Úrval - 01.11.1969, Síða 104
102
ÚRVAL
flugi hafði kostað. Flugferð Gus
Grissoms í júlí sama ár tók mjög
svipaðan tíma. En tæpum mánuði
síðar fór Rússinn Gherman Titov
svo í sína geimferð, og hann var á
sveimi í rúmar 25 stundir og fór
17 V2 ferð umhverfis jörðu.
Vísindamennirnir álitu starfið við
undirbúning geimferðanna að vísu
aldrei sem einn þátt í kapphlaupi,
en samt brá Randy ónotalega við
geimferð Titovs. Hann varð stein-
hissa, en undrun hans var einnig
gremjublandin. „Hvernig tókst beim
að framkvæma svona mikið á svona
stuttum tíma?“ spurði hann sjálfan
sig æ ofan í æ.
Ég verð alltaf mjög taugaóstyrk,
meðan á geimferð stendur. Kannske
er ástæðan sú, að ég þekki menn-
ina að „tjaldabaki“ og veit, hversu
þeir hafa stritað til þess að fyrir-
byggja öll óhöpp. En kannske hef
hef ég bara ekki hina réttu skap-
gerð til að bera. En hver svo sem
ástæðan kann að vera, þá verð ég
alltaf miklu æstari og órólegri en
nokkrir af hinum raunverulegu
þátttakendum virðast vera.
Því var sérstaklega þannig farið
daginn, sem John Glenn fór á spor-
braut um jörðu, þ.e. þann 20. febrú-
ar 1962. Geimskotinu hafði verið
frestað æ ofan í æ. Þar á meðal
var því frestað 10 sinnum vegna
slæms veðurs. En að lokum virtist
sem rétti dagurinn væri runninn
upp.
Við Randy fórum snemma á fæt-
ur og skrúfuðum frá sjónvarpstæk-
inu til þess að fylgjast með öllu.
Ég spyr Randy oft að því, hvers
vegna hann skreppi ekki suður á
Kennedyhöfða til þess að fylgjast
persónulega með geimskotum, fyrst
hann hefur svo mikinn áhuga á
þeim. En hin raunverulegu geim-
skot eru orðin heldur hversdags-
leg. Þau eru bara verk venjulegra
vélfræðinga. Vísindamennirnir, sem
vinna að geimrannsóknum, eru nú
önnum kafnir við áætlanir, sem
verða framkvæmdar eftir 2—3 ár.
Randy heimsótti samt Kennedy-
höfða til viðræðna, meðan sumar
áætlanir hans voru bara á byrjun-
arstigi og ekki var enn byrjað á
raunverulegri framkvæmd þeirra.
Glenn klöngraðist upp í geimfar
sitt klukkan 6.03 að morgni. Svo
urðu enn nokkrar tafir við niður-
talninguna, og á meðan tókst mér
að taka til svolítinn morgunverð
handa strákunum. Loksins var nið-
urtalningunni lokið, eftir að leið-
rétting hafði verið gerð viðvíkjandi
eldsneyti, skipt hafði verið um ein-
hverja skrúfu og leyst úr öðrum
minni háttar vandræðum. Og þarna
lyftist eldflaugin af skotpallinum
...... frammi fyrir augum okkar.
Hún steig hærra og hærra ....
upp upp . . með reykslóð
á eftir sér. Og svo hvarf hún úr
augsýn.
Við Randy stóðum þarna sem
stirðnuð og héldum niðri í okkur
andanum. Svo heyrðum við rödd
Glenns eftir að því er virtist enda-
lausa þögn: „Öll kerfin í lagi . . . . “
Geimflugið stóð yfir í 4 klukku-
stundir, 55 mínútur og 23 sekúnd-
ur samkvæmt opinberum heimild-
um. En mér fannst þetta líkara 4
árum. Og ég er hrædd um, að við-
brögð mín hafi ekki verið beinlín-