Úrval - 01.11.1969, Síða 119
SKJÓTIÐ HONUM EKKI Á LOFT — ÉG Á HANN!
117
heim meS troðfulla skjalatösku.
Hann byrjar á að laga til í vinnu-
stofunni sinni og kastar miskunnar-
laust öllum sínum dýrustu fjársjóð-
um. Við setjumst að kvöldverði og
njótum hans í ró og næði, ótrufluð
af símtölum eða heimsóknum ann-
arra vísindamanna. Að því búnu
hjálpar hann mér að þvo upp. Svo
leiðir hann mig að þægilegum stól
við arininn og hvíslar innilega: —
„Þeir vilja, að ég fljúgi til Kali-
forníu til þess að athuga nýtt líf-
kerfi fyrir geimfara, en ég sagði
þeim, að ég vildi heldur vera kyrr
heima hjá þér. Vísindin eru ekki
allt lífið, þegar öllu er á botninn
hvolft.“
Ef þetta mun einhvern tíma ger-
ast, verð ég að leita á náðir hjóna-
bandsráðgjafa.
☆
Þú skalt tortryggja sérhver stjórnmálaleg eða þjóðfélagsleg samtök
fólks, sem kernur aldrei til hugar, að það sé neitt hlægilegt við Iþað
sjálft eða viðfangsefni og áætlanir samtaka þeirra.
Harry Reasoner.
Fullkomin risahraðbraut er vegur, sem getur gert slæma mannasiði
'lífshættulega.
Earl Wilson.
Hefur þér nokkurn tima fundizt, að þú hafir lært miklu meiri landa-
fræði síðustu árin en þú kærðir þig nokkurn tíma um að læra?
Það er eitt, sem öðru fremur eyðileggur ánægjuna fyrir manni, þegar
maður mætir með gamla ái'ganginum sínum við skólauppsögn í gamla
skólanum. Sko, það er að hitta gamlan skólabróður, sem hefur tekizt
að viðhalda unglegu útliti og verða þar að auki ríkur.
Indianapolis Star.
Það er til fólk, sem er byrjað að bera fram þau rök, að hefði guð
ætlazt til þess, að við gengjum, þá hefðum við ekki fæðzt inn í veröld,
þar sem ekki verður þverfótað fyrir bílulm.
Des Moines Register.
Sérhver sá maður er hættulegur, sem dáir aðeins eitt.... óg ekkert
annað.
O. K. Chestaton.
Öryggisleysið lýsir sér í því að setja armbandsúrið sitt að nýju, í
hvert skipti þegar maður sér klukku, sem er ekki á sama máli.
Ade Khan.
Það er auðvelt að ijúga. En það er erfitt að Ijúga bara einu sinni.