrir með þessu boði sínu? Og mér varð hugsað til mömmu, sem var 300 mílur í burtu. Ég tók boði hans. Ég gerði ráð fyrir, að Alphahúsið væri stúdentagarður. En þegar við nálguðumst það, óx undrun mín stöðugt. Gat þessi bústaður verið stúdentagarður? Þetta líktist helzt stórri hlöðu. Randy gaf mér merki um, að ég skyldi hafa hljótt um mig. Hann fór á undan mér og skimaði um öll anddyri og ganga til þess að fullvissa sig um, að við værum ein. Þegar hann sá, að svo var, gaf hann mér merki um, að ég skyldi elta sig. Við gengum niður hrörlegan stiga og stefndum á lokaða hurð sem á var spjald með orðunum „Aðgang- ur bannaður“. Og enn fór hann á undan mér til þess að gá, hvort nokkur sála væri þarna á ferli. f kjallaranum voru tvö herbergi. f öðru voru tvö málmrúm, tvö skrif- borð og tveir stólar. f hinu voru búr, sem höfðu að geyma um tylft alls konar hunda. Ég komst nú að því, að kjallarinn í Alphahúsinu var í rauninni rannsóknarstofa. Hann var líka heimili Randy í háskólanum. Og ég eyddi mjög „rómantísku" síð- degi í að kynnast tilraunadýrunum hans. Randy gerðist þó að lokum nógu „rómantískur“ til að gefa mér dem- antstrúlofunarhring. Hann fór með
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.