Úrval - 01.11.1969, Qupperneq 97
95
SKJÓTIÐ HONUM EKKI Á LOFT — ÉG Á HANN!
inn, augað út“. Ég vonaði bara, að
það ætti ekki að taka þessar nafn-
giftir allt of bókstaflega.
Randy og samstarfsmenn hans
létu sér ekki nægja að „ferðast11
bara á „venjulegan" hátt í mið-
flóttaaflshringekjunni, er fram liðu
stundir, heldur gerðu alls konar
tilraunir á því sviði. Þeir sneru fram
eða aftur, lágu endilangir eða sátu
uppréttir. Þeir höfðu bundið fyrir
augu og þeir fóru líka í „ferðir“
undir áhrifum tilraunalyfja. Þeir
fóru jafnvel í „ferðir“ eftir að hafa
legið í bleyti í vatni góða stund.
Þeir prófuðu ýmis tæki í tilrauna-
skyni, sem mæla skyldu blóðþrýst-
ing geimfarans, öndun, hitastig og
önnur viðbrögð hans auk hæfni
hans við þessar óþægilegu aðstæð-
ur, þ.e. við óvenjulega mikið álag
á líkama hans og sál. Þeir útbjuggu
líka alls konar tæki og fundu upp
útbúnað til þess að vernda líkam-
ann fyrir álagi af völdum hraða-
aukningar. Þar á meðal má nefna
alls konar höggpúða, G-búninga,
þrýstingsbúninga, geimskipasæti og
„loft- og vatnsbúninga", þ.e. líf-
kerfisbúninga.
Þrýstingsbúningurinn lítur út
eins og búningur í gömlum Buck
Rogers-teiknimyndasögum. En mér
hætti að þykja hann neitt sérstak-
lega skrýtinn, eftir að Randy hafði
komið heim með hann nokkrum
sinnum. Mér fór jafnvel að þykja
hann ósköp venjulegur, alveg eins
og samfestingurinn er í augum eig-
inkonu bifvélavirkjans.
Ég hefði átt að geta gert mér
grein fyrir því, að nágrannarnir
þyrftu líka svolítinn tíma til þess
að laga sig að hinum ýmsu óvenju-
legu aðstæðum geimaldarinnar. Mér
kom slíkt bara alls ekki til hugar
fyrr en einn föstudaginn, þegar
blaðastrákurinn kom að rukka fyr-
ir dagblaðið. Á hægindastól í dag-
stofunni gat að líta þrýstingsbún-
ing með hjálmi og hönzkum. í
fljótu bragði mátti halda, að þarna
væri kominn gestur utan úr geimn-
um. Vesalings drengurinn mátti
varla vera að því að bíða eftir 65
centunum sínum. Honum lá svo
mikið á að æða til nágrannanna og
segja þeim, að fljúgandi diskur
væri nýlentur og Marsbúi sæti inni
í dagstofu hjá Chambersfjölskyld-
unni!
Á fyrsta tímabili geimrannsókn-
anna álitu sumir vísindamennirnir,
að simpansar kynnu að reynast al-
veg tilvaldir geimflugmenn. Randy
skipulagði því tilraun, sem miðaði
að því að gera samanburð á hans
eigin hæfni til að stjórna stjórn-
tækjum geimfars og hæfni
simpansa.
Þeir Randy og simpansinn sátu
hlið við hlið við tvenn stjórntækja-
borð. Tilraunin skyldi standa yfir
í 5% klukkustund. Þeir voru um-
kringdir af samstarfsmönnum
Randy. Það var erfitt að segja til
um, hverjir voru að rannsaka
vandamál hverra í lok tilraunar-
innar. Simpansinn virtist alveg
óþreyttur og rólegur. Hann stóð
Randy ekki aðeins oftast nær á
sporði alla tilraunina á enda, held-
ur reyndist hann jafnvel taka hon-
um fram á vissum stigum tilraunar-
innar. Og hann lét sér nægja að
vinna fyrir banana.