Úrval - 01.11.1969, Síða 114

Úrval - 01.11.1969, Síða 114
112 ÚRVAL fræði, en lestur og skrift skipta engu máli). Þetta árið lærðum við heilmikið um nagdýr, þar á meðal þá stað- reynd, að þrjár mýs geta breytzt í 35 til 40 músa fjölskyldu alveg fyrir- hafnarlaust. Mark reyndi að þekkja músakyn- slóðirnar í sundur fyrst í stað, en að lokum varð hann bara að skil- greina yngri kynslóðirnar sem „ný afkvæmi“. Málfar hans á hinu líf- fræðilega sviði var oft næsta furðu- legt. ,,Er ekki kominn tími til þess að láta afann og ömmuna eðla sig?“ heyrði ég hann eitt sinn spyrja einn vin sinn. Kennslukonan hans í 6. bekk, lag- leg, ung kona, sem var nýbyrjuð að kenna, varð alveg furðu lostin, þegar Mark gekk að borðinu henn- ar einn morguninn og tilkynnti henni rólega: „Hún er ófrísk“. Hún kom ekki upp neinu orði fyrst í stað, en að lokum spurði hún óttaslegin: „Hver?“ „Músaamman mín,“ svaraði Mark ánægður. „Sýnishornin“ týndu mjög fljótt tölunni. Einkum var það svo, hvað nagdýrin snerti. Þetta var að miklu leyti kettinum okkar, honum Denn- is, að kenna. Mark vandi einn hóp músabarna af móðurmjólkinni og ól þau á kúamjólk og öðrum mat og seldi fimm þeirra dýraverzlun einni fyrir 25 cent stykkið, en hélt fjórum eftir fyrir tímgunartilraun- ir sínar. Dennis var um þær mund- ir að jafna sig eftir lungnabólgu, og við héldum, að hann væri enn mjög veikur. En þegar Mark brá sér frá músunum sem snöggvast, reis kisi upp af sjúkrabeði sínum og „afgreiddi" afganginn af þessari músakynslóð. Mark grenjaði svo ofboðslega, að ég flýtti mér með hann til dýra- verzlunarinnar næsta dag og keypti aftur eitt par af hans eigin músum ... á 49 cent stykkið. Þar sem fórnardýr Dennis voru „sýnishorn" en ekki heimilisdýr, syrgði Mark ekki dauða þeirra lengi. Þegar eitthvert þeirra gaf upp öndina, tók Mark líkið eða það, sem eftir var af því, stakk því undir smásjána sína og framkvæmdi líkkrufningu. Sjúkdómsgreiningar hans voru oft mjög snjallar. Eftir að hafa skoðað fisk, sem hafði stokkið upp úr fiskabúri sínu og týnt þannig lífinu, sagði Mark með spekingssvip reynds sjúkdómsgrein- ingasérfræðings: „Ja, hún var reyndar ófrísk, og ég býst bara við, að hún hafi orðið eitthvað tauga- óstyrk.“ Framtíðin liggur ljós fyrir, hvað snertir vísindamennina mína af annarri kynslóðinni. Eftir nokkur ár mun Mark, sem mun þá vafa- laust búa í hundarannsóknarstofu, koma 'heim með einhverja stúlku, sem hann hefur verið að stíga í vænginn við í háskólabókasafninu. Og Craig mun veifa til einhverrar ljóshærðrar á skotpallinum sínum. Þessar stúlkur verða auðvitað vald- ar með hjálp tölvu. Lífsförunautur Marks verður þess háttar stúlka, sem getur krufið þorsk án þess að blikna eða blána. En Craig mun auðvitað velja sér geimfara af veika kyninu fyrir lífsförunaut, stúlku,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.